Fréttablaðið - 12.04.2010, Síða 14

Fréttablaðið - 12.04.2010, Síða 14
14 12. apríl 2010 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is „Ég er á því að það sé mjög mikilvægt að geta boðið upp á svona spurningakeppni, sérstaklega ef vel er staðið að þessu af hendi skólanna. Að mínu mati er þetta mikilvægasti aldur mannskepnunnar og því viljum við ýta undir að það þyki kúl og eftirsóknarvert að vita hluti. Ég held að þróunin sé í þá átt. Það má segja að þetta sé gagnsókn okkar nördanna gegn þeim sem hafa verið að stríða okkur,“ segir Hjalti Snær Ægis- son, umsjónarmaður Veistu svarið, spurningakeppni Íþrótta- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar (ÍTH) og grunnskólanna í Hafnarfirði. Úrslitaviðureign keppninnar fer fram í Flensborgarskóla klukkan 20 í kvöld milli Setbergsskóla og Álftanesskóla. Veistu svarið var sett á laggirnar á síðasta ári og segist Hjalti ekki vita til þess að önnur eins keppni sé í boði fyrir grunn- skólanema á höfuðborgarsvæðinu eftir að Nema hvað?, spurn- ingakeppni Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, var lögð af í fyrra. Sjálfur er Hjalti, sem starfar sem stundakennari við Háskóla Íslands og þýðandi, þrautreynt spurningaljón. Hann var í sigurliði MR í Gettu betur þrjú ár í röð í kringum alda- mótin og er einn stofnenda téðrar Nema hvað?- keppni. Þar gegndi hann stöðu spurningahöfundar og dómara, rétt eins og hann gerir í spurningakeppni grunnskóla Hafnarfjarðar. „Mér rann blóðið til skyldunnar þegar Hafnarfjarðarbær bað mig um að taka þessa keppni að mér, enda er ég sjálfur Hafn- firðingur,“ segir hann. Aðspurður segist Hjalti hafa á tilfinningunni að þekking- arforði ungmenna hafi haldist nokkuð í horfinu á þeim tæp- lega áratug frá því að hann hóf að starfa við spurningakeppn- ir grunnskóla. „Aðgengi að upplýsingum er betra nú en áður. Hins vegar hafa áherslur breyst nokkuð og dægurmenning er orðin fyrirferðarmeiri en áður var í öllum spurningakeppn- um. Svona keppnir eiga að vera fræðandi, en það verður líka að koma til móts við nemendurna og spyrja um hluti innan þeirra áhugasviðs. Ég hika til dæmis ekki við að spyrja um auglýsingar og er orðinn ansi vel að mér um Lady Gaga og fleira slíkt,“ segir Hjalti og hlær. Hann býður alla hjartanlega velkomna á úrslitaviðureignina í kvöld. „Það hefur gerst að spurningaþjálfarar menntaskóla- liða mæti og reyni að veiða efnilega keppendur í sína skóla. Þeir mega gjarnan láta sjá sig, eins og allir aðrir.“ kjartan@frettabladid.is ÚRSLIT Í SPURNINGAKEPPNI GRUNNSKÓLA HAFNAFJARÐAR: RÁÐAST Í KVÖLD Eftirsóknarvert að vita hluti STUND SANNLEIKANS Hjalti telur að lið Setbergsskóla og Álftanes- skóla gætu plumað sig vel í Gettu betur ef þau tækju þátt í dag. Lið Álftanesskóla: Kristinn Már Bjarnason, Þórgnýr Albertsson og Jökull Steinar Ólafsson. Lið Setbergsskóla: Úlfur Þór Andrason, Birgir Örn Höskuldsson og Brynjar Geir Sigurðsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN JACOB ZUMA ER 68 ÁRA Í DAG. „Ég hef mjög ákveðna sýn á þessi mál – ég hef aldrei litið niður á menn- ingu og arfleifð eins né neins og lít svo á að enginn hafi slíkan rétt.“ Jacob Gedleyihlekisa Zuma er forseti Suður- Afríku. Á þessum degi árið 1952 var gúmmí- björgunarbátur notaður í fyrsta skipti við björgunarstörf þegar vélbáturinn Veiga sökk við Vestmannaeyjar. Átta manns voru um borð þegar báturinn lenti í suðvesturstormi síðdegis um daginn, skammt vestur af Einidrangi. Veiga var að leggja af stað heimleiðis þegar báturinn fékk yfir sig sjó stjórnborðsmegin sem braut meðal annars hurð í stýrishúsi og rúður. Tveir skipverjar lentu í sjónum og fórust, en sex björguðust með því að koma gúmmíbjörgunarbát sem var til staðar á flot. Var talið að gúmmíbjörg- unarbáturinn hefði orðið mönnunum til lífs en Veiga sökk um fimmtán mínútum eftir að skipverjar voru komnir í björgunarbátinn. Skipverjum af Veigu tókst að halda sér á floti í gúmmíbátnum í nokkrar klukkustundir, þar til aðstoð barst frá skipverjum á vélbátnum Frigg. Í Þjóðviljanum 16. apríl sama ár er sagt að gúmmíbáturinn hafi reynst „með afbrigðum vel og sýnt að þeir séu mjög hæfir sem lífbátar, því sjór var erfiður“. ÞETTA GERÐIST: 12. APRÍL 1952 Gúmmíbjörgunarbátur notaður Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þór Jóhannesson bóndi, lést laugardaginn 3. apríl að Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 12. apríl kl. 13.30. Árni V. Þórsson Ragna Eysteinsdóttir Nanna B. Þórsdóttir Hjörvar Þór Þórsson Andrea Thorsson Ásdís Þórsdóttir Guðmundur Ólafsson Gunnur Petra Þórsdóttir Ólafur Þórarinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, systir, mágkona og frænka, Kristjana Hólmgeirsdóttir frá Hellulandi, Aðaldal, Tjarnarlundi 12 f, Akureyri, sem andaðist á öldrunarlækningadeild Kristnesspítala sunnudaginn 4. apríl, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 14. apríl kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hennar láti öldrunar lækninga- deild Kristnesspítala njóta þess. Þorbjörg Aðalsteinsdóttir Sigrún Hólmgeirsdóttir Hermann Hólmgeirsson mágkonur og systkinabörn. Elskuleg móðir mín, amma og langamma, Kristín Friðriksdóttir frá Raufarhöfn, Laugarásvegi 1, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 3. apríl. Útförin fer fram miðvikudaginn 14. apríl kl. 13.00 frá Fossvogskirkju. Jenný Lind Þórðardóttir Kristín Þóra Vöggsdóttir Guðrún María Vöggsdóttir Zanný Lind Hjaltadóttir Brynja Hjaltadóttir Rakel Dögg Sigurðardóttir Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, Jórunn Eyjólfsdóttir Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, andaðist sunnudaginn 4. apríl sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. apríl kl 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Barnaspítala Hringsins njóta þess. Eyjólfur Jónsson Arndís Jónsdóttir Gunnar Jónsson Erla Sigtryggsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Henning Kr. Kjartansson, Aðalgötu 5, Keflavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, fimmtu- daginn 8. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 16. apríl kl. 14.00. Jónína Ingólfsdóttir Inga María Henningsdóttir Ólafur Sigurjónsson Bjarney Sigríður Snævarsdóttir Bjarni Friðrik Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Magnús Guðmundsson, fv. verkstjóri, Blikahöfði 7, Mosfellsbæ, andaðist á líknardeild K5 Landakoti miðvikudaginn 7. apríl. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju 19. apríl kl. 13.00. Sigurrós Anna Kristjánsdóttir Agnar Magnússon Hólmfríður Skarphéðinsdóttir Snorri Magnússon Ólafía E. Gísladóttir Smári Magnússon Rut Magnúsdóttir Magnús Rúnar Magnússon Sigurrós Anna Magnúsdóttir Sveinbjörn Guðlaugsson Hólmfríður G. Magnúsdóttir Örlygur Atli Guðmundsson Ármann Magnússon Kristín E. Reynisdóttir Reynir Magnússon Hrund Birgisdóttir Hjörtur Magnússon Hrafnhildur Eva Ingibergsdóttir og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Fjóla Þorbergsdóttir, lést á heimili sínu, Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, miðvikudaginn 7 apríl. Útför hennar fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Halldór Pálmi Erlingsson Gerður Kristjánsdóttir Bergþór Erlingsson Heiðdís Á. Þorvaldsdóttir Erna Erlingsdóttir Hjörtur Gíslason ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðríður Ingibjörg Einarsdóttir, Efstaleiti 10, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Áskirkju, miðvikudaginn 14. apríl kl. 15. Hörn Harðardóttir Matthías Jakobsson Örn Þórhallsson Erla Magnúsdóttir Þórunn Þórhallsdóttir Jón Hjaltalín Ólafsson Sigríður Þórhallsdóttir Jón Kristján Árnason Einar Þór Þórhallsson Andrea Þorbjörg Rafnar barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.