Fréttablaðið - 12.04.2010, Qupperneq 2
2 12. apríl 2010 MÁNUDAGUR
SVEITARSTJÓRNIR Guðmundur Gunnarsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi, vill að rík-
issaksóknari taki afstöðu til þess hvort
ákæra beri Sigurð Magnússon, fyrr-
verandi bæjarstjóra, fyrir afglöp í
starfi.
„Mér er algerlega ofboðið hvert
framferði Sigurðar Magnússonar
í starfi bæjarstjóra Álftaness frá
júní 2006 til október 2009 er með
öllu látið átölulaust. Manns sem
ber mesta ábyrgð á klárum
afglöpum, óvandaðri stjórn-
sýslu og klúrri meðferð á
almannafé á Álftanesi,“
segir í bréfi Guðmundar
til ríkissaksóknara. Guð-
mundur bætir meðal ann-
ars við að Sigurður hafi
„orðið uppvís að afbrigði-
legri hegðun“ og „sýnt af
sér fullkomið gáleysi og
ábyrgðarleysi“ í starfi.
Sigurður segist ekki hafa séð umrætt bréf. „Það
er erfitt að gefa komment á það sem maður hefur
ekki séð en í sjálfu sér kemur þetta ekki
á óvart. Í fjögur ár er hann búinn að
gera svipaða hluti og þennan; kæra
ákvarðanir mínar til ráðuneytisins og
fengið til baka svör um að mín störf
hafi verið samkvæmt sveitarstjórnar-
lögum,“ segir Sigurður.
Í komandi bæjarstjórnar-
kosningum leiðir Sigurður
Á-listann. „Það er verið að
þyrla upp moldviðri til að
koma höggi á mig og ekk-
ert annað. Það tekur eng-
inn hér á Álftanesi mark
á Guðmundi Gunnarssyni
lengur.
Hann hefur ekkert traust
– ekki einu sinni hjá sínu
fólki sem hafnaði honum í
prófkjöri,“ segir Sigurður.
- gar
Bæjarfulltrúi segir fyrrverandi bæjarstjóra gálausan og klagar til ríkissaksóknara:
Vill ákæru fyrir afglöp í starfi
GUÐMUNDUR
GUNNARSSON
SIGURÐUR
MAGNÚSSON
SKIPULAGSMÁL Þorleifur Gunnlaugs-
son, borgarráðsfulltrúi Vinstri
grænna, vill að borgin fjarlægi
mannvirki af lóð Hrafns Gunn-
laugssonar á Lauganestanga á hans
kostnað, fyrir 20. apríl. Þá verði
lóðinni komið í það horf sem hún
var í þegar samkomulag var gert
við Hrafn árið 2003. Þorleifur segir
Hrafn hafa margbrotið það.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
barst Hrafni erindi frá byggingar-
fulltrúa 4. mars þar sem tilkynnt
var að allar framkvæmdir í óleyfi
yrðu stöðvaðar.
„Það er ekki líðandi að fólk fái
að gera það sem því dettur í hug
í almannarými. Við getum rétt
ímyndað okkur hvernig borgin
okkar liti út ef allir gerðu þetta.“
Þorleifur segir Hrafn fá sérmeð-
ferð hjá borgaryfirvöldum. Hann
hafi fengið 10 milljónir króna árið
2003 fyrir að fara ekki í frekari
framkvæmdir. Það hafi hann brotið
með því að koma upp mannvirkjum,
stækka tjarnir og gera hóla úr upp-
greftrinum. Það sé allt gert á við-
kvæmu svæði sem ekki megi hrófla
við nema með leyfi minjaverndar.
„Sá grunur læðist að manni, eftir
allar hótanir borgarinnar sem ekk-
ert er gert í, að það séu óeðlileg
tengsl milli Hrafns Gunnlaugsson-
ar og borgarstjórnarmeirihlutans
í Reykjavík.“ Þorleifur óttast að
meirihlutinn hafi þæft málið með
því að vísa tillögu hans til hverfa-
ráðs. Staðreyndir málsins séu löngu
þekktar.
Hrafn Gunnlaugsson segist
munu svara erindi byggingarfull-
trúa eftir réttum boðleiðum. Málið
sé flókið, enda sé um að ræða leik-
myndir úr myndum hans. Þær séu
hannaðar til að blekkja augað og því
sé meira í málinu en sýnist. Hvað
framkvæmdir við tjarnir varðar
segist Hrafn vinna að því að fegra
umhverfið, öllum til ánægju. Allir
séu velkomnir í Laugarnesið og
þangað sæki margir. Fjöldi ferða-
manna hafi heillast af húsinu og
umhverfi þess.
Ekki síst sé það hús hans sem
veki athygli, en það sé unnið úr
endurnýjanlegum efnivið. „Þetta
er experíment í environalisma.
Þetta er náttúrlega bara dúfnakof-
inn sem maður fékk ekki að smíða
þegar maður var krakki.“
Hrafn vill ekki tjá sig um hvort
hann hafi leyfi fyrir framkvæmd-
unum og segist munu svara bygg-
ingarfulltrúa með það.
kolbeinn@frettabladid.is
Borgarfulltrúi segir
Hrafn fá sérmeðferð
Borgarfulltrúi VG telur Hrafn Gunnlaugsson fá sérmeðferð hjá meirihlutanum
og spyr hvort þar séu óeðlileg tengsl. Vill að borgin fjarlægi mannvirki við hús
Hrafns. Þetta er dúfnakofinn sem maður fékk aldrei að smíða, segir Hrafn.
SKÝLIÐ Í FLÆÐARMÁLINU Byggingarfulltrúi tilkynnti Hrafni um að framkvæmdir
við húsið yrðu stöðvaðar þar sem ekki væri fyrir þeim byggingarleyfi. Hrafn segir
framkvæmdir tengjast gömlum leikmyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Borgaryfirvöld gerðu samkomulag við Hrafn árið 2003. Þar var kveðið á um
samkomulag við borgarminjavörð um allar hugsanlegar framkvæmdir. Þá
yrðu framkvæmdir utan lóðar fjarlægðar, en Hrafn ekki krafinn um kostnað.
Í júlí 2009 sendi Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs,
Hrafni bréf. Þar segir um úttekt á lóð Hrafns: „Í ljós kom að verulegar fram-
kvæmdir og jarðrask hafa átt sér stað eftir undirritun meðfylgjandi sam-
komulags sem gert var milli þín og Reykjavíkurborgar þann 9. apríl 2003.”
Í mars 2010 sendi byggingarfulltrúi Hrafni bréf þar sem bent var á að
verið væri að steypa hús í fjöruborðinu án leyfis. Þær framkvæmdir yrðu
stöðvaðar.
Margar athugasemdir hafa verið gerðar
TÖLVUR IBM og Simmtronics ætla
að setja á markað fartölvu með
hugbúnaði frá Lotus og Ubuntu.
Vélinni verður helst beint að
litlum fyrirtækjum í fátækum
ríkjum, sérstaklega Afríku, og
kemur til með að kosta rúmar
24.000 krónur.
IBM hefur í nokkur ár unnið að
því að draga úr forystu Microsoft
á stýrikerfamarkaðinum og hefur
sérstaklega litið til Linux-kerfa
eins og Ubuntu. IBM telur fyrir-
tæki geta sparað mikið á því að
nota Linux í stað Windows. - kóþ
Ný Linux IBM-fartölva:
Fartölva á 24
þúsund krónur
Sara Hlín, ertu orðin fluglæs á
bókstaf laganna?
„Ég hef að minnsta kosti flogið
gegnum mörg fluglög.“
Sara Hlín Sigurðardóttir flugmaður kláraði
flugnámið meðfram menntaskólanum.
Hún hafði svo gaman af að læra flugregl-
urnar í Flugskólanum að hún stundar nú í
nám í lögfræði við Háskóla Íslands.
FRUMKVÖÐLAR Sprotafyrirtækið
Remake Electric hlaut gulleggið 2010.
MYND/HERMANN SIGURÐSSON
FRUMKVÖÐLAR Sprotafyrirtækið
Remake Electric sigraði í frum-
kvöðlakeppni Innovit, Gulleggið
2010. Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra afhenti stofnendum
fyrirtækisins eina milljón króna í
sigurlaun og Gulleggið við athöfn
á Háskólatorgi á laugardaginn.
Remake Electric hefur þróað
nýja og byltingarkennda tegund
rafskynjara sem markar nýja
kynslóð rafmagnsöryggja en
skynjarinn gefur meðal annars
hljóðviðvaranir við yfirálagi raf-
magns svo fyrirbyggja megi elds-
voða vegna rafmagnsbilana. -rat
Fengu Gulleggið:
Skynjar bilanir
í raftækjum
BJÖRGUNARSTARF Tveir þýskir ferðamenn um þrí-
tugt urðu veðurtepptir í þrjá daga í Baldvins-
skála á Fimmvörðuhálsi. Þeir lögðu af stað að
gosinu á föstudag í góðu veðri en þegar upp var
komið skall á vitlaust veður. Leituðu þeir þá
skjóls í skálanum og létu vita af sér í gegnum
talstöð í gærmorgun.
Björgunarfélag Árborgar kom ferðamönnun-
um til hjálpar og sótti þá í skálann á bíl sínum.
„Þeir voru vel búnir og vissu greinilega hvað
þeir voru að gera. Þeir voru búnir með allan mat
og þess vegna kölluðu þeir á hjálp. Þeir mátu
aðstæður rétt,“ segir Ármann Ingi Sigurðsson,
formaður Árborgar.
Það tók björgunarsveitarmenn fjórar klukku-
stundir að aka upp hálsinn og að skálanum.
„Þetta gekk hægt upp eftir. Bæði er Skógáin
illa fær og þungt færi þaðan og upp úr. Það gekk
á með leiðinlegum hryðjum uppi og þeir gerðu
það eina rétta, að bíða.“ Mennirnir hafa áður
komið til Íslands og þekkja því nokkuð vel til
aðstæðna hér á landi.
Að sögn Ármanns Inga sneri björgunarsveitin
tveimur öðrum erlendum ferðahópum við á leið-
inni og voru sumir úr hópunum orðnir ansi kald-
ir. Eftirlit lögreglu vegna veðurs hófst upp úr
hádegi á laugardag við Skóga en enginn ferða-
maður var á ferð þann daginn. Örfáir jeppar
ætluðu upp á Mýrdalsjökul í átt að gosstöðvum
en sneru allir við. - fb
Tveir þýskir ferðamenn um þrítugt voru lengur en þeir ætluðu á Fimmvörðuhálsi:
Voru veðurtepptir og matarlausir í Baldvinsskála
Á GÖNGU Fjöldi ferðamanna heldur gangandi upp að
eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁTÖK Í NABI SALEH Meðan Netanjahú
forsætisráðherra veltir fyrir sér Banda-
ríkjaferð halda átök milli Palestínu-
manna og ísraelskra hermanna áfram.
NORDICPHOTOS/AFP
ÍSRAEL, AP Benjamin Netanjahú,
forsætisráðherra Ísraels, er hætt-
ur við að halda til Bandaríkjanna
á ráðstefnu um útbreiðslu kjarn-
orkuvopna. Hann hafði áður
boðað komu sína.
Samkvæmt embættismönnum
á skrifstofu hans snerist honum
hugur eftir að hafa frétt af því að
spjótin kynnu að beinast að Ísrael
á ráðstefnunni. Leiðtogar um það
bil 40 ríkja koma til Washington
í dag til að ræða hvernig koma
megi í veg fyrir að hryðjuverka-
menn komist yfir kjarnorkuvopn.
- gb
Netanjahú hættir við ferð:
Óttast að spjót
beinist að sér
12% lögreglumanna konur
Um 12 prósent lögreglumanna hjá
lögreglunni á Suðurnesjum árið
2009 voru konur. Alls voru konurnar
10 á móti 73 körlum. Kynjahlutfall
hjá öðrum starfsmönnum embætt-
isins var á annan veg. Konur voru
78 prósent, eða þrettán af sextán
starfsmönnum. Þetta kom fram á vef
Víkurfrétta.
LÖGREGLUMÁL
SPURNING DAGSINS
Sparnaði þínum er vel varið hjá Auði
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 13. apríl kl. 17:15
að Borgartúni 29.
Taktu góða ákvörðun
Eignastýring og
séreignarsparnaður
Allir velkomnir