Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 12
12 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
TRÚMÁL Um 1.480 pör gengu í
hjónaband á Íslandi í fyrra, sem
er umtalsverð fækkun frá fyrri
árum. Fjöldi borgaralegra athafna
stóð í stað en mun færri kusu að
gifta sig í kirkjum landsins.
Eftir mikla uppsveiflu í fjölda
giftinga á Íslandi frá árinu 2004
fækkaði þeim verulega á síð-
asta ári sem gengu í hjónaband.
Samdrátturinn var í heildina um
þrettán prósent, fór úr ríflega
1.700 giftingum árið 2008 í 1.480
í fyrra.
Alls giftu sig 1.128 pör í kirkjum
landsins, tæplega átján prósent
færri en árið áður. Frá árinu 2004
til 2008 voru giftingar í kirkjum
að meðaltali um 1.400 á ári.
Fjöldi þeirra sem gifti sig í
borgaralegum athöfnum hefur
ekki dregist saman. Alls giftust
352 pör í slíkum athöfnum í fyrra,
sem er svipað hlutfall og síðustu
þrjú ár þar á undan.
„Ég finn að fólk horfir miklu
meira í kostnaðinn en áður, og spyr
meira en það gerði fyrir nokkrum
árum,“ segir Pálmi Matthíasson,
sóknarprestur í Bústaðakirkju.
Pálmi segist vona að það sé
ekki óttinn við mikinn kostnað
sem haldi fólki frá því að gifta
sig í kirkju. Kostnaðurinn við slík
brúðkaup liggi yfirleitt í umgerð-
inni, ekki athöfninni sjálfri. Oft
hafi tónlistarmenn verið að rukka
háar upphæðir fyrir söng, auk
þess sem stórar matarveislur séu
dýrar.
Nú virðist sem fólk sé farið að
átta sig á að gifting í kirkju þurfi
ekki að kosta mikið, segir Pálmi.
Prestar geti gift fólk í einfaldri
athöfn með brúðhjónunum og vott-
um alveg eins og sýslumenn. Þá
virðist fólk vera nægjusamara en
áður og undirbýr veislurnar sjálft
með aðstoð vina og ættingja frek-
ar en að kaupa veitingar.
brjann@frettabladid.is
Kirkjubrúðkaupum fækkar
Um átján prósentum færri giftu sig í kirkju í fyrra en árið áður. Borgaralegrar athafnir standa í stað. Fólk
horfir meira í kostnaðinn og er farið að átta sig á að brúðkaup þarf ekki að vera dýrt segir sóknarprestur.
GIFTINGAR Eitthvað var um að fólk hætti við að gifta sig í fyrra af fjárhagsástæðum,
en sumir þeirra sem þá frestuðu giftingu hafa ákveðið að gifta sig í ár segir Pálmi
Matthíasson sóknarprestur. NORDICPHOTOS/AFP
2000
1500
1000
500
0
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
259 253 333270
1.355
1.444
1.128
Fjöldi giftinga 2000 til 2009
Heimild: Hagstofa Íslands■ Kirkjugiftingar ■ Borgaralegar
Ríflega þriðja hvert hjónaband
endar með skilnaði, samkvæmt
útreikningum Hagstofu Íslands
fyrir árið 2009. Um 550 hjón
skildu á síðasta ári, sem jafngildir
1,7 skilnaði á hverja 1.000 íbúa.
Skilnaðartíðnin hefur verið lítið
breytt undanfarin ár, en hefur þó
heldur þokast niður á við síðast-
liðinn áratug. Í fyrra var uppsafnað
skilnaðarhlutfall 36 prósent, sem
þýðir að 36 prósent hjónabanda
enduðu með skilnaði.
Hlutfallið var 40 prósent árið
2000, og hefur því hægt og
bítandi sigið niður undanfarin tíu
ár. Lægst var skilnaðartíðnin árið
2006, um 35 prósent.
Þriðjungur skilur
ORKU- OG UMHVERFISTÆKNIFRÆÐI
Orku- og umhverfistæknifræði er hagnýtt og þverfaglegt háskólanám þar
sem blandað er saman orkutengdri efna-, véltækni-, jarð- og umhverfisfræði.
Áhersla er lögð á endurnýjanlega orkugjafa, vistvænt eldsneyti og verklega
þjálfun. Orku- og umhverfistæknifræði er spennandi leið inn í framtíðina.
Námið er lánshæft hjá LÍN.
Nánari upplýsingar á keilir.net
ÁSBRÚ - SÍMI: 578 40 00 - WWW.KEILIR.NET
Orku- og umhverfistæknifræði
Viltu hafa áhrif á framtíðina?
Atvinnulífi ð bíður eftir þér.
Umsóknarfrestur rennur
út á mánudaginn.
Umsóknarfrestur
er til 7. júní 2010.
NÝSKÖPUN Samkomulag um stofn-
un og starfsemi Matarsmiðjunnar
á Flúðum hefur verið undirritað.
Atvinnuþróunar- og Háskólafélag
Suðurlands, Háskóli Íslands,
Matís og sveitarfélögin á svæðinu
koma að verkefninu.
Á Flúðum verður vöruþróun og
fullvinnsla á grænmeti og fag- og
háskólamenntun á svæðinu efld
með kennslu og rannsóknum.
Ætlunin er að bjóða frumkvöðlum
og smáframleiðendum upp á sér-
fræðiaðstoð til að þróa vörur án
mikils tilkostnaðar á meðan verið
er að koma vörum á markað. - shá
Matarsmiðja á Flúðum:
Miðstöðin nýtt
til vöruþróunar
VEISLUKOSTUR Matarsmiðjan mun þróa
vörur og mennta fagmenn.
Súkkulaði Póló innkallað
Kexverksmiðjan Frón hefur ákveð-
ið, í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur, að innkalla í varúðarskyni
kexið Súkkulaði Póló vegna rangrar
innihaldslýsingar. Vegna mistaka
kemur ekki fram að í vörunni er
undanrennuduft.
NEYTENDUR
FJARSKIPTI Lýðræðishreyfingin
hefur ekki afnotarétt af útvarps-
tíðninni FM 100,5 samkvæmt
ákvörðun Póst- og fjarskiptastofn-
unarinnar (PFS).
Í ákvörðun stofnunarinnar er
meðal annars komist að þeirri nið-
urstöðu að réttur Lýðræðishreyf-
ingarinnar til afnota af tíðninni
hafi fallið niður um miðjan jan-
úar og stofnuninni hafi því verið
heimilt að endurúthluta henni til
Concert-KEF, sem rekur útvarps-
stöðina Kanann á Keflavíkurflug-
velli.
Lýðræðishreyfingin, sem útvarp-
aði Lýðvarpinu á
tíðninni, óskaði
eftir því við PFS
19. apríl að hún
fengi tíðninni
úthlutað á ný.
Heimild
Kanans til að
útvarpa á tíðn-
inni úr núver-
andi aðstöðu í
lyftuhúsi í Blá-
fjöllum rennur hins vegar út 1.
ágúst næstkomandi. Það er sama
aðstaða og Lýðvarpið nýtti sér
fyrir sendi áður. PFS segir ekki
verða leyft að útvarpa þar vegna
rafsegulmengunar sem óheppileg
sé þar sem margir fari þarna um.
Áður var gerð tilraun til að
útvarpa úr húsi Mílu á svæðinu,
en kom í ljós að útsending þaðan
truflaði fjarskipti Flugstoða.
Einar Bárðarson, útvarps-
stjóri Kanans, segir unnið að því
að finna varanlegan stað fyrir
útvarpsmastur Kanans á svæðinu
og gerir ráð fyrir því að útvarps-
stöðin haldi tíðninni 100,5. „Allur
hringlandi með útsendingartíðn-
ina er mjög slæmur,“ segir hann.
- óká
EINAR BÁRÐARSON
Lýðræðishreyfingin tapar útvarpstíðninni 100,5 samkvæmt ákvörðun PFS:
Kaninn þarf að færa sendi sinn
ALÞINGI Alþingi hefur til meðferð-
ar frumvarp heilbrigðisráðherra
sem miðar að því að einhleypar
konur, sem búa við skerta frjó-
semi, geti notað bæði gjafaegg
og gjafasæði við glasafrjóvgun.
Sama mun gilda um öll pör þar
sem frjósemi beggja er skert.
Önnur umræða um frumvarp-
ið fór fram í gær og stefnt er að
því að það verði að lögum í þess-
um mánuði. Samkvæmt gildandi
lögum er ekki heimilt að nota
gjafaeggfrumu við glasafrjóvgun
einhleyprar konu, heldur aðeins
gjafasæði. - pg
Aukin réttindi við glasafrjóvgun:
Megi nota gjafa-
sæði og gjafaegg
STELPUHNÁTAN OG HERMAÐURINN
Hún reigir höfuðið hátt, þessi litla
stelpa á Indlandi, þegar hún lítur upp
á landamæravörð á landamærum
Pakistans skammt frá Amritsar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP