Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 43

Fréttablaðið - 17.05.2010, Page 43
MÁNUDAGUR 17. maí 2010 27 FÓTBOLTI „Það var miklu meira í húfi en þessi þrjú stig, það var Hafnar- fjarðarstoltið,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson, aðstoðarþjálfari FH, eftir sigur liðsins gegn Haukum í gær. „Við vissum að þetta yrði erf- iður leikur og eiga Haukarnir hrós skilið fyrir góða frammistöðu.“ Beðið var með mikilli eftir- væntingu eftir þessum granna- slag Hauka og FH en leikurinn hefur væntanlega valdið mörgum vonbrigðum. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og baráttan inni á vellinum var mun minni en búist var við. Haukar voru síst lakari aðil- inn og áttu tvívegis sláarskot. Fyrst var það Hilmar Geir Eiðs- son í fyrri hálfleiknum og svo átti Arnar Gunnlaugsson skot í slá úr aukaspyrnu í seinni hálfleiknum og hefði þá getað jafnað metin. En heppnin var með FH-ingum og kom eina mark leiksins á 83. mínútu þegar boltinn barst út til Bjarnar Daníels Sverrissonar sem kláraði færið virkilega vel. FH- ingar í stúkunni fögnuðu gífurlega og snéru sér í átt að Haukastuðn- ingsmönnum þegar þeir gerðu það. Það var enginn meistarabragur á spilamennsku FH. „Nei það er kannski ekki við því að búast þegar það er svona mikið í húfi, þá eru menn kannski hátt uppi og stress- aðir á boltanum. Það var ekki mikið að sjá af góðum fótbolta í dag. Leik- urinn var í járnum og fullt af fólki að horfa, ég held að það hafi skipt sköpum,“ sagði Jörundur. Hann viðurkennir að hann og Heimir hafi verið hræddir um að markið myndi ekki koma. „Við vorum alveg skíthræddir um það. Bjössi kláraði þetta vel á góðum tíma og við héldum þetta út. Von- andi erum við komnir núna á beinu brautina,“ sagði Jörundur. Margir leikmenn FH voru langt frá sínu besta en Gunnleifur Gunn- leifsson var gríðarlega öruggur í rammanum og varði vel þegar á þurfti að halda. Norðmaðurinn Torger Motland hefur lítið fram að færa og segir sitt að hann var tekinn af velli fyrir bakvörð þegar staðan var enn markalaus. Haukar stóðu vel í FH-ingum og eru líklega sársvekktir með að fá ekkert úr þessum leik. Hilmar Geir var gríðarlega öflugur á vængnum og skapaði mikla hættu hvað eftir annað. Markvörðurinn Daði Lárus- son var flottur gegn sínum fyrrum samherjum og Arnar Gunnlaugs- son er gríðarlega mikilvægur sókn- arlega. Daði sagði að tilfinningin hefði ekki verið neitt sérstaklega öðru- vísi þrátt fyrir að hann hafi verið að leika gegn FH. „Það er mikið sjálfstraust í liðinu og menn eru mjög einbeittir á þetta þrátt fyrir allt það umtal sem á sér stað. Við vorum að leika vel og vorum í raun óheppnir að fá ekkert úr leiknum,“ sagði Daði. Haukar náðu í stig á KR-vellin- um í fyrstu umferð og voru veru- lega óheppnir að fá ekkert úr leikn- HAUKAR 0-1 FH 0-1 Björn Daníel Sverrisson (83.) Vodafonevöllur, áhorf.: 2200 Jóhannes Valgeirsson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 14–11 (4–3) Varin skot Daði 3 – Gunnleifur 4 Horn 3–5 Aukaspyrnur fengnar 13–9 Rangstöður 1–4 Haukar 4–5–1 Daði Lárusson 7 - Pétur Sæmundsson 5, Kristján Ómar Björnsson 5, Daníel Einarsson 6, Gunn- ar Ásgeirsson 4 (87., Úlfar Pálsson -) - Hilmar Trausti Arnarsson 6, Sam Manton 4, Hilmar Rafn Emilsson 4 (87. Kristján Óli Sigurðsson -), Guðjón Lýðsson 5, *Hilmar Geir Eiðsson 7 - Arnar Gunnlaugsson 7. FH 4–3–3 Gunnleifur Gunnleifsson 7 - Guðmundur Sævarsson 4, Tommy Nielsen 6, Hafþór Þrastarson 5, Pétur Viðarsson 4 - Gunnar Már Guðmundsson 5 (38., Jacob Neestrup 5), Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 5, Björn Daníel Sverrisson 7 - Ólafur Páll Snorrason 6, Atli Viðar Björnsson 6, Torger Motland 3 (70, Hjörtur Logi Valgarðsson 6). Ómissandi Hrein íslensk náttúruafurð ms.is E N N E M M / S ÍA / N M 4 18 5 0 Kópavogsvöllur, Áhorf: 1186 Breiðablik Fram TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–10 (7–6) Varin skot Ingvar 4 – Hannes 4 Horn 2–4 Aukaspyrnur fengnar 19–17 Rangstöður 0–3 FRAM 4–5–1 Hannes Þór Halldórs. 7 Daði Guðmundsson 6 Samuel Tillen 6 Kristján Hauksson 6 Jón Guðni Fjóluson 6 Halldór Herm. Jónss. 5 Jón Gunnar Eysteinss. 5 Almarr Ormarrson 6 Tómas Leifsson 7 (86. Joe Tillen -) Ívar Björnsson 7 Hjálmar Þórarinsson 7 (54., Guðm. Magnús 7) *Maður leiksins BREIÐAB.4–3–3 Ingvar Þór Kale 6 Árni Kr. Gunnarsson 5 Elfar Freyr Helgason 6 Kári Ársælsson 5 *Kristinn Jónsson 7 Kristinn Steindórss. 7 (63., Guðm. Kristj. 6) Jökull Elísarbetarson 6 Finnur Orri Margeirs. 5 Haukur Baldvins. 7 (83., Olgeir Sig. -) Alfreð Finnbogason 6 Guðmundur Péturs. 6 1-0 Guðmundur Pétursson (33.) 2-0 Alfreð Finnbogason (47.) 2-1 Guðmundur Magnússon (65.) 2-2 Ívar Björnsson (78.) 2-2 Gunnar Jarl Jónsson (7) KR-völlur, Áhorf.: 2.194 KR Selfoss TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 13–8 (6–6) Varin skot Lars 0, Þórður 3 – Jóhann 6 Horn 4–7 Aukaspyrnur fengnar 12–15 Rangstöður 5–1 SELFOSS 4–5–1 Jóhann Ólafur Sig. 7 Sigurður Guðlaugss. 6 Arilíus Marteinsson 6 Agnar Bragi Mag. 5 Andri Freyr Björnsson x (88., Jón Sveinsson -) Ingólfur Þórarinsson 7 *Sævar Þór Gíslas. 7 (75., Kjartan Sig. 6) Guðmundur Þórarins. 7 Stefán Guðlaugsson 6 Jón Daði Böðvarsson 7 Jón Guðbrandsson 6 *Maður leiksins KR 4–4–2 Lars Ivar Moldsked - Bjarni Guðjónsson 6 Skúli Jón Friðgeirss. 6 Baldur Sigurðsson 6 Óskar Örn Haukss. – (13., Þórður Ingas. 6) Björgólfur Takefusa 6 Viktor Bjarki Arnars. 5 (65., Guðm.Reynir 6) Mark Rutgers 6 (46., Kjartan Henry 5) Gunnar Örn Jónsson 6 Guðjón Baldvinsson 6 Jordao Diogo 5 0-1 Ingólfur Þórarinsson, víti (13.) 0-2 Jón Daði Böðvarsson (53.) 2-1 Baldur Sigurðsson (86.) 1-2 Þorvaldur Árnason (7) Montrétturinn er hjá þeim hvítu Það var enginn meistarabragur á FH-ingum á móti nýliðum Hauka á Vodafone-vellinum í gær en Björn Daníel Sverrisson tryggði þeim öll þrjú stigin þremur mínútum fyrir leikslok. um í gær. Í næstu umferð er síðan komið að öðruvísi prófi, leik gegn hinum nýliðum deildarinnar. FH- ingar eru með fjögur stig þó lítill meistarabragur hafi verið í fyrstu tveimur leikjunum og ljóst að liðið á enn mikið inni. elvargeir@frettabladid.is FÓTBOLTI Breiðablik tók á móti Fram í annarri umferð Pepsi deildarinnar . Fyrir fram var búist við jöfnum og spennandi leik og sú varð raunin. Lokatölur urðu 2-2. Fyrri hálfleikur var vægast sagt daufur en öllu meira líf var í þeim síðari. Leikurinn var að mestu tíðindalaus fram að 33 mín- útu en þá skallaði Guðmundur Pétursson boltann í netið eftir góðan undirbúning Hauks Baldvinssonar. 1-0 í hálfleik fyrir heimamenn. Alfreð Finnbogason skoraði stórglæsi- legt mark á 47. mínútu og leikurinn virtist eign Blika. Framarar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn á 65. mínútu, þar var að verki varamað- urinn Guðmundur Magnússon. Við það lögðust Blikar allt- of mikið aftur á völlinn og loks jafnaði Ívar Björnsson leikinn á 78. mínútu og þar við sat. Kári Ársælsson fyrirliði Breiðabliks var vonsvikinn í leikslok „Það er alveg hrikalega dap- urt hjá okkur að missa 2-0 forystu niður í 2-2 og þetta hefur komið fyrir áður hjá okkur gegn Fram og ég skil ekki hvernig þeir nenna að gera alltaf jafntefli við okkur. Við föllum bara alltof mikið niður eftir að hafa komist í 2-0 og hleypum þeim þar af leiðandi inn í leikinn“. Blikarnir gerðu þó nokkrar breyt- ingar frá tapleiknum gegn Keflavík og virtist það að einhverju leyti skila sér í betri sóknarleik. Haukur Baldvinsson sem kom nýr inn í liðið var með sprækari mönnum framan af en dró af honum í þeim síðari. Kristinn Jónsson var traustur í bakverðinum og gerði vel í aðdraganda seinna marks Breiðabliks. Alfreð og Guðmundur Pétursson hafa oft verið aðsópsmeiri í framlínunni en kláruðu þó mörkin sín vel. Alfreð getur nagað sig í bæði handar- bökin eftir að hafa klúðrað besta færi leiksins á 91. mínútu og misst þar af tækifærinu til þess að tryggja stigin 3. Framarar virtust hálf þróttlitlir framan af leik og það var ekki fyrr en hinn ungi framherji Guðmundur Magnússon kom inn á sem eitthvað fór að gerast fram á við. Guðmundur er stór, sterkur og lætur finna fyrir sér og hann var réttur maður á réttum stað er hann minnkaði muninn og kom Frömurum inn í leikinn að nýju. Sam Tillen átti sína spretti og skapa horn og aukaspyrnur hans oft hættu. Tómas Leifsson var einn- ig drjúgur og greinilegt á öllu að hann hefur aðlagast Framliðinu vel. Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram- ara var ánægður með stigið úr því sem komið var. „Það var svo sem margt gott í þessu hjá okkur en eftir að hafa lent 2-0 undir þá sættir maður sig við stigið þó maður vilji auðvitað alltaf vinna.“ - ari Framarar lentu 0-2 undir í Kópavogi en náðu að tryggja sér 2-2 jafntefli í lokin: Blikar misstu frá sér sigurinn ALFREÐ FINNBOGASON Stórglæsilegt mark hans dugði ekki til. FRÉTTBLAÐIÐ/VALLI FR ÉT TB LA Ð IÐ /V A LL I BARIST UM BOLTANN FH-ingurinn Tommy Nielsen og Haukamaðurinn Arnar Gunnlaugsson sjást hér í barátt- unni í gær en þeir léku áður saman í FH-liðinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.