Fréttablaðið - 02.06.2010, Qupperneq 10
2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
NÝTT
Ný kynslóð af liðvernd
Hýalúrónsýra
Viðheldur heilbrigðum liðum og liðleika
Bionovex olía
Hefur bólgueyðandi eiginleika
Hýalúrónsýra er lykilefni í brjóski og í liðvökvanum
í liðamótum. Hýalúrónsýra er talin auka virkni
liðvökvans sem virkar smyrjandi og höggdeyfandi á
liðina. Með aldrinum gengur á þessar birgðir og með
því að taka inn Regenovex endurhlöðum við þessar
birgðir líkamans.
Þegar magn og gæði liðvökvans sem umlykur liðina er ekki
nægjanlegt geta beinin í liðnum farið að nuddast saman,
mynda bólgur og valda sársauka. Bionovex olían er unnin úr
grænkræklingi og er því náttúruleg. Bionovex olían inniheldur
einstaka omega 3 olíu sem finnst aðeins í þessari tegund
grænkræklings og hefur sýnt bólgueyðandi eiginleika.
Regenovex hentar öllum sem leita
að bættri heilsu í liðum en kjósa náttúlegar
lausnir fram yfir lyf m.a. vegna mögulegra
aukaverkana þeirra.
Gel Perlur Plástur
Almennt um liðverki
Vandamál í liðum skapast með áreynslu á liðina sem
með tímanum geta skemmt liði og/eða brjósk og valdið
óþægindum og sársauka.
Hýalúrónsýra er meginefni í liðvökvanum sem umlykur
beinin og brjóskið og höggverndar beinin í liðnum.
Hýalúrónsýran virkar sem smurning og höggdeyfir á liðina
og bætir liðleikan.
Þegar við eldumst framleiðir líkaminn minna magn af
Hýalúrónsýru sem leiðir til þess að magn liðvökvans fer
minnkandi og er í kjölfarið ekki eins áhrifaríkur í að hlífa
liðum við minniháttar höggum og
áreynslu sem leiðir til þess að flísast getur úr beinunum.
Fæst í apótekum Kynntu þér málið á regenovex.is
og fáðu sent frítt sýnishorn
Einstök samsetning Regenovex
unað ekki sársauka
- þitt heimili til framtíðar
ÍSRAEL Stuðningsfólk Palestínu-
manna hefur sent írska skipið
Rachel Corrie af stað með hjálpar-
gögn og fólk til Gasasvæðisins,
daginn eftir að ísraelski herinn
réðist á skipalest til að stöðva för
hennar þangað.
Þá sögðust Egyptar ætla að opna
um stundarsakir landamærahlið
yfir á Gasasvæðið, sem Ísraelar
hafa haldið í nánast algerri ein-
angrun árum saman.
Árásin á skipalestina kostaði að
minnsta kosti tíu manns lífið og
vakti hörð viðbrögð stjórnvalda
víða um heim. Vaxandi þrýsting-
ur hefur verið á Ísrael að aflétta
einangrun Gasasvæðisins, þar
sem hálf önnur milljón Palestínu-
manna býr við mikla fátækt.
Michael Martin, utanríkisráð-
herra Írlands, krefst þess að Ísra-
elar leyfi írska skipinu að sigla
óhindrað til Gasasvæðis. Hann
krefst þess einnig að Ísraelar láti
lausa alla írska ríkisborgara sem
handteknir voru á mánudag.
Eftir að hafa stöðvað ferðir
skipalestarinnar á mánudag hand-
tóku Ísraelar 679 manns og færðu
til lands. Einungis fimmtíu þeirra
hafa þegar þegið boð Ísraela um að
yfirgefa landið, en hundruð þeirra
hafa neitað að sýna Ísraelum sam-
vinnu og eru enn í fangelsi. Þrjá-
tíu eru sagðir vera á sjúkrahúsi í
Ísrael.
Ísraelar halda því fram að her-
inn hafi ekki gripið til vopna gegn
skipverjum fyrr en þeir urðu fyrir
harðvítugum árásum, þar sem
beitt var bareflum, hnífum og
jafnvel skotvopnum. Þessu er mót-
mælt af fólki, sem var um borð og
segir Ísraela jafnvel hafa skotið
á sofandi fólk og haldið áfram að
skjóta eftir að hvítum friðarfánum
var veifað.
Ísraelar segjast hafa unnið hörð-
um höndum að því að skoða farm
skipaflotans. Mest hafi þar farið
fyrir tækjabúnaði sem nóg er til
af á Gasasvæðinu fyrir. Megnið af
farminum hafi engu að síður verið
sett í flutningabíla áleiðis til Gasa-
svæðisins.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna kom saman á neyðarfundi
á mánudag vegna atburðanna og
sendi frá sér ályktun þar sem
árásin er fordæmd og þess kraf-
ist að óhlutdræg rannsókn verði
gerð hið fyrsta.
gudsteinn@frettabladid.is
Írar senda
skip til Gasa
Frásagnir Ísraela af atburðum mánudagsins stang-
ast á við frásagnir skipverja. Utanríkisráðherra
Írlands krefst þess að írska skipið fái að sigla óáreitt.
HORFT TIL SKIPS Tveir rétttrúaðir gyðingar horfa á tyrkneska skipið Mavi Marmara,
sem Ísraelar réðust á á mánudag. NORDICPHOTOS/AFP
Friðarráð kvenna fordæmir harðlega árás ísraelska hersins á skipalestina á
mánudag.
„Enn einu sinni grípur Ísrael til hernaðaraðgerða til að takast á við átök
sem einungis er til pólitísk lausn á,“ segir í ályktun ráðsins, sem harmar það
sérstaklega að árásin skuli gerð meðan ráðstefna samtakanna stendur yfir í
Madrid á Spáni, en þar eru saman komnar konur bæði frá Ísrael, Palestínu
og fleiri ríkjum til að leita leiða til að koma á friði milli Ísraels og Palestínu.
„Ísraelum á ekki að leyfast lengur að haga sér af fullkomnu virðingarleysi
við alþjóðalög. Við krefjumst þess að alþjóðasamfélagið grípi til aðgerða til
að draga Ísraela til ábyrgðar vegna verka sinna,“ segir í ályktuninni, sem jafnt
ísraelskar sem palestínskar konur standa að einum rómi.
Meðal ræðumanna á ráðstefnunni er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, sem á sæti í framkvæmdastjórn samtakanna.
Friðarráð kvenna fordæmir árásina
ÚRSKURÐARMÁL Póst- og fjarskipta-
stofnun (PFS) segir að Orkuveita
Reykjavíkur megi ekki leyfa dóttur-
fyrirtækinu Gagnveitu Reykjavík-
ur að safna meiri skammtímaskuld-
um hjá OR en sem svarar tveggja
mánaða eðlilegum viðskiptum
milli félaganna. Þetta kemur fram
í ákvörðun PFS um fjárhagslegan
aðskilnað milli OR og Gagnaveit-
unnar (GR).
Þá segir PFS að GR þurfi að fá
fyrirfram samþykki fyrir hluta-
fjáraukningum sem greiddar eru
af OR, eða öðru fyrirtæki innan
fyrirtækjasamstæðunnar. „PFS
samþykkir því aðeins slíka hluta-
fjáraukningu að hún rúmist innan
eðlilegs fjárhagslegs aðskilnaðar og
feli ekki í sér að samkeppnisrekstur
sé niðurgreiddur af einkaleyfisstarf-
semi,“ segir í tilkynningu PFS.
Undirstrikað er að í ljós hafi
komið að framkvæmd á aðskilnaði
á fjarskiptastarfsemi OR, sem rekin
sé í dótturfélaginu GR, frá annarri
og sérleyfisbundinni starfsemi sam-
stæðunnar, sé ófullnægjandi varð-
andi fyrrnefnd tvö atriði.
- gar
Orkuveitan haldi fjarlægð frá dótturfyrirtæki:
Hemji skuldasöfnun GR