Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 6
6 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
Ert þú farin(n) að skipuleggja
sumarfríið?
JÁ 49,9%
NEI 50,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu ánægð(ur) með störf
sérstaks saksóknara vegna
bankahrunsins?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÓMSMÁL Jón Ásgeir Jóhannes-
son á ekki lengur sæti í stjórn
Iceland verslunarkeðjunnar í
Bretaland, að því er fram kemur
í breska dagblaðinu Daily Mail.
Þar með er hann genginn úr
öllum stjórnum sem hann sat
áður í.
Brotthvarf Jóns Ásgeirs úr
stjórnum tengist stefnu slita-
stjórnar og skilanefndar Glitnis,
sem og kröfu um kyrrsetningu
allra hans eigna.
Frestur Jóns til að leggja fram
tæmandi lista yfir eignir sínar
fyrir breskum dómstóli vegna
kyrrsetningarkröfunnar var
fyrir helgi framlengdur fram til
klukkan 14 í dag. - bj
Fær frest til að skila eignalista:
Þarf að hætta í
stjórn Iceland
SVEITASTJÓRNARMÁL Atvinnumál eru
forgangsmál hjá Samfylkingunni í
Reykjavík fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar, en flokkurinn
kynnti stefnuskrá sína í Kolaport-
inu í gær.
„Samfylkingin vill binda endi
á aðgerðaleysið og hrinda mark-
vissum og mikilvægum aðgerðum
í framkvæmd í atvinnumálunum,“
segir í stefnuskránni. Átak í nýsköp-
un og nýtingu á tómu húsnæði, end-
urnýjun í eldri hverfum og auknar
verklegar framkvæmdir eru nefnd
sem dæmi um þetta.
Flokkurinn segist vilja auka sam-
starf á höfuðborgarsvæðinu til að
tryggja heildaryfirsýn yfir það.
Þá vill hann tryggja öllum börnum
borgarinnar örugga þjónustu og
ódýrari frístundir. Jafnframt segir
í stefnuskránni að Samfylkingin
hafni öllum hugmyndum um einka-
væðingu Orkuveitunnar og leggi
áherslu á að unnið verði á skulda-
vanda fyrirtækisins.
Að mati Samfylkingarinnar hafa
borgarmálin verið í kreppu allt kjör-
tímabilið. Það sé lykilatriði að end-
urvekja traust á borgarstjórninni,
það verði aðeins gert með markviss-
um umbótum. - þeb
Samfylkingin í Reykjavík kynnti stefnuskrá sína í Kolaportinu í gær:
Atvinnumálin í forgangi
Í KOLAPORTINU Dagur B. Eggertsson
oddviti Samfylkingarinnar kynnti stefnu-
skrána ásamt öðrum frambjóðendum.
DÓMSMÁL Enginn hinna fjögurra
fyrrum forsvarsmanna FL Group
,sem grunaðir eru um brot á lögum
um virðisaukaskatt, á nægar eign-
ir hér á landi til að greiða mögu-
legar sektir vegna málsins. Því
gæti tollstjórinn, fyrir hönd skatt-
rannsóknarstjóra, krafist þess að
fjórmenningarnir verði teknir til
gjaldþrotaskipta.
Skattrannsóknarstjóri hefur
farið fram á að eignir Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, Hannes-
ar Smárasonar, Jóns Sigurðsson-
ar og Skarphéðins Berg Steinars-
sonar verði frystar vegna kröfu
skattayfirvalda í málinu. Kröfur
skattsins eru hins vegar í öllum
tilvikum hærri en eignir sem
hægt hefur verið að frysta, að því
er fram komi í Fréttum Stöðvar
2 í gær.
Krafist var kyrrsetningar á
eignum að andvirði 245 milljóna
króna hjá Jóni Ásgeiri, en aðeins
fundust eignir að andvirði tæp-
lega 152 milljóna. Hjá Hannesi
Smárasyni var krafan 150 millj-
ónir en eignir 11,5 milljónir.
Eignir að andvirði ríflega 71
milljónar króna voru kyrrsettar
hjá Jóni Sigurðssyni. Hjá Skarp-
héðni voru kyrrsettar eignir að
andvirði 31 milljónar króna.
Árangurslaus kyrrsetning
hefur svipuð áhrif og árangurs-
laust fjárnám. Gerðarbeiðandi, í
þessu tilviki tollstjóri fyrir hönd
skattayfirvalda, getur í báðum til-
vikum óskað eftir gjaldþrotaskipt-
um. - bj
Hægt að fara fram á gjaldþrotaskipti hjá fyrrum forsvarsmönnum FL Group:
Enginn á eignir upp í kröfur
HANNES
SMÁRASON
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
EFNAHAGSMÁL Aldrei hafa verið
gerðir fleiri kaupmálar en strax
eftir bankahrunið í október
2008. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Í gögnum Credit Info kemur
fram að frá árinu 2004 hafa
verið gerðir í kringum 250
kaupmálar á ári. Á síðasta árs-
fjórðungi ársins 2008 voru hins
vegar gerðir 205 kaupmálar.
Við þann gjörning verður til
séreign annars maka sem til-
heyrir ekki sameiginlegu búi
þeirra. Ekki er hægt að ganga
að séreign maka skuldarans.
Nýverið var lögum breytt
þannig að hægt er að rifta
færslu eigna til skyldmenna
fjögur ár aftur í tímann í stað
tveggja. - kóp
Sprenging í kaupmálum:
105 kaupmál-
ar voru gerðir
strax eftir hrun
VATÍKANIÐ, AP Rúmlega hundr-
að þúsund manns fjölmenntu
á Péturstorg í gær til að votta
Benedikt XVI páfa stuðning í
hneykslismálunum vegna kyn-
ferðisafbrota þjóna kaþólsku
kirkjunnar, sem skekja Vatík-
anið.
Benedikt páfi sagðist hrærður
yfir trúfestu og samstöðu mann-
fjöldans. Hann fordæmdi „synd-
ina“ sem hefði flekkað kirkj-
una og sagði að hana þyrfti að
hreinsa burt.
- bs
Hneyksli skekur páfagarð:
Fjöldi sýndi páf-
anum stuðning
ELDGOS Þór Þórðarson, eldfjalla-
fræðingur við Háskólann í Edin-
borg, spáir því að eldfjallaeyjan
Ísland sé vöknuð úr dvala og Evr-
ópubúar muni finna fyrir því
næstu áratugina. Breska dagblaðið
Times greindi frá þessu.
Í fréttinni kemur fram að þegar
vísindamenn hafi tímasett 205 eld-
gos á Íslandi undanfarin 1.100 ár,
hafi ákveðið mynstur komið í ljós.
„Tíðni eldgosa á Íslandi virðist
rísa og hníga á 140 ára fresti,“ er
haft eftir Þór. „Á seinni hluta 20.
aldar var eldvirknin lítil en ýmis-
legt bendir til þess að hún sé smám
saman að færast í aukana.“
Þór telur að Grímsvötn, Hekla
og Askja gætu byrjað að gjósa,
áður en langt um líður.
Eldfjallafræðingur í Edinborg:
Eldfjallaeyjan að
vakna úr dvala
EYJAFJALLAJÖKULL Þór Þórðarson telur
að eldvirkni sé að færast aftur í aukana
eftir kyrrlátt skeið. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM
EFNAHAGSMÁL Engir þættir í þjón-
ustu hins opinbera verða ósnertir
í niðurskurði fjárlaga á næsta ári,
segir Guðbjartur Hannesson, for-
maður fjárlaganefndar Alþingis.
Guðbjartur sagði í þættinum
Sprengisandi á Bylgjunni í gær
að ríkissjóður hafi tapað um 30-
40% af tekjum sínum við banka-
hrunið. Við því þurfi að bregðast.
Aðallega hafi verið horft til tekju-
hliðarinnar fyrir fjárlög þessa
árs. Fyrir fjárlög næsta árs verði
horft á útgjaldahliðina.
Guðbjartur lagði áherslu á að
hagrætt yrði í menntakerfinu.
Hann nefndi sem dæmi að ekki
væri sjálfgefið að halda úti laga-
námi í fimm háskólum eins og
verið hefur undanfarin ár. - jhh
Formaður fjárlaganefndar:
Vill hagræða í
menntakerfinu
ELDGOS Á annað hundrað fjár af
bænum Hrútafelli var flutt af
gossvæðinu undir Eyjafjöllum í
Mosfellsbæ í gær. Fleiri bænd-
ur íhuga einnig að flytja sitt fé í
burtu.
Ármann Fannar Magnússon og
Berglind Bjarnadóttir eru bænd-
ur á Hrútafelli og stóðu í ströngu
ásamt fleirum við að koma fénu
í Mosfellsdalinn, þar sem skyld-
fólk þeirra á heima. „Það er ekk-
ert útlit fyrir að maður geti sett
lambfé út hérna á næstunni, og
það skapar bara vandamál og
veikindi og dauðsföll að loka
lambfé lengi inni,“ sagði Ármann
í samtali við Stöð 2 í gær. Mjög
þröngt var orðið á fénu vegna þess
að sauðburður var langt kominn
á bænum. Ármann og Berglind
misstu tvö lömb og tvær kindur,
mögulega vegna flúoreitrunar.
Hann segist trúa því að þau
hafi tekið rétta ákvörðun í ljósi
ástandsins sem upp er komið.
Hann sér ekki fram á að hægt
verði að stunda búskap með sauð-
fé á svæðinu næstu eitt eða tvö
árin. „Enda er ég að fara með
féð út fyrir varnarlínu og það fer
bara í sláturhús í haust. Þá tek ég
bara nýtt fé þegar jörð hefur lag-
ast og ástand batnar.“
Ármann og Berglind hafa ekki
tekið ákvörðun um að flytja um
100 nautgripi sem þau eru með,
en í versta falli munu þau flytja
þá í burtu líka.
Hluti samráðshóps sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneyt-
isins hittist á fundi vegna eld-
gossins í gærkvöldi. Þar átti
meðal annars að ræða möguleg-
ar aðgerðir sem snerta landbún-
að á svæðinu. Jón Bjarnason land-
búnaðarráðherra útilokar ekki
að reglur um flutning sauðfjár
yfir varnarlínur verði rýmkað-
ar, vegna vandræðanna sem hafa
hlotist af öskufallinu.
thorunn@frettabladid.is
Sauðfé flutt frá gossvæðinu
Fé var flutt af fyrsta bænum undir Eyjafjöllum í gær, en það var flutt í Mosfellsdal. Fleiri bændur íhuga að
flytja sitt fé. Landbúnaðarráðherra útilokar ekki breytingar á reglum um varnarlínur vegna vandræðanna.
FÉNU KOMIÐ FYRIR Á NÝJUM STAÐ Fjölskyldan á
Hrútafelli ásamt aðstandendum hjálpuðust að við
að koma fénu fyrir í Mosfellsdalnum eftir flutning-
inn. Elsti sonurinn varð þó eftir á bænum og sá um
búið ásamt afa sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓN SIGURÐSSONSKARPHÉÐINN
BERG STEINARSSON
KJÖRKASSINN