Fréttablaðið - 12.04.2010, Page 10
10 12. apríl 2010 MÁNUDAGUR
„Í stað Lehman Brothers gæti
allt eins staðið Glitnir,“ segir
Mark T. Williams, höfundur nýrr-
ar bókar um fall bandaríska fjár-
festingarbankans Lehman Broth-
ers. Williams er Íslandi að góðu
kunnur, hefur komið hér bæði til
námskeiðahalds og sem ráðgjafi í
áhættustýringu.
Mark Williams er Íslandsvin-
ur og kveðst glaður leggja sér til
munns hval, lunda, hrossakjöt, og
hvaðeina annað bragðgott. Hann
kom fyrst hingað til lands fyrir um
sex árum sem ráðgjafi í áhættu-
stýringu fyrir Glitni banka. Hann
hefur einnig komið hingað sem
fyrirlesari í Háskólanum í Reykja-
vík vegna samstarfs skólans við
Boston-háskóla þar sem Willi-
ams kennir. Hann viðurkennir að
hafa fundist erfitt að sjá þann við-
snúning sem hér hafi orðið í hag-
kerfi þjóðarinnar. „En ástæðnanna
fyrir því hruni er náttúrlega ekki
eingöngu að leita innanlands held-
ur stuðluðu líka að þættir í alþjóða-
hagkerfinu,“ áréttar hann.
Kafa þarf eftir orsökum hrunsins
Williams segir að sömu lögmál
hafi verið að verki hér og í Banda-
ríkjunum. Óhófleg áhættusækni
hafi einkennt rekstur bankanna
um leið og eftirlit og umgjörð hins
opinbera vegna fjármálaþjónustu
hafi brugðist. „Í bókinni er áhersla
lögð á umfjöllun um kerfislæga
áhættu,“ segir hann, en skortur á
eftirliti hafi orðið til þess að for-
ráðamenn banka á borð við Leh-
man Brothers hafi fengið að fara
offari í áhættusækni og skuldsetn-
ingu fjármálafyrirtækja. Sama
hafi gerst í íslenska bankakerfinu.
Ábyrgðin á hruni fjármálafyrir-
tækja liggur nokkuð víða að mati
Williams. „Það átti sér stað stórslys
í fjármálaheiminum og á slysstaðn-
um má finna marga sem hlut áttu
að máli. Stjórnmálamenn eiga stór-
an hlut. En svo líka endurskoðend-
ur, seðlabankinn, líkt og hjá ykkur,
eftirlitsstofnanir, fræðimenn sem
hefðu átt að
gera sér grein
fyrir hættunni,
matsfyrirtækin
sem gáfu und-
irmálslánavafn-
ingum hámarks-
e i n k u n n og
sögðu þá lausa
við áhættu og
svo höfum við
fjárfesta sem
lögðu fjármuni sína í áhættusama
hluti án þess að vinna heimavinnu
sína.“
Williams segir að í Bandaríkjun-
um, eins og hér á landi, hafi margir
viljað skella skuldinni á fjármála-
fyrirtækin, en hann telur að leita
þurfi dýpra að orsökum hruns-
ins. „Fjármálamarkaðurinn á Wall
Street fékk lausan tauminn. Það
má líkja þessu við handboltaleik
þar sem dómararnir eru utan vall-
ar. Hverjum er það þá að kenna ef
leikurinn fer úr böndunum?“
Ísland málaði sig sjálft út í horn
Lykilinn að endurreisninni segir
Willams líkast til að hlutaaðeig-
andi gangist við ábyrgð á mistök-
um sínum þannig að hægt verði að
byggja á nýjum grunni. Hann bend-
ir á að Alan Greenspan, fyrrum
seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
hafi nýverið vísað frá sér allri
ábyrgð. Þó hafi vaxtastefna Banda-
ríkjanna ýtt undir ofgnótt lausafjár
og þenslu um heim allan.
„Leiðin út er að horfast í augu
við þá þætti sem stuðluðu að hrun-
inu og það þarf að efla og sameina
eftirlit með fjármálafyrirtækj-
um,“ segir Willams og bendir á að
á meðan fjöldi banka hafi farið á
hausinn í Bandaríkjunum hafi ekki
einn einasti fallið í Kanada. „Það
er af því þeir hafa einn eftirlitsað-
ila og aðhaldið er því meira. Þetta
er eins og barn sem lýtur aðhaldi
eins foreldris, í stað þess að geta
hlaupið á milli tveggja, eða jafn-
vel stjúpforeldra líka til að fá sínu
framgengt.“
Í nýju bókinni er vísað til Íslands
í framhjáhlaupi sem eitt af fórnar-
lömbum hruns Lehman-bankans,
en fall hans í september 2008 hafði
áhrif um heim allan.
Williams segir marga í fræði-
mannasamfélaginu hafa haft samúð
með Íslandi í þeim hamförum
sem hér riðu yfir með falli bank-
anna. Hann hafi sjálfur haft sam-
band við stjórnvöld og boðið fram
aðstoð sína, endurgjaldslaust, sem
ráðgjafi. Þá vissi hann um kollega
ytra sem gert höfðu það sama. „En
maður fékk eiginlega engin svör.
Það var eins og enginn vissi hver
væri við stjórnvölinn.“ Hann segir
marga í samfélagi fræðimanna þó
hafa orðið fyrir vonbrigðum með
þau skilaboð sem héðan komu um
að fremur ætti að kenna Bretum
um íslenska hrunið en að beina
sjónum inn á við.
Reiptog banka og eftirlits
„Þó svo að Bretar hefðu getað verið
liðlegri og unnið með landinu í
stað þess að ýta undir lausafjár-
kreppuna þá sáuð þið sjálf um að
mála ykkur út í horn. Þar voru þið
með ykkar eigin pensla og máln-
ingu. Þar er Ísland í sömu sporum
og Bandaríkin. Þeir sem ábyrgð
bera þurfa að stíga fram og við-
urkenna hana, svo að hægt sé að
taka skrefin fram á við.“ Williams
segir þó líkast til standa nærri
eðli mannsins að vilja leita að sök
Skipta má út nafni Lehman fyrir
Mark T. Williams, höfundur nýrrar bókar um fall bankans Lehman Brothers í Bandaríkjunum, segir íslenska banka hafa fallið af sömu
sé sýnidæmi um þörf á auknu opinberu aðhaldi. Íslendingar hafi sjálfir málað sig út í horn. Óli Kristján Ármannsson ræddi við höfund-
MARK T. WILLIAMS
FRÉTTAVIÐTAL: Sama óstjórnin var að baki hruns íslenskra banka og risabanka í Bandaríkjunum.
Mark T. Williams leggur á næstu dögum upp í
ferðalag um heiminn vegna kynningar á nýrri bók
hans, Uncontrolled Risk. Bókin er á leið í verslanir
en í henni fjallar hann um orsakir falls bandaríska
fjárfestingarbankans Lehman Brothers og stöðu
fjármálakerfisins í heiminum.
Mark nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem
sérfræðingur á sviði áhættustjórnunar, en hann
er kennari við viðskipta- og hagfræðideild
Boston-háskóla. Þá hefur hann komið hingað
til lands, bæði vegna samstarfs Boston-háskóla
við Háskólann í Reykjavík og sem ráðgjafi við
áhættustjórnun hjá Glitni.
Frekari upplýsingar um bókina og höfund
hennar er að finna á vefnum www.uncontroll-
edrisk.com.
Kynningarferð vegna útgáfu að hefjast