Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 20
17. MAÍ 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Þegar vorar fara margir að huga að því að viðar-
verja sólpallinn. Gott ráð til þess að komast að því
hvort viðarverja þarf pallinn er að sprauta á hann
vatni. Seytli vatnið ofan í viðinn þarf að viðarverja
hann en fljóti það ofan á pallinum þarf þess ekki
þótt gott geti verið að bera pallaolíu á hann.
Ef pallurinn er ekki nýr er góð hugmynd að
bera á hann hreinsiefni áður en viðarvörnin er
borin á. Eftir að hreinsiefnið hefur verið borið
á og það síast inn í viðinn er pallurinn hreinsað-
ur með vatni. Þá á að leyfa pallinum að þorna í
það minnsta tvo daga áður en viðarvörn er borin á
hann. Heimild: www.husa.is
MIKIÐ ÚRVAL
GOTT VERÐ
Gildir
til 31.
maí 2
010
Rauðhellu 11, Hfj.
( 568 2035
Hjallahrauni 4, Hfj.
( 565 2121
Dugguvogi 10
( 568 2020
GOTT VERÐ OG
FRÁBÆR
GREIÐSLUKJÖR
fyrir þá fjölmörgu sem þurfa
að kaupa ný dekk fyrir sumarið.
Dekk undir:
■ Fólksbíla
■ Jeppa
■ Mótorhjól
■ Sendibíla
■ Vörubíla
■ Rútur
■ Vinnuvélar
■ Traktora
■ Hjólhýsi
■ Kerrur
o.s.frv., o.s.frv.
www.pitstop.is
VAXT
ALAU
ST
VISA & MAS
TE
RC
A
R
DGildir til 3
1. m
aí 20
10
VA
X
TA
LA
US
T Í
AL
LT AÐ 6 MÁNUÐI
● GRILL ÞARFNAST LÍKA VIÐHALDS Það dugar ekki að hafa
pallinn í standi ef grillinu er ekki viðhaldið af sömu natni, og auðvelt
að missa matarlyst þegar kótelettum er skellt ofan á kámuga grillgrind
sem er orðin svört af ösku og gömlum matarleifum frá fyrri grilldög-
um. Fylgdu þessum auðveldu leiðbeiningum til að gera grillið eins og
nýtt, en hafðu líka hjá þér hreinsunarleiðbeiningar framleiðandans ef
einhverjar fylgdu með í kaupunum. Það eina sem þarf eru gömul dag-
blöð, hanskar, fata með sápuvatni, ofnhreinsir, vatnsslanga, grillbursti
og svampur með grófri hlið.
1. Ef um gasgrill er að ræða skaltu aftengja gaskútinn.
2. Opnaðu grillið og losaðu grillgrindur og brennaralok. Notaðu grill-
bursta til að bursta af grindunum lausa ösku og óhreinindi.
3. Skrúbbaðu brennaralok í sápuvatni, skolaðu vel og láttu þorna.
4. Settu grillgrindur á dagblöð þar sem síðan má spúla þær með vatns-
slöngu. Farðu eftir leiðbeiningum þegar þú úðar á þær ofnhreinsi
báðum megin. Leyfðu hreinsinum að vinna á óhreinindunum,
notaðu hanska til verksins og gættu þess að anda ekki úðanum að
þér eða láta hann komast í tæri við húð eða augu.
5. Skrúbbaðu af óhreinindi sem ofnhreinsirinn hefur losað og skolaðu
grindurnar vel með vatni.
6. Fjarlægðu öskubakkann, ef slíkur er í grillinu, og losaðu ösku í rusla-
poka. Skrúbbaðu fyrst, þvoðu svo með sápuvatni og skolaðu á eftir.
7. Ef brennarar virka ekki sem skyldi þarf að fjarlægja þá og hreinsa
eftir leiðbeiningum framleiðanda.
8. Settu nú allt á sinn rétta stað í grillinu. Notaðu svamp og sápuvatn
til að þvo grillið að utan, og grófari hlið svampsins ef óhreinindin
standa á sér, en gættu þess að rispa ekki. Strjúktu af með hreinu
vatni og þurrkaðu með þerriklút.
9. Til að fyrirbyggja að óhreinindi hlaðist upp við grilleldamennsku
skaltu leyfa því að loga í tíu mínútur eftir eldun. Látið kólna áður
en grillburstinn er mundaður á ný. Eldaðu alltaf á hreinu grilli til að
koma í veg fyrir að bakteríur hreiðri um sig og láttu það hitna vel
áður en matur er settur á grillið.
Ef sett er ný viðarvörn yfir gamla er valinn svipaður eða dekkri
litur heldur en er fyrir. NORDICPHOTOS/GETTY
Sólpallurinn viðarvarinn
Eldhús er skemmtilegt að
poppa upp með björtum
litum, sérstaklega þar sem
innréttingar eru að jafnaði í
fremur hlutlausum litum,
hvítar og svartar
eða úr brúnleit-
um viði.
Auðveldast er að
smokra litum inn
í eldhúsið í formi fylgi-
hluta. Getur það verið allt
frá skærgulri sítrónupressu eða
eldrauðri ruslafötu. Þegar keypt-
ir eru fylgihlutir inn í eldhúsið er
gaman að velja sér einn eða tvo
liti til að hafa sem megin
þemað, til dæmis gulan og
rauðan saman, bláan
og grænan eða bleik-
an og fjólubláan. Það
kemur oft betur út en
að kaupa alls kyns liti
og blanda saman.
Hvítar háglansandi inn-
réttingar fara vel með flest-
um skærum litum og betra að
hafa litina skærari til að þeir
virki ekki þunglamalegir. Eldrauð-
ur er til dæmis betri en vínrauður.
Eikarinnréttingar eru sömuleiðis
auðveldar til að raða litum saman
við en sé innréttingin úr dekkri
viði, hnotu, eða tekki, er betra að
bera litina saman við. Bjartir litir,
svo sem heiðgulur, ljósblár og
aðrir pasteltónar eiga til dæmis
oft betur við tekkið en skærappel-
sínugulur og dökkblár.
Veggi eldhússins getur verið
gaman að leika sér með, sérstak-
lega þar sem veggfletir eru oft
litlir vegna innréttinga. Þannig
má mála smábút sægrænan eða í
grænbláum tón. Í raun er eldhúsið
einn skemmtilegasti staðurinn til
að leika sér með liti, þar sem það,
með öllum sínum fylgihlutum og
matarstússi, býður upp á að nota
liti fremur en margir aðrir staðir
í húsinu. -jma
Áhrifamáttur eldhúslita
Í hvítum innréttingum má útbúa óvæntar „uppákomur“ með því að hafa vinnuborð,
sem toga má út, í eldrauðum lit. NORDICPHOTOS/GETTY
Takið eftir veggfletinum ofan við innréttinguna sem málaður er í blágrænum tón og hvað það lífgar upp á eldhúsið í heild.
Klassískt eldhús með litabrögðum hér
og þar.