Fréttablaðið - 02.06.2010, Qupperneq 2
2 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
Guðmundur, er gjörningaveð-
ur í Framsóknarflokknum?
„Það er lægð yfir höfuðborgarsvæð-
inu en sólskin víða um land.”
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, segir að gagnrýni
Guðmundar Steingrímssonar á flokks-
forystuna hljóti að vera einhvers konar
gjörningur, svo ósvífin væri hún annars.
VIÐSKIPTI Gengi krónunnar styrkt-
ist um 0,8 prósent í gær og endaði
gengisvísitalan í 214,59 stigum.
Hún hefur ekki verið lægri
frá því snemma í apríl
í fyrra.
Gengi krónunnar
hefur styrkst frá
í nóvember í fyrra
þegar vísitalan stóð í
tæpum 240 stigum.
Evran, sem gefið hefur
verulega eftir vegna titrings í
evrópsku efnahagslífi, kostar
rúmar 156 krónur og hefur hún
ekki verið lægra skráð síðan
seint í mars í fyrra. Innan við
mánuður er síðan aðrir gjald-
miðlar voru jafn ódýrir í krónum
og nú. - jab
Krónan styrkist verulega:
Evran ekki ódýr-
ari í rúmt ár
LÖGREGLUMÁL „Hún var að vakna grátandi í tvær nætur með
verki en hún slapp samt ótrúlega vel, greyið litla,“ segir
Sandra Hraunfjörð, móðir sjö ára stúlku sem varð fyrir bíl
um síðustu helgi.
Sandra og eiginmaður hennar voru með þrjú barna sinna
á skemmtun Stöðvar 2 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á
laugardaginn. Rétt fyrir klukkan fjögur yfirgáfu þau garð-
inn. „Þá kom kona á silfurgráum smábíl og keyrði á stelpuna
mína þannig að hliðarspegill skall í öxlinni á henni og það
heyrðist smellur,“ lýsir Sandra sem kveðst hafa sinnt börnun-
unum á meðan maður hennar tók konuna á gráa bílnum tali.
„Hún skrúfaði aðeins niður rúðuna og spurði hvort það væri
ekki allt í lagi með stelpuna. Ég held ekki, svaraði maðurinn
minn, en þá stakk hún bara af.“
Sandra segir að í ljós hafi komið við skoðun á sjúkrahúsi
að dóttir hennar, Rannveig Ögn Jónsdóttir, var marin á öxl
við viðbeinið. „Hún er bara í losti - trúir því ekki að konan
hafi bara stungið af,“ segir Sandra sem kveður lögreglu hafa
sagst mundu auglýsa eftir konunni. Hún biður ökumann lít-
ils sendibíls sem þeytti flautu sína fyrir aftan slysstaðinn að
veita upplýsingar ef hann telji þær geta gagnast. „Fólk á ekki
að stinga af ef það keyrir á börn,“ segir Sandra og skorar á
konunna sem ók á dóttur hennar að gefa sig fram. - gar
Mæðgur beygðar eftir að ekið var á fjögurra ára dótturina við Húsdýragarðinn:
Kona ók á litla hnátu og stakk svo af
SANDRA OG RANNVEIG ÖGN Sem betur fer slapp
Rannveig Ögn með mar á öxlinni eftir að ekið var á
hana við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á laugar-
daginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN, AP Breska olíufélagið
BP er komið nokkuð á veg með enn
eina tilraun til að stöðva olíulekann
í Mexíkóflóa, en fyrri tilraunir hafi
mistekist.
Talið er að allt að milljón tunn-
ur af olíu hafi lekið út í sjóinn þær
sex vikur sem liðnar eru frá því
sprenging varð í borpallinum Deep-
water Horizon.
Bandaríkjastjórn ætlar fylgjast
betur með tilraununum, en hefur
enn ekki gripið inn í gang mála.
Barack Obama forseti segir hins
vegar að BP geti átt yfir höfði sér
málsókn. Eric Holder dómsmála-
ráðherra hélt í gær til Mexíkóflóa
að hitta ráðamenn þar. Obama átti
einnig í gær í fyrsta sinn fund
með öðrum af tveimur formönn-
um rannsóknarnefndar þingsins,
sem er að fara ofan í saumana á
lekanum.
Að þessu sinni ætlar BP að reyna
að festa nýtt lok ofan á olíubrunn-
inn á hafsbotni og freista þess að
dæla olíunni upp í skip. Flókinn
fjarstýrður vélbúnaður er notað-
ur til að koma nýja lokinu fyrir.
- gb
Olíufélagið BP reynir enn á ný að stöðva olíulekann í Mexíkóflóa:
Obama forseti hótar málsókn
OLÍUTAUMAR Á MEXÍKÓFLÓA Olíulekinn
er þegar orðinn eitt mesta umhverfisslys
í sögu Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Birgir Finnsson, fyrrverandi
forseti sameinaðs Alþingis,
lést á sjúkrahúsi í Reykjavík í
fyrrinótt, 93
ára að aldri.
Þorgeir Birg-
ir Finnsson
var fæddur
á Akureyri
19. maí 1917.
Foreldrar
hans voru
Finnur Jóns-
son, alþing-
ismaður og
ráðherra, og
fyrri kona
hans, Auður
Sigurgeirs-
dóttir húsmóðir.
Birgir var bæjarfulltrúi
fyrir Alþýðuflokkinn á Ísa-
firði árin 1942 til 1966. Hann
átti sæti á Alþingi frá 1959 til
1971 og gegndi embætti for-
seta sameinaðs Alþingis í átta
ár, samfellt lengur en nokkur
annar maður í sögu þingsins.
Birgir Finns-
son er látinn
HEILBRIGÐISMÁL „Rannsóknin á að
svara þeirri spurningu hvort tíu
prósent þeirra sem leggjast inn á
spítala hér á landi verði fyrir ein-
hvers konar skaða af völdum með-
ferðarinnar sem við erum að veita,
eins og erlendar rannsóknir benda
eindregið til,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, forseti Heilbrigðisvís-
indasviðs Háskóla Íslands.
Landlæknisembættið mun rann-
saka á næstunni tíðni þess sem
innan heilbrigðiskerfisins er kall-
að „óvæntir skaðar“. Staðið hefur
til að gera rannsóknina í nokkur
ár.
„Heiðarlega svarið við spurn-
ingunni af hverju þessi rannsókn
hefur ekki verið gerð fyrir löngu
er að til þess hefur ekki fengist
fjármagn,“ segir Sigurður sem
er ábyrgðarmaður rannsóknar-
innar.
Rannsóknin er gerð í samvinnu
við Landspítalann og Sjúkrahúsið
á Akureyri. Fyrir liggur 700.000
króna styrkur frá heilbrigðisráðu-
neytinu og Félagi íslenskra hjúkr-
unarfræðinga. Hins vegar kostar
átta milljónir „að gera rannsókn-
ina almennilega“, eins og Sigurð-
ur orðar það og vinnur hann þessa
dagana að styrkumsóknum.
Hann furðar sig á því hversu illa
hefur gengið að fjármagna rann-
sóknina. „Þegar sinueldur brann á
Mýrum 2006 var veittur 25 millj-
óna króna styrkur til að kanna
áhrif eldsins á gróður og smádýra-
líf. Það var nauðsynlegt en þessi
rannsókn er það ekki síður,“ segir
Sigurður og viðurkennir að leitað
hafi verið beint til sitjandi heil-
brigðisráðherra í gegnum tíðina,
án árangurs.
Álfheiður Ingadóttir er ekki í
þeim hópi. „Það er ekki verið að
reyna að finna sökudólga. Það
er mikilvægt að það komi skýrt
fram,“ segir Sigurður.
„Hins vegar leggjast inn á Land-
spítalann um 30 þúsund manns á
ári og því má reikna með að þrjú
þúsund manns verði þar fyrir ein-
hvers konar skaða á hverju ári.“
Þetta þýðir að 200 manns láta
lífið á spítalanum vegna óvæntra
skaða og þar af níutíu vegna mis-
taka sem sannað er að hægt hefði
verið að fyrirbyggja, samkvæmt
rannsóknum á stærstu og virtustu
sjúkrahúsum Bandaríkjanna sem
sýna að hægt er að koma í veg
fyrir fjögur af hverjum tíu tilfell-
um mannlegra mistaka. - shá
Vantar meira fé til
að rannsaka mistök
Reiknað er með að 50 til 300 dauðsföll verði á sjúkrahúsum hérlendis á ári
hverju vegna mistaka. Yfirvöld hafa ekki sinnt beiðnum um fjármagn til rann-
sókna. Allt bendir til að tíundi hver sjúklingur verði fyrir skaða.
BIRGIR FINNSSON
FÓLK Söngkonan Eivör Pálsdóttir
hefur óskað eftir nálgunarbanni
vegna íslensks manns sem hefur
elt hana á röndum í þrjú ár. Svo
ágengur hefur maðurinn verið að
hann hefur búið í tjaldi í garðin-
um hjá henni í Færeyjum í um ár.
Fyrir ári flutti maðurinn frá
Íslandi til Færeyja og hefur hafst
við í tjaldi í garði við hús sem hún
á í heimabæ sínum Götu. Í tjald-
inu dvaldi maðurinn til að mynda
síðustu jól.
Færeyska blaðið Dimmalættn-
ing hefur að undanförnum fjallað
um málið og tilraunir Eivarar til
að fá nálgunarbann á manninn.
Óskar eftir nálgunarbanni:
Íslendingur
ofsækir Eivöru
EIVÖR PÁLSDÓTTIR Hefur sætt ofsóknum
í þrjú ár.
STJÓRNMÁL Ólafur F. Magnússon
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
kvöddu vettvang stjórnmálanna
á fundi borgarstjórnar í gær. Vil-
hjálmur lét það verða sitt síðasta
verk að leggja til stofnun Friðar-
stofnunar Reykjavíkur en Ólafur
F. kvaddi með því að óska eftir
lögreglurannsókn á því hvernig
flokkarnir hefðu varið styrkjum
úr borgarsjóði.
Oddvitarnir Hanna Birna
Kristjánsdóttir og Dagur B. Egg-
ertsson, gengu út áður en Ólafur
tók til máls.
Hanna Birna og Dagur:
Gengu út af síð-
asta fundinum
Það sem til rannsóknar er: Eitthvað sem leiðir til dauða, til tímabundinn-
ar eða langvarandi örorku, eða í þriðja lagi lengir sjúkrahúsvist marktækt.
Þannig nær rannsóknin til sýkinga, rangrar lyfjagjafar, ef eitthvað fer úrskeið-
is við skurðaðgerðir, mistök við sjúkdómsgreiningar og fleira.
Hvað er til rannsóknar?
SKURÐLÆKNAR AÐ STÖRFUM Embætti landlæknis mun á næstunni rannsaka tíðni
þess sem innan heilbrigðiskerfisins er kallað „óvæntir skaðar”. Staðið hefur til að
gera rannsóknina í nokkur ár. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.
SVEITARSTJÓRNIR Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi
Vinstri grænna í Hafnarfirði,
sagði í gærkvöldi að viðræður
við fulltrúa Samfylkingar um
myndun meirihluta í bæjar-
stjórn gengju vel. Búast mætti
við að viðræðunum lyki fyrir
helgi.
Í Kópavogi halda áfram meiri-
hlutaviðræður Samfylkingar,
Vinstri grænna, Næst besta
flokksins og Kópavogslist-
ans. Í Reykjavík hafa fulltrúar
Besta flokksins átt fundi með
fulltrúum Samfylkingar og ætla
sér „góðan tíma í viðræðurnar“
eins og segir í tilkynningu frá
Besta flokknum. - gar
Meirihlutaviðræður standa yfir:
Hafnfirðingar
klára fyrir helgi
SPURNING DAGSINS
Frá og með 1. júlí hættir bankinn
að senda út greiðsluseðla á pappírs-
formi til viðskiptavina. Með rafræn-
um viðskiptum getur þú sparað
umtalsverða upphæð og dregið
stórlega úr pappírsnotkun.
Leggjum okkar af mörkum
við að vernda umhverfið.
Sparaðu og minnkaðu
gluggapóstinn
Hafðu samband