Fréttablaðið - 02.06.2010, Side 11

Fréttablaðið - 02.06.2010, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 11 FERÐAMÁL Landsmenn eru hvatt- ir til að senda fjölskyldu, vinum og kunningjum erlendis kveðju og heimboð til Íslands af síðunni www.inspiredbyiceland.com, á milli klukkan 13 og 14 á morgun. Kveðjan er í formi myndbands og geta þeir sem ekki geta tekið þátt á þessum tiltekna tíma sent kveðjuna á öðrum tíma dagsins eða hvenær sem er næstu vikurn- ar, að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá iðnaðarráðuneytinu. Kveðjusendingin er hluti af kynningarátakinu Þjóðin býður heim, sem var formlega sett af stað við Iðnó í gær. - mþl Nýtt kynningarátak hafið: Landsmenn sendi kveðjur til vina erlendis FÓLK Eldri borgarar munu í sumar vera leiðbeinendur á leikjanámskeiðum fyrir 7 til 12 ára börn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Rauði kross Íslands og Öldrunarráð Íslands standa fyrir námskeiðunum, sem verða ókeyp- is. Námskeiðið ber heitið „Gleði- dagar – hvað ungur nemur, gam- all temur“. Meðal annars verður boðið upp á hnútabindingar, sögur frá gamla tímanum, fugla- skoðun, ljósmyndun og bingó. Leiðbeinendunum verður frjálst að miðla því sem þeir vilja til ungu kynslóðarinnar. Hægt er að kynna sér nám- skeiðin á heimasíðu Rauða kross- ins. - þeb Ókeypis leikjanámskeið: Eldri borgarar leiðbeinendur Foringi Al Kaída drepinn Einn af helstu foringjum hryðjuverka- samtakanna Al Kaída, Mustafa Abu al- Yazid hefur verið drepinn í Pakistan. Al-Yazid er talinn hafa verið þriðji valdamesti foringi Al Kaída og í hópi þeirra sem skipulögðu hryðjuverka- árásina 11. september 2001. PAKISTAN VIÐSKIPTI Heildarkostnaður við rekstur slitastjórnar og skilanefnd- ar Landsbanka Íslands nam 3.263 milljónum króna á fyrsta fjórðungi þessa árs, eða rúmum milljarði á mánuði. Þar af var kostnaðurinn hér á landi 1.702 milljónir króna. Tæpur helmingur kostnaðarins er vegna kaupa á þjónustu lögfræð- inga og annarra sérfræðinga, alls 1.561 milljón króna, þar af eru 283 milljónir til innlendra sérfræðinga. Kostnaður við rekstur nefndanna sjálfra var 87 milljónir króna. Skilanefnd og slitastjórn hafa það verkefni að gera sem mest verðmæti fyrir kröfuhafa úr eign- um Landsbanka Íslands. Þær hafa 130 starfsmenn á sínum vegum í Reykjavík, London, Amsterdam og Kanada. Laun og launatengd gjöld vegna þessara starfsmanna voru sam- tals 941 milljón króna fyrstu þrjá mánuði ársins eða um 7,2 milljónir króna að meðaltali. Laun 56 starfsmanna í Reykjavík námu samtals 150 milljónum eða um 2,8 milljónum króna að meðal- tali fyrstu þrjá mánuði ársins. - pg Rúman milljarð kostar á mánuði að reka skilanefnd og slitastjórn Landsbankans: Um helmingur í sérfræðikostnað KOSTNAÐUR Það kostar um það bil milljarð króna á mánuði að reka skilanefnd og slitastjórn gamla Landsbankans. Kostnaðurinn kemur til frádráttar því sem kröfuhafar fá í sinn hlut af eignum bankans. TÆKNI Síminn tekur að sér að hýsa og reka upplýsinga- og tölvukerfi alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Alvogen, samkvæmt nýju sam- komulagi fyrirtækjanna. Alvogen er með höfuðstöðvar í Bandaríkj- unum en starfsemi í sjö löndum, Íslandi þar á meðal. „Kjarnakerfi Alvogen verða staðsett í vélasölum Símans þar sem sérfræðingar sjá um rekstur og viðhald. Kerfið er hannað þannig að auðvelt er að sníða það eftir fjölda notenda og því stýrt frá Íslandi,“ segir í tilkynningu. - óká Síminn sinnir Alvogen: Kjarnakerfið í vélasal Símans ELDGOS Í EYJAFJALLAJÖKLI Hafið er kynningarátak sem ætlað er að efla ferðamennsku hér á landi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.