Fréttablaðið - 17.05.2010, Blaðsíða 34
18 17. maí 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hjálp
Hef aldrei
fengið
faðmlag
Haltu á
þessu! Verð
að míga!
Ooh! Svo
gott!
Þetta var
gott!
Þú ert með
volduga sel-
skapsblöðru,
það máttu
eiga!
Hún
hefur
fengið
áralanga
þjálfun!
Hefurður virkilega
aldrei vaknað svöng
um miðja nótt?
Súkkulaði
eða vanillu?
Súkkulaði
Sko, mér finnst
vanilla mjög góð.
Og svo fékk ég
súkkulaði í gær.
En svo er súkkulaði
uppáhaldið mitt.
Og svo fæ ég aldrei
leið á súkkulaði.
Þannig að þú
vilt súkkulaði?
Nei. Ég
er bara
að hvíla
hend-
urnar.Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða á eina af
rómuðustu sýningum Vesturports
Takmarkaður sýningafjöldi
Miðasala er hafin!
Miðborgin í Reykjavík er aldrei eins yndisleg og þegar vindurinn hefur sig
hægan á sama tíma og sólin skín. Þannig
var hún á laugardaginn var og nóg um að
vera.
NIÐUR Skólavörðustíginn dansaði glæsileg
fjölmenningarganga sem endaði í Ráðhús-
inu þar sem slegið hafði verið upp markaði
með fjölbreyttum varningi frá öllum þeim
vistkerfum heimsins sem eiga sér afleggj-
ara hér. Á Austurvelli stóðu menn saman
um hugsjónir sínar og mannréttindi með
ræðuhöldum og hljóðfæraslætti. Við útitafl-
ið í Lækjargötu spratt heill heimur upp úr
svuntu og pilsi brúðuleikkonu frá Kanada.
SVONA eiga miðborgir að vera. Finnst
mér. Lifandi og fjölbreyttar, með góðum
kaffihúsum og veitingastöðum, tjörnum
með öndum, grænum görðum, listum og
lífi, vettvangi til skoðanaskipta og ísbúð-
um.
ÉG kann líka vel að meta aðra staði í
borginni minni, Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinn til dæmis, sundlaugarnar,
Ylströndina og Elliðaárdalinn. Ég
kann að meta söfnin og stytturn-
ar, strætó og hjólastíga, dagheim-
ili og ruslabíla. Mér finnst full
mikið um einkabíla og nýbygging-
ar og svo er ég sérlega ósátt við
háhýsi sem byrgja mér fjallasýn-
ina fallegu, subbugang og veggjakrot.
ÉG hef sumsé fullt af skoðunum á því
hvernig ég vil að borgin mín sé.
OG hver réttindi mín sem íbúa í henni
eru. Ég hef skoðun á því hvort sköttunum
mínum er vel eða illa varið, hvort þeir eiga
að hækka eða ekki, hvort á fjölga strætó-
ferðum, vera systkinaforgangur á leikskól-
um eða setja upp Disneyland í Vatnsmýr-
inni.
ANNAN laugardag, 29. maí, er kosið til
bæjar- og sveitarstjórna.
VISSIR þú það? Ekki ég. Eða varla. Ég vissi
að svona kosningar væru á dagskránni ein-
hvern tíma bráðum og öðru hvoru sé ég
fjallað um eitthvað annað sveitarfélag en
mitt og kosningamálin þar í fréttunum eða
blöðunum. Og svo er gosið og bankarnir og
Jón Ásgeir og Interpol og allt hitt og kosn-
ingarnar gleymast eins og dögg fyrir sólu.
NÚ veist þú, kæri lesandi, sama hvar þú
býrð, hvenær kosningarnar eru og að þú
hefur bara tæpar tvær vikur til að mynda
þér skoðun ef þú ert þá ekki löngu búin/n að
því. Við hin, það er komið að því að vinna
fyrir lýðræðinu, bretta upp andlegar ermar,
kynna sér stefnumál og mæta svo á kjörstað
og kjósa. Því kosningar eru í nánd. Næstu
fjögur ár eru undir okkur komin.
17. maí