Fréttablaðið - 17.05.2010, Side 34

Fréttablaðið - 17.05.2010, Side 34
18 17. maí 2010 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Hjálp Hef aldrei fengið faðmlag Haltu á þessu! Verð að míga! Ooh! Svo gott! Þetta var gott! Þú ert með volduga sel- skapsblöðru, það máttu eiga! Hún hefur fengið áralanga þjálfun! Hefurður virkilega aldrei vaknað svöng um miðja nótt? Súkkulaði eða vanillu? Súkkulaði Sko, mér finnst vanilla mjög góð. Og svo fékk ég súkkulaði í gær. En svo er súkkulaði uppáhaldið mitt. Og svo fæ ég aldrei leið á súkkulaði. Þannig að þú vilt súkkulaði? Nei. Ég er bara að hvíla hend- urnar.Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Tryggðu þér miða á eina af rómuðustu sýningum Vesturports Takmarkaður sýningafjöldi Miðasala er hafin! Miðborgin í Reykjavík er aldrei eins yndisleg og þegar vindurinn hefur sig hægan á sama tíma og sólin skín. Þannig var hún á laugardaginn var og nóg um að vera. NIÐUR Skólavörðustíginn dansaði glæsileg fjölmenningarganga sem endaði í Ráðhús- inu þar sem slegið hafði verið upp markaði með fjölbreyttum varningi frá öllum þeim vistkerfum heimsins sem eiga sér afleggj- ara hér. Á Austurvelli stóðu menn saman um hugsjónir sínar og mannréttindi með ræðuhöldum og hljóðfæraslætti. Við útitafl- ið í Lækjargötu spratt heill heimur upp úr svuntu og pilsi brúðuleikkonu frá Kanada. SVONA eiga miðborgir að vera. Finnst mér. Lifandi og fjölbreyttar, með góðum kaffihúsum og veitingastöðum, tjörnum með öndum, grænum görðum, listum og lífi, vettvangi til skoðanaskipta og ísbúð- um. ÉG kann líka vel að meta aðra staði í borginni minni, Fjölskyldu- og húsdýra- garðinn til dæmis, sundlaugarnar, Ylströndina og Elliðaárdalinn. Ég kann að meta söfnin og stytturn- ar, strætó og hjólastíga, dagheim- ili og ruslabíla. Mér finnst full mikið um einkabíla og nýbygging- ar og svo er ég sérlega ósátt við háhýsi sem byrgja mér fjallasýn- ina fallegu, subbugang og veggjakrot. ÉG hef sumsé fullt af skoðunum á því hvernig ég vil að borgin mín sé. OG hver réttindi mín sem íbúa í henni eru. Ég hef skoðun á því hvort sköttunum mínum er vel eða illa varið, hvort þeir eiga að hækka eða ekki, hvort á fjölga strætó- ferðum, vera systkinaforgangur á leikskól- um eða setja upp Disneyland í Vatnsmýr- inni. ANNAN laugardag, 29. maí, er kosið til bæjar- og sveitarstjórna. VISSIR þú það? Ekki ég. Eða varla. Ég vissi að svona kosningar væru á dagskránni ein- hvern tíma bráðum og öðru hvoru sé ég fjallað um eitthvað annað sveitarfélag en mitt og kosningamálin þar í fréttunum eða blöðunum. Og svo er gosið og bankarnir og Jón Ásgeir og Interpol og allt hitt og kosn- ingarnar gleymast eins og dögg fyrir sólu. NÚ veist þú, kæri lesandi, sama hvar þú býrð, hvenær kosningarnar eru og að þú hefur bara tæpar tvær vikur til að mynda þér skoðun ef þú ert þá ekki löngu búin/n að því. Við hin, það er komið að því að vinna fyrir lýðræðinu, bretta upp andlegar ermar, kynna sér stefnumál og mæta svo á kjörstað og kjósa. Því kosningar eru í nánd. Næstu fjögur ár eru undir okkur komin. 17. maí

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.