Fréttablaðið - 12.04.2010, Síða 38
18 12. apríl 2010 MÁNUDAGUR
„Carell and Fey eru frábært grínpar“
- Hollywood Reporter
Bráðskemmtileg gamanhasarmynd um
hjón á ótta í bullandi vandræðum!
SÍMI 564 0000
10
10
12
L
L
10
7
12
SÍMI 462 3500
12
L
10
12
10
L
L
CLASH OF THE TITANS kl. 5.30 - 8 - 10.30
DEAR JOHN kl. 8 - 10.20
KÓNGAVEGUR kl. 5.45 - 8 - 10.15
LOVELY BONES kl. 10.15
THE GOOD HEART kl. 5.50 - 8
MAMMA GÓGÓ kl. 6
SÍMI 530 1919
10
L
L
16
14
DATE NIGHT kl. 6 - 8 - 10
DEAR JOHN kl. 5.40 - 8 - 10.20
EARTH kl. 5.45
SHUTTER ISLAND kl. 8
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
10
12
DATE NIGHT kl. 8 - 10
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl. 6
NÝTT Í BÍÓ!
DATE NIGHT kl. 6 - 8 - 10
DATE NIGHT LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl.5.40 - 8 - 10.20
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D kl.3.40 - 5.50
AÐ TEMJA DREKANN SINN 2D kl.3.40
NANNY MCPHEE kl.3.40
KÓNGAVEGUR kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
BOUNTY HUNTER kl. 8 - 10.25
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR SHREK & KUNG FU PANDA
HEIMSFRUMSÝNING!
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskyldunaÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
L
L
L
CLASH OF THE TITANS 3D kl. 8 - 10:30
CLASH OF THE TITANS kl. 5:40 - 8 - 10:30
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D M/ ísl. Tali kl. 5:50
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 5:50
HOW TO TRAIN YOUR DRAGON M/ ensku. Tali kl. 10:30
HOT TUB TIME MACHINE kl. 5:50 - 8 - 10:10
WHEN IN ROME kl. 5:50 - 8 - 10:10
MEN WHO STARE AT GOATS kl. 8 - 10:30
NANNY MCPHEE AND THE BIG BANG kl. 5:50
THE BLIND SIDE kl. 8
CLASH OF THE TITANS 3D
kl. 6 - 8:10 - 9 - 10:30
HOT TUB TIME MACHINE kl. 3:50 - 6 - 8:10 - 10:20
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D M/ ísl. Tali kl. 3:50 - 6
ALICE IN WONDERLAND 3D kl. 3:50
CLASH OF THE TITANS - 3D kl. 8 - 10:20
HOW TO TRAIN YOUR DRAGON 3D M/ ísl. Tali kl 6
WHEN IN ROME kl. 6
HOT TUB TIME MACHINE kl 8 - 10:20
CLASH OF THE TITANS kl. 8 - 10:20
WHEN IN ROME kl. 8
MEN WHO STARE AT GOATS kl. 10:20
12
12
12
12
12
L
L
L
L
L
L
L
10
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND STÚTFULL AF
SPENNU HASAR OG FLOTTUM TÖLVUBRELLUM
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA Í DAG
Sam Worthington úr Avatar er eini maðurinn sem þorir að berjast við
grísku guðina Seif og Hades ásamt Medúsu og öðrum skrímslum
Hollywood Reporter
- Time
- New York Post
- bara lúxus
Sími: 553 2075
DATE NIGHT kl. 6, 8 og 10 10
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl. 5.50, 8, 10.10 12
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D ÍSL kl. 4 og 6 - 3D L
AÐ TEMJA DREKANN SINN 2D ÍSL kl. 4 L
NANNY MCPHEE AND THE BIG BANG kl. 3.50 L
GREEN ZONE kl. 8 og 10.10 12
H.G. -MBL
Fyrsta sólóplata Umma er
komin út. Hann starfar sem
þrívíddarlistamaður í Lond-
on og hefur unnið við stór-
myndir á borð við Avatar,
Harry Potter og Batman
Begins.
Ummi er fæddur og uppalinn á
Djúpavogi. Hann sló í gegn í stuð-
sveitinni Sólstrandargæjarnir á
síðasta áratug ásamt Jónasi Sig-
urðssyni félaga sínum. Saman
gerðu þeir vinsæl lögin Rangur
maður og Sólstrandargæi. „Þetta
var slys en mjög gott slys,“ segir
Ummi um vinsældirnar. „Það er
æðislegt að heyra hvað það lifir
þetta lag. Ég er mjög stoltur af
því,“ segir hann um slagarann
Rangur maður.
Ummi, eða Unnsteinn Guðjóns-
son eins og hann heitir réttu nafni,
samdi lögin á nýju plötuna á árun-
um 2001 til 2006. Lögin eru þau
fyrstu sem hann gefur út síðan á
Sólstrandar-árunum. Upptökur
fóru fram í Hafnarfirði, Hróars-
keldu, London og Kaupmanna-
höfn, þar sem Jónas bjó áður en
hann flutti heim til Íslands. „Hann
var mín hægri hönd í þessu öllu og
hægra eyra líka,“ segir Ummi um
Jónas, sem gaf árið 2007 út sína
fyrstu sólóplötu sem fékk mjög
góðar viðtökur. „Við höfum alltaf
verið í góðu sambandi og hann er
alveg ómissandi.“
Plata Umma kemur út á vínyl
og í stafrænu formi og inniheld-
ur þrettán lög sungin á íslensku.
Öll lögin og textarnir eru samin af
Umma sjálfum og sá hann einnig
um hönnun á umslaginu, sem er
mjög veglegt, eins og kom fram í
viðtali við hann í Fréttablaðinu á
dögunum.
Ummi segir að Jónas hafi hvatt
sig til að syngja lögin sín sjálfur
í stað þess að fá annan til verks-
ins. „Ég er enginn söngvari,“ segir
hann hógvær. „Þetta var eins og
sálfræðimeðferð. Að geta staðið
með sjálfum sér í staðinn fyrir að
vera allur í hnút. Þetta er meira
frá hjartanu svona.“ Ummi er
sjálfur mikill aðdáandi Pixies auk
þess sem Bob Dylan, Blind Blake,
Billie Holiday og pönkhljómsveitin
Rancid eru í uppáhaldi.
Þessa dagana er hann að vinna
við kvikmyndina John Carter
of Mars sem teiknimyndarisinn
Pixar framleiðir. Þar blandar
fyrirtækið í fyrsta sinn saman
alvöru leikurum og teiknuðum
persónum. Á meðal leikara verða
Willem Dafoe, Thomas Haden
Church og Samantha Morton.
„Þetta er stærsta tæknibrelluverk-
ið sem hefur verið unnið í Lond-
on. Maður finnur fyrir því hvað
þetta er rosalega stórt verkefni,“
segir hann. Leikstjóri er Andr-
ew Stanton, sem skrifaði handrit
Toy Story og leikstýrði Wall-E og
Finding Nemo. Myndin er vænt-
anleg árið 2012 og að sögn Umma
munu um 500 manns vinna við
hana beggja vegna Atlantshafsins
þegar mest lætur.
Ummi stefnir á að fylgja nýju
plötunni eftir með tónleikum hér
á landi seinni part haustsins. Þang-
að til ætlar hann að einbeita sér að
fjölskyldunni því þriðja barn hans
og eiginkonunnar Aðalbjargar
Þóreyjar Ólafsdóttur er væntan-
legt í heiminn í ágúst.
Þeim sem vilja nálgast stafræna
útgáfu af plötunni er bent á heima-
síðuna Gogoyoko.com. Grúskarar
geta síðan leitað uppi vínyl-útgáf-
una sem verður aðeins gefin út í
fimm hundruð eintökum. Nánari
upplýsingar um listamanninn má
finna á Ummi.is. freyr@frettabladid.is
Syngur beint frá hjartanu
UMMI Tónlistarmaðurinn og tæknibrellumeistarinn hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Leikhús ★★★
Lifandi í Landnámssetri
Jón Gnarr
Uppistandssýning í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi.
Samverustund með Jóni Gnarr á
háalofti Landnámsseturssins var
ánægjuleg. Á loftinu sitja áhorf-
endur gegnt hver öðrum og smita
bros og hlátrasköll yfir hið þrönga
gangsvið þannig að eins hlát-
ursgusa verður að bylgjum
allra. Þetta er ekki galið
sviðsrými. Leikarinn,
fórnarlambið, getur ekki
skýlt sér bakvið myndir eða
eigin syndir, heldur á hann
aðeins þann möguleika að
þeytast fram og aftur eftir
þröngri rennunni,
ekki ólíkt spilur-
unum í gömlu
fótboltaspilun-
um eða voru það
íshokkíspil?
Jón Gnarr
gerir Íslend-
inga að yrk-
isefni sínu og
maður getur
náttúrulega
spu r t s ig
hvort ekki sé
búið að fjalla
nóg um þann
hóp manna þar
sem Spaugstofan
og aðrir grínarar
hafa það sem aðal-
markmið að segja
okkur sjálfum frá
því, hvað við séum
stórkostlega furðulega merkileg
og að þrátt fyrir að við kunnum
ekki mannasiði séum við í raun
og veru miklu skemmtilegri en
allar aðrar þjóðir. Þessi söngur
er orðinn svakalega leiðigjarn og
kannski bara hættulegt að þvæla
svona í sjálfsmyndinni í það óend-
anlega? Engu að síður tekst Jóni
Gnarr skemmtilega að sigla inn
í þennan ólgusjó með sinni eigin
nálgun og blanda sjálfum sér og
örlögum sínum inn í frásagnir frá
löngu liðnum tíma. Hann fjallar
meðal annars um húmorinn sem
lifað hefur með þjóðinni gegn-
um aldir, um hið bráðfyndna
við að höggva menn í herðar
niður og annað ofbeldi forn-
kappanna. Það er ekki nein
eiginleg atburðarás í sögu-
stundinni heldur hleypur
hann svolítið úr einu
í annað en grunn-
þemað er þó þetta
sama: „Þannig
erum við Íslend-
ingar“.
Ég er ekki í
nokkrum vafa
um að marg-
ir eiga eftir
að leggja leið
sína upp í hið
menningarlega
Landnámsset-
ur, njóta þar
frábærra veit-
inga og fallegrar
sýningar frá Borg-
arfirði, auk þess að
hlæja og gleyma
þeim leiðindum sem
sturtast yfir okkur í
daglegum fréttum.
Þó svo að Jón Gnarr geri fyrst
og fremst út á vitleysingaháttinn
í landanum þá er nú engu að síður
niðurstaðan sú, að hvað sem raul-
ar og tautar lendir landinn alltaf
standandi. Að því leyti er þetta
bara holl og góð afþreying, fyrir
utan að mörgum þykir það gott að
mannanafnanefnd sé rassskellt
svolítið fyrir sína fáránlegu starf-
semi og ljósi varpað á þá klikkun
að vera með þykkan glervegg og
míkrafóna á þeim klefum þar sem
bíómiðar eru seldir. Það voru mörg
smá og sniðug atriði úr daglega líf-
inu sem ekki aðeins kitluðu hlát-
urtaugarnar heldur vöktu einnig
umhugsun, vonandi. Eins og til
dæmis þegar hann sagði frá því að
faðir hans hefði fengið synjun frá
Tryggingarstofnun vegna umsókn-
ar um neyðarhnapp. Honum var
sent svarbréf þess efnis þónokkru
eftir að hann lést.
Það sem einkennir aðferðina hjá
Jóni Gnarr í þessari sýningu er að
hann laumar inn frásögnum og
skellir sér svo bratt inn með ein-
hverja absúrd staðhæfingu eða
andstæðu. Hann virtist sjálfur
njóta þess að gleðja og gerði það að
umtalsefni hvernig ferillinn hófst
og þróaðist. Aðalatriðið er auðvit-
að hvernig hlutirnir eru sagðir og
svo hin svokallaða tæming, sem er
hluti af því að koma fólki á óvart.
– Vitiði af hverju ljóskan drap sig?
Umhugsun. Svar: Hún var svo
rosalega þunglynd. Ekki fyndið á
blaði en hægt að segja þannig að
fullur salur af fólki veltist um af
hlátri. Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Ekki galin kvöld-
skemmtun.
Jón Gnarr á grínbuxum