Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 40
24 17. maí 2010 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is 25 DAGAR Í HM Viðarhöfða 6 - Reykjavík / Bæjarhrauni 12 - Hafnarfirði www.sindri.is / sími 575 0000 Verslanir PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 01 16 4 DCD945B2 Öflug 12 V borvél m. höggi LED-ljós 13 mm patróna 3ja gíra, 0-450/1200/1800 Átak 44 Nm. 2x2,6 Ah Ni-Mh rafhlöður. 12 V hleðsluborvél m. höggi 59.900 Verð með vsk. Leikmannahópur ÍBV verður á fastalandinu næstu vikuna en Eyja- menn ákváðu að flýja öskufallið í Vestmannaeyjum. Ekki er útlit fyrir að hægt verði að æfa utandyra í Eyjum næstu daga. Á laugardag átti liðið að leika gegn Val en Hásteinsvöllur var ekki leikfær og munu liðin etja kappi í kvöld á Hlíðarenda. Eftir leikinn halda Eyjamenn svo til Grindavíkur þar sem þeir munu dveljast. „Menn eru bara núna hjá frænkum og frændum í bænum og útlendingarnir á hóteli. Þegar við förum til Grindavíkur verð- um við á einhverjum gistiheimilum í bænum. Við verðum að æfa í Grindavík og í Garðinum,“ segir Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. „Við erum að spila þrjá leiki á viku og þá er maður ekki að æfa nein ósköp á milli. Þetta gefur samt meiri tíma til að fara yfir ákveðin atriði og spjalla saman, við náum kannski að slípa hópinn hraðar saman en vanalega. Við ætlum að reyna að nýta okkur þetta ástand okkur í hag,“ segir Heimir en það var talsverð vinna að flytja liðið frá Eyjum. „Vellirnir eru ekki alveg klárir og skiljanlegt að menn séu ekki æstir í að fá okkur á vellina sína. Við erum vanir að ferðast, við fórum nokkuð margar ferðir í vetur og tókum tvo til þrjá leiki á helgi. Ég er bara rosalega stoltur af því að strákarnir séu til í að leggja þetta á sig fyrir klúbbinn. Það er meira en að segja það að fara frá fjölskyldu og jafnvel börnum og vera í burtu í átta til níu daga.“ Ómögulegt er að æfa í Vestmannaeyjum. „Um leið og maður fer á grasið þá þyrlast askan upp. Það er erfitt að vera utandyra þegar það er svona mikil aska. Það þarf bara að koma góð rigning heima og þá verður þetta í lagi,“ segir Heimir sem býst við erfiðum leik gegn Val. „Ég sá leikinn þeirra á móti FH í sjónvarpinu og þeir voru mjög góðir þar. Þeir eru greinilega mjög tilbúnir í þetta og ég býst við hörkuleik sem verður erfiður fyrir okkur.“ HEIMIR HALLGRÍMSSON ÞJÁLFARI ÍBV: ER STOLTUR AF ÞVÍ HVAÐ HANS MENN LEGGJA Á SIG FYRIR KLÚBBINN Meira en að segja það að fara frá fjölskyldum Brasilíumenn hafa ekki tapað opnunarleik sínum á HM frá því á HM 1934 þegar þeir töpuðu 3-1 á móti Spáni. Brasilíumenn hafa byrjað síðustu sjö heimsmeistara- keppnir á sigri en á HM 2006 unnu þeir Króata 1-0 í fyrsta leik þar sem Kaka skoraði sigurmarkið á 44. mínútu. Fyrsti leikur Brasilíumanna á HM 2010 er á móti Norður-Kóreu 15. júní. FÓTBOLTI Didier Drogba kórónaði frábært tímabil sitt og Chelsea- liðsins með því að tryggja Chel- sea enska bikarinn á Wembley á laugardaginn. Drogba vann bæði meistaratitilinn og markakóngs- titilinn um síðustu helgi og nú hélt hann uppi þeirri venju sinni að skora alltaf þegar hann spilar á Wembley-leikvanginum. Drogba skoraði eina markið í 1-0 sigri Chelsea á Portsmouth með skoti beint úr aukaspyrnu á 58. mínútu leiksins en aðeins þrem- ur mínútum áður hafði Peter Cech varði víti frá Portsmouth mannin- um Kevin Prince-Boateng. „Þetta var frábær dagur og frá- bært tímabil. Það var mjög mikil- vægt fyrir klúbbinn og fyrir mig að vinna tvennuna,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea eftir leik- inn en hann viðurkenndi að mark- varsla Peter Cech í vítinu hefði ráðið miklu um úrslit leiksins. „Það var lykilmóment í leiknum. Þetta hefði orðið mjög erfitt fyrir okkur ef Portsmouth hefði skorað,“ sagði ítalski stjórinn sem skilaði tvennunni á sínu fyrsta tímabili með Chelsea. Chelsea-liðið átti fimm skot í tré- verkið í fyrri hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Besta færið fékk Sal- omon Kalou þegar hann skaut í slána úr markteignum fyrir fram- an opið mark. Didier Drogba átti einnig frábæra aukaspyrnu sem David James varði í slána og niður á marklínuna. Kevin Prince-Boateng fékk kjör- ið tækifæri til að koma Portsmouth í 1-0 á 55. mínútu en hann lét Peter Cech verja frá sér vítaspyrnu sem Aruna Dindane fékk eftir brot hjá Juliano Belletti. „Ég var heppinn,“ sagði Cech en það var þó kannski meiri heppni þegar hann varði á ótrúlegan hátt frá Frederic Piqui- onne í fyrri hálfleiknum en þess- ar tvær markvörslur Cech sáu til þess að liðið þurfti bara eitt mark til að vinna leikinn. Didier Drogba skoraði markið mikilvæga aðeins þremur mínút- um eftir vítið þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu af rúmlega 20 metra færi en skotið hans fór í stöngina og inn. „Ég sá smá pláss til að koma boltanum framhjá veggnum en ég hélt að ég hefði hitt stöngina einu sinni enn. Sem betur fer fór hann inn í þetta skiptið,“ sagði Drogba kátur eftir leikinn. Hann hefur skorað í öllum sex leikjum sínum á Wembley þar af öllum þremur bikarúrslitaleikjum sínum. Frank Lampard fékk möguleika til að innsigla sigurinn á 88. mín- útu en hann skaut þá framhjá úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálf- ur. Það breytti því ekki að bikar- inn var í höfn annað árið í röð og í þriðja sinn á síðstu fjórum árum. Ashley Cole, bakvörður Chel- sea, setti tvö met með þessum sigri Chelsea og annað með félaga sínum Nicolas Anelka. Cole varð fyrsti leikmaðurinn til að vinna enska bikarinn sex sinnum en hann vann bikarinn 2002, 2003 og 2005 með Arsenal og svo 2007, 2009 og 2010 með Chelsea. Cole og Anelka eru líka tveir fyrstu leikmennirnir til þess að vinna tvöfalt með tveim- ur félögum. Cole vann tvöfalt með Arsenal 2002 og Anelka vann tvö- falt með Arsenal 1998. ooj@frettabladid.is Frábært tímabil Chelsea Chelsea er tvöfaldur meistari á Englandi í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 1-0 sigur á Portsmouth í bikarúrslitaleiknum. Didier Drogba skorar alltaf á Wemb- ley og brást ekki á laugardaginn. Met hjá Ashley Cole og Nicolas Anelka. SKORAR ALLTAF Á WEMBLEY Didier Drogba fagnar bikarnum í leikslok ásamt Frank Lampard. MYND/AFP KÖRFUBOLTI Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og fyrrum formaður Körfu- knattleikssambands Íslands var á laugardaginn kjörinn nýr for- seti FIBA Europe til næstu fjög- urra ára á ársþingi sambandsins sem haldið var í Munchen í Þýska- landi. Ólafur keppti um forsetaemb- ættið við Turgay Demirel forseta tyrkneska körfuknattleikssam- bandsins og varaforseta FIBA Europe og hlaut glæsilega kosn- ingu. Ólafur fékk 32 atkvæði gegn 19 atkvæðum Demirel eða 62 pró- sent greiddra atkvæða. „Ég er þakklátur fyrir þennan góða stuðning sem ég fékk í þessu kjöri og þann heiður og það traust sem forystumenn körfuknattleiks- sambandanna innan Evrópu sýna mér. Enn fremur þann stuðning sem ég hef fundið fyrir á Íslandi. Ég er meðvitaður um þá miklu ábyrgð sem falin er í þessu embætti og hlakka til að tak- ast á við þau verkefni sem framundan eru,” sagði Ólaf- ur Rafnsson nýkjörinn forseti FIBA Europe í viðtali við heimasíðu KKÍ. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ tjáði sig einnig um kjörið á heimasíðu KKÍ. FIBA Europe er eitt af stærstu íþróttasambönd- um í heiminum og er óhætt að full- yrða að þetta emb- ætti er hið stærsta sem sem íslenskur forystumaður innan íþrótta- hreyfingarinnar hefur gegnt á erlendum vettvangi. „Þetta er númer eitt mik- ill persónulegur sigur fyrir Ólaf að hljóta jafn glæsilega kosningu og raun varð en að auki er þetta að sjálfsögðu sigur fyrir körfuboltann á Íslandi og íþrótta- hreyfinguna alla. Þetta var barátta sem við vissum að Ólafur gæti unnið því hann nýtur mikillar virðingar innan alþjóðakörfu- boltans og með þessum sigri Ólafs hefur verið skrifaður nýr kafli í íslenska íþróttasögu” sagði Hannes S.Jónsson formaður KKÍ. - óój Ólafur Rafnsson var kosinn forseti FIBA Europe með miklum yfirburðum: Mikill persónulegur sigur Ólafs ÓLAFUR RAFNSSON Nýr forseti FIBA Europe. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN FORMÚLAN Ástralinn Mark Webb- er er kominn í efsta sætið í baráttu um heimsmeistaratitil ökumanna eftir sigur í Mónakó- kappakstrinum í gær. Það gekk mikið á í braut- inni í Mónakó og það var mikið um árekstra auk þess sem að öryggisbíllinn kom fjórum sinn- um út. Webber var á ráspól og kláraði fyrstur en þó aðeins 0,4 sekúndum á undan félaga sínum hjá Red Bull, Sebastian Vettel, sem varð annar. Þeir unnu einnig tvöfaldan sigur í Malasíu-kapp- akstrinum á dögunum þegar Vett- el varð fyrstur. „Þetta er alveg ótrúlegt og þetta er án nokkurs vafa besti dagurinn í lífi mínu,“ sagði Mark Webber eftir sigurinn. „Það er mjög mjög sérstakt að vinna hér. Þessi braut er þvílík þrekraun í tvo tíma,“ sagði Webber. Robert Kubica hjá Renault varð í 3. sæti í gær, Felipe Massa hjá Ferrari var fjórði og fimmti varð Lewis Ham- ilton hjá McLaren. Webber vann einnig spænska kappaksturinn í Barcelona um síðustu helgi og þeir Red Bull menn er nú báðir með 78 stig í keppni ökumanna, fimm stigum meira en Fernando Alonso sem er í þriðja sætinu. - óój Formúla eitt um helgina: Mark Webber vann í Mónakó MARK WEBBER Varð fyrsti Ástralinn síðan 1959 til að vinna í Mónakó. MYND/AP FÓTBOLTI Inter Milan tryggði sér ítalska meistaratitilinn fimmta árið í röð með 1-0 sigri á Siena í lokaumferðinni í gær. Það leit þó lengi út fyrir að titillinn væri að fara til Roma sem komst í 2-0 á móti Chievo í fyrri hálfleik. Argentínumaðurinn Diego Mil- ito skoraði hins vegar markið mikilvæga eftir sendingu landa síns Javier Zanetti á 57. mínútu og Inter endaði því tveimur stig- um ofar en Roma sem vann sinn leik 2-0. Jose Mourinho er því búinn að gera Inter að tvöföldum meistur- um og liðið getur unnið þrenn- una með því að vinna Bayern í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. „Ég hefði kosið að vinna þetta fyrir fjórum eða fimm leikjum. Það var eiginlega of mikil spenna fyrir mig að vinna þetta á loka- deginum. Ég hef aldrei unnið titilinn áður í lokaumferðinni,“ sagði Mourinho. - óój Inter ítalskur meistari í gær: O f mikil spenna fyrir Mourinho FORSETINN Á LOFTI Nýkrýndir meistarar Inter tolleruðu forseta félagsins Mass- imo Moratti. MYND/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.