Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 14
14 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
"Af stað".
Aðalfundur Gigtarfélagsins
Aðalfundur Gigtarfélags Íslands verður haldinn miðviku-
daginn 2. júní, kl. 19:30 á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Stefán Már Gunnlaugsson
sóknarprestur halda erindi er hann nefnir;
Að taka þátt og njóta lífsins með gigt.
Allir eru velkomnir.
Gigtarfélag Íslands
Fækkum þvottum, spörum raforku og vatnið sem er okkur svo kært.
Hvítt og litað aldrei saman í þvottavélina?
Það er nú liðin tíð! Lita- og óhreinindagildran dregur í sig umframlit
og óhreinindi þvottarins. Þú þarft ekki að hafa
áhyggjur lengur af því að blanda saman litum.
Allir litir saman í vélina.
Prófaðu bara
Þvoðu áhyggjulaus
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
SKÓLAR „Þetta er heilmikið kjafts-
högg,“ segir Már Vilhjálmsson,
rektor Menntaskólans við Sund,
þar sem hætta verður við áður
auglýsta breytingu á kennslu fyrir
nýnema í skólanum.
Í vetur var kynnt fyrir nemend-
um í tíunda bekk grunnskóla og
forráðamönnum þeirra breyting
á skólanámskrá MS og innleiðing
á svokölluðu lotubundnu bekkjar-
kerfi. Már segir núverandi bekkj-
arkerfi að mörgu leyti gallað þótt
það sé gott fyrir þá sem ráði við
fullt nám. Ef eitthvað komi upp á
sé heilt námsár undir. Það sé mikið
áfall að þurfa að sitja heilt ár upp
á nýtt.
Már segir ætlunina hafa verið þá
að skipta skólaárinu í fjögur tíma-
bil sem hvert skiptist í átta vikna
lotur. „Þá eru nemendur aðeins í
tveimur til þremur námsgreinum
í einu. Þeir klára námið í áfang-
anum á átta vikum í stað þess að
þurfa að einbeita sér að kannski
átta til tíu námsgreinum í einu,“
útskýrir Már.
Að sögn rektors tekst ekki að
koma nýja kerfinu í gang í haust
vegna þess að ekki náðust samn-
ingar við Kennarasamband Íslands.
Með þessari nið-
urstöðu verði
MS af heilmiklu
aukafjármagni
sem lofað hafi
verið og hún geri
skólann verr
í stakk búinn
til að takast á
við kreppuna.
„Þetta er miklu
hagkvæmara
kerfi og í raun fyrir kennara líka
því í staðinn fyrir að vera með eitt
hundrað og fimmtíu til tvö hundruð
nemendur undir í einu þá eru þeir
bara með sextíu,“ segir Már.
Um sex hundruð krakkar sóttu
um tvö hundruð skólapláss í MS
í forvali. Óvíst er hversu marg-
ir vilja nú breyta þessu vali. „Við
vitum ekki hversu margir sóttu um
vegna kerfisbreytingarinnar sem
við erum búin að vera kynna í allan
vetur,“ segir Már sem kveður von-
brigðin vera mikil. „Núna erum við
að endurskipuleggja skólann til að
takast á við næsta ár á hefðbund-
inn hátt í stað þess að vera að fara
út í spennandi breytingar.“
Aðalheiður Steingrímsdóttir,
formaður Félags framhaldsskóla-
kennara, segir að þegar á reyndi
hafi ekki reynst meirihluti í kenn-
arahópi MS fyrir því að gerðar
yrðu þær grundvallarbreyting-
ar á innra starfi skólans sem til
hafi þurft. Félagið hafi ekki getað
lokið samningagerðinni í andstöðu
við vilja þessa hóps auk þess sem
ekki hafi þótt heppilegt að ganga
frá slíkum samningum í kreppu og
niðurskurði.
„Það var ekki fyrirkomulagið
sem slíkt sem var deiluefni held-
ur fannst hópnum að það væri ekki
búið að undirbúa málið nógu vel.
Þar af leiðandi var kennarahópur-
inn þegar upp var staðið ekki tilbú-
inn til þess að gefa grænt ljós á að
samningarnir yrðu kláraðir,“ segir
Aðalheiður. gar@frettabladid.is
Rektor sleginn yfir
rothöggi á lotukerfi
Ekki verður af upptöku nýs lotukerfis í stað bekkjarkerfisins eins og ætlunin var
í Menntaskólanum við Sund. Ekki samdist við kennara, segir rektor og talar um
kjaftshögg. Breyttar forsendur eru kynntar fyrir umsækjendum um skólavist.
AÐALHEIÐUR
STEINGRÍMSDÓTTIR
MÁR VILHJÁLMSSON Rektor Menntaskólans við Sund er vonsvikinn yfir að ekki tókst að innleiða nýtt kerfi sem hann telur betra
fyrir nemendur, kennara og skólann sjálfan. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN