Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 FÆTUR húsmæðra og -feðra fá sjaldan frí. Meðan hend- urnar vinna mikið verk í eldhúsinu fyrir kvöldmatartíma er því ekki úr vegi að huga að tánum. Það má gera með því að koma sér upp mjúkri mottu til að standa á. „Ég á ýmsa fallega muni eftir langömmu mína, Ragnheiði Ester Einarsdóttur og einn af þeim er þessi hilla. Mér þykir mjög vænt um hana,“ segir Sylvía og sýnir forkunnarfallega útskorna hillu í herberginu sínu. „Ég var með þessa hillu þegar ég var lítil og þá raðaði ég öllum dúkkunum og dýrunum á hana. Hún hefur alltaf fylgt mér og mömmu.“ Nú hafa leikföngin vikið fyrir þremur biblíum, einni stórri og tveimur minni. „Stóra biblían er orðin forngripur því amma mín fékk hana í fermingargjöf frá ömmu sinni og afa, eina fékk ég fyrir ferminguna mína í fyrra og mamma á þá þriðju,“ útskýr- ir Sylvía sem verður fimmtán ára á þessu ári og fer í tíunda bekk í haust. Hillan er úr tré og er hagan- lega gerð því í henni eru hvorki naglar né skrúfur. „Sá sem smíð- aði hana hafði gert hana sem sveins-eða meistarastykki þegar hann útskrifaðist úr Iðnskólan- um,“ upplýsir Sylvía en kveðst ekki muna hvar langamma henn- ar hafi keypt hana. Ekki getur hún heldur spurt því Ragnheiður Ester lést árið 2002. „Við áttum sama heimili frá því ég fæddist þar til hún dó,“ segir Sylvía. „Ég á líka skartgripaskrín eftir hana en af því ég er nýflutt þá er ég ekki búin að taka það upp.“ gun@frettabladid.is Hilla fyrir helgar bækur Það er ekkert venjulegt unglingaherbergishúsgagn sem hin fjórtán ára Sylvía Lind Ingólfsdóttir heldur mest uppá af sínum munum, heldur hilla sem langamma hennar keypti í fornverslun á sínum tíma. Öfugt við marga unglinga hefur Sylvía Lind gaman af gömlum hlutum sem fylgt hafa fjölskyldunni. Kisan hennar heitir Snúlla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Listh STILLANLEG RÚM HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR Queen rúm með botni kr. 179.900 SAGA, ÞÓR OG VALHÖLL Heilsudýnur á frábæru verði. Queen rúm með botni frá kr. 99.900 Gleðilegt sumar! www.svefn.is 2x90 cm – Verð frá 349.900 Allar vörur með 20% afslætti til 21 maí Opið: má-fö. 12:30-18 www.nora.is Rauðu múrsteinshúsunum Dalvegi 16a, Kóp. 201 - S: 517 7727 í bústaðinn - á heimilið Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.