Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 10
10 17. maí 2010 MÁNUDAGUR Sala Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. var auglýst 27. apríl síðastliðinn, en félagið á og rekur verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi. Þann dag hófst formlegt söluferli sem Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast í umboði eiganda. Fasteignafélag Íslands ehf., sem er eigandi Eignarhalds- félagsins Smáralindar ehf., á einnig nærliggjandi lóðir sem keyptar voru til að þróa verslunarmiðstöðina Smáralind og næsta umhverfi hennar. Fasteignafélag Íslands ehf. hefur ákveðið að gefa fjárfestum kost á að bjóða í viðkomandi lóðir samhliða því að bjóða í allt hlutafé Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. Lóðirnar eru sunnan Smáralindar, við Hagasmára og Hæðasmára. Þessar lóðir verða hvorki seldar sérstaklega sem heild né heldur stakar, heldur er ætlunin sú að gefa kaupanda verslunarmiðstöðvarinnar tækifæri til að eignast þær jafn- hliða kaupum á Smáralindinni. Nánari upplýsingar eru á vef Landsbankans, www. landsbankinn.is, en sölugögnum hefur verið breytt með tilliti til ofangreinds. Lokafrestur til að óska eftir þátttöku í söluferlinu rennur út þann 25. maí 2010. E N N E M M / S ÍA / N M 4 2 19 0 LANDSBANKINN | landsbankinn.is | 410 4000NB I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . Tilkynning vegna sölu verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar DÓMSMÁL Ríkisendurskoðun segir lítinn hluta sekta vegna skattalaga- brota innheimtast og megi gera ráð fyrir að meirihluti þeirra sem fundnir verði sekir um skattalaga- brot á næstunni afpláni refsingu sína í formi samfélagsþjónustu. Fram kom á vefsíðu Ríkisendur- skoðunar í vikunni að frá júlí 2008 fram til mars á þessu ári hafi Fang- elsisstofnun borist mál 44 einstakl- inga sem dæmdir höfðu verið til að greiða sektir sem voru níu milljónir króna eða hærri. Samanlögð sektin hljóðaði upp á 1,3 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum sem Ríkis- endurskoðun hafi aflað sér hafi 81 prósent sekta verið greidd með samfélagsþjónustu. „Okkur fannst rétt að vekja athygli á þessu. Það hefur gengið mjög illa að innheimta sektir vegna skattalagabrota,“ segir Sveinn Ara- son ríkisendurskoðandi. Hann bend- ir á að samkvæmt íslenskum lögum felist refsingar ýmist í fésekt eða fangelsi. Geti maður sem dæmdur er til sektar ekki greitt hana þurfi viðkomandi að afplána vararefsingu í formi fangelsisvistar. Undanfarin ár hefur vararefsing vegna hvít- flibbabrota nær ávallt verið afplán- uð með samfélagsþjónustu vegna skorts á fangelsisrýmum. Hámark refsingarinnar er sex mánuðir. Ríkisendurskoðun bendir jafn- framt á að þeim hafi fjölgað sem logið hafi til um greiðslugetu sína og frekar viljað inna af hendi sam- félagsþjónustu. Efla verði úrræði yfirvalda til að kanna fjárhags- Hertar aðgerðir til að innheimta sektir Ríkisendurskoðun segir lítinn hluta sekta vegna skattabrota verða greiddan. Margir þykist ekki eiga fyrir sektum og geri upp með samfélagsþjónustu. Pláss eru til fyrir hvítflibbabrot. Það ýtir við mönnum, að sögn dómsmálaráðherra. GENGUR ILLA AÐ INNHEIMTA Sveinn Arason ríkisendurskoðandi t.v. segir illa ganga að innheimta sektir vegna skattalagabrota. Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra segir fangelsisboðun vegna fésekta hvetja fólk til greiðslu þeirra. Fyrir skömmu var frá því greint að rúmlega þrjátíu fyrrverandi stjórnendur hjá Glitni og Kaupþingi hafi fengið bakreikning frá Ríkisskattstjóra vegna söluréttasamninga. Dæmi séu um að menn hafi hagnast um hálfan milljarð á þeim. Skattayfirvöld töldu að færa hefði átt söluréttarsamningana sem launatekjur fremur en fjármagnstekjur. Þá voru taldar líkur á að fyrrverandi stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Glitnis muni þurfa að greiða tugi milljóna króna í skatt vegna ólögmætra arðgreiðslna sem þeir fengu í sinn hlut. Glitnir veitti lán til arðgreiðslnanna. Staðgreiðsluskattur af vaxtatekjum nema nú 18,0 prósentum en skattur á launatekjur eru á bilinu 37,22 til 46,12 prósent. Háar sektir fyrrverandi stjórnenda FÉLAGSMÁL Brýnt er að efla atvinnulíf- ið og vinna gegn íþyngjandi áhrifum atvinnuleysis til að draga úr áhrifum kreppunnar á þá hópa sem verst verða úti. Þetta er niðurstaða skýrslu Rauða kross Íslands sem kom út á föstudag. Í skýrslunni var leitast við að svara þeirri spurningu hvar þrengir að í kreppunni. Skýrsluhöfundar telja ungt fólk og börn verða verst úti. Fimm hópar verða verst úti í kreppunni, samkvæmt skýrslunni. Það eru atvinnulausir, barnafjölskyldur og einstæðir foreldrar, innlytjendur, öryrkj- ar, sem og börn og ungt fólk sem skortir tækifæri. Ástæða er til að óttast að heil kynslóð ungs fólks festist í langtímaatvinnuleysi og týnist í fátækt, að mati skýrsluhöf- unda. Fátækt kemur öðruvísi við börn en fullorðið fólk og því eru börn sérlega berskjölduð í kreppunni. Fram kemur í skýrslunni að miklu skipti hversu lengi kreppan vari. Langvarandi fátækt getur haft áhrif á börn langt fram á fullorð- insár. Það getur til dæmis gerst þegar fátækt dregur úr þátttöku í tómstunda- starfi, að því er fram kemur í skýrslu Rauða krossins. Það geti leitt til einangr- unar, og valdið því að börnin verði utan- veltu í samfélaginu. - bj Ungt fólk og börn verða verst úti í kreppunni samkvæmt skýrslu Rauða krossins: Brýnt að vinna gegn áhrifum atvinnuleysis KYNNING Skýrsla um áhrif kreppunnar, sem unnin var fyrir Rauða kross Íslands, var kynnt á málþingi Rauða krossins. HELLNAR Tíu hús eru seld í nýrri húsaþyrpingu sem risin er á Helln- um. Þegar hafa tólf hús verið reist en grunnar hafa verið lagðir að sautján húsum og verður lokið við að byggja þau í sumar, að sögn Búa Kristjánssonar verkefnastjóra framkvæmdanna. Búi segir norska fjárfesta hafa keypt húsin haustið 2008, skömmu fyrir hrun. Þau voru þá komin í eigu Landsbankans sem hafði eignast þau eftir gjaldþrot fyrri eigenda. Uppi voru um miðjan áratuginn áform um að reisa á Hellnum 200 íbúðahúsa þorp, frístundabyggð sem átti að heita „Plássið undir jökli,“ og áttu þar samkvæmt lýs- ingum að vera lista- og handverks- gallerí, verslanir og hótel, allt sem vera þyrfti til staðar í „íbúðar- vænu þorpi“. Að sögn Búa eru slíkar stór- framkvæmdir ekki á dagskrá nú og munaði meira að segja litlu að eigendurnir hættu við að ljúka við húsin í ljósi slæmra efnahags- aðstæðna. Skriður komst svo á málin síðasta vor og var afráðið að ljúka við þau sautján hús sem haf- ist hafði verið handa við. Síðasta haust kom svo kippur í sölu hús- anna sem hafa verið seld á verðbil- inu 12 til 16 milljónir króna eftir stærð. „Það er bara þokkaleg- ur áhugi á þessu,“ segir Búi sem segir tvo til þrjá vinna að staðaldri við framkvæmdir og frágang við húsin en allt að sjö til átta vinni þarna þegar flestir séu á svæðinu. - sbt Norskir fjárfestar selja Íslendingum sumarhús á Snæfellsnesi: Húsaþyrping risin á Hellnum HÚSAÞYRPING Á HELLNUM Húsin eru flutt inn frá Noregi og minna frekar á gömul hús í eldri kaupstöðum landsins en á hefðbundin sumarhús íslensk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Grunur um fíkniefnaakstur Lögreglan á Blönduósi stöðvaði bílstjóra fyrir hraðakstur á laugardag. Ástæða þótti til að kanna hvort öku- maðurinn væri undir áhrifum fíkniefna og er beðið eftir niðurstöðum úr blóð- prufu. Í fórum hans fundust einnig sterar, sem lögreglan gerði upptæka. stöðu þeirra sem fundnir eru sekir um hvítflibbabrot þegar háar sekt- ir blasi við. Ragna Árnadóttir dómsmálaráð- herra segir unnið að því að fjölga fangaplássum og vísar til þess að fangelsið Bitra í Flóahreppi verði opnað á föstudag. Seint í síðasta mánuði voru þangað komnir fimm fangar en nokkur pláss eru frátek- in fyrir þá sem boðaðir hafa verið til að afplána vararefsingu vegna fésekta. „Með því einu að boða fólk til afplánunar út af fésektum mynd- ast hvati til að greiða þær,“ segir hún. jonab@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N SKÓLAMÁL Auður Hrólfsdóttir, skólastjóri Engidalsskóla, segir rangt hjá Magnúsi Baldurssyni, fræðslstjóra Hafnafjarðar, að hún hafi sent fimm starfsmönn- um skólans bréf og tengt upp- sagnir þeirra við fyrirhugaða sameiningu Engidalsskóla og Víðistaðaskóla. „Þessum starfsmönnum voru aldrei send uppsagnarbréf,“ segir Auður. „Þeir voru allir ráðnir til eins árs og var send tilkynning um breyttar forsendur í skól- anum vegna sameiningar skól- anna og að ársráðning þeirra rynni út.“ Auður bætir við að við afhendingu bréfanna hafi verið tekið fram að reynt yrði að finna starfsmönnunum annað starf innan sameinaðs skóla. „Þetta hefur því alls ekkert með upp- sagnir að gera.“ - bs Skólastjóri Engidalsskóla: Sendi engin uppsagnarbréf 16 drepnir við þingfund 16 óbreyttir borgarar létust í Sómalíu fyrir helgi þegar ráðist var á fundarstað þingsins. Þetta var fyrsti þingfundur ársins en hryðjuverkahótanir hafa komið í veg fyrir fundi hingað til. SÓMALÍA Rafvæðing bíla rannsökuð Rafbílaleigu fyrir starfsmenn og nem- endur Háskólans í Reykjavík verður ýtt úr vör í dag. Rafbílaleigan er hluti af rannsóknarverkefni HR og er mark- miðið að kanna forsendur rafvæðing- ar bílaflota Reykavíkinga. SAMGÖNGUR LÖGREGLUFRÉTTIR GRÍMUKLÆDDUR Margir settu upp grímur á brúðuhátíð í Bangalore á Indlandi. Hátíðin var haldin til að vekja athygli á hefðbundinni indverskri brúðugerð en hún hefur verið á undanhaldi. NORDIPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.