Fréttablaðið - 02.06.2010, Síða 16
16 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
Elsku Besti flokkur!Innilega til hamingju með stór-
glæsilegan árangur í borgarstjórnar-
kosningunum um helgina. Eins og alþjóð
veit, þá komst þú, sást og sigraðir. Hinum
flokkunum gekk ekki jafn vel.
Kannski mátum við kjósendur það sem
svo að hinir flokkarnir hafi ekki staðið
við loforðin sín. Hafi ekki notað völdin
vel. Hafi frekar notað þau í eigin þágu en
annarra. Hafi ekki hlustað.
Þú lofaðir ýmsu. Vonandi gengur vel að
efna það. Við hlökkum sérstaklega til að
þurfa ekki að taka handklæði með í sund.
Við eigum svo mörg börn að okkur munar
um að þurfa ekki að druslast með fullt
skott af blautum handklæðum.
Nú er þetta í þínum höndum. Og völd-
um fylgir ábyrgð. Fyrsta bíómyndin um
Köngulóarmanninn minnir okkur á það.
Þar sjáum við þegar Peter Parker lætur
ógert að stíga inn í aðstæður og stoppa
skúrk sem vinnur óvinum hans tjón.
Afleiðingarnar eru hræðilegar. Á þetta
er líka minnt í sjónvarpsþáttunum The
Wire, eins og þú þekkir auðvitað mæta
vel. Þar erum við líka minnt á hvað þarf
að vera í lagi til að samfélag sé gott.
Ofurhetja með ábyrgðartilfinningu er
kannski það sem Reykvíkingar óskuðu
sér í þessum kosningum. Mikill vandi
blasir við einstaklingum og samfélaginu
öllu. Inn í þessar aðstæður þarf að stíga,
slá vörð um velferð og styðja við fólk á
öllum aldri. Til þess varst þú valinn.
Nú ríður á að nota okkar sameiginlegu
sjóði sem best. Af því að þeir eru ekki
ótakmarkaðir, þarf að ákveða hvað verð-
ur gert og hvað er látið ógert. Kannski
eru ókeypis handklæði ekki það sem mest
liggur á. Við treystum þér til að velja
rétt.
Gangi þér allt í haginn!
Völdum fylgir ábyrgð – opið bréf
Borgarmál
Árni Svanur
Daníelsson
prestur
Kristín Þórunn
Tómasdóttir
prestur
Þú lofaðir ýmsu.
Vonandi gengur
vel að efna það.
Við hlökkum sér-
staklega til að þurfa ekki að taka
handklæði með í sund.
Gjörningaflokkurinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknar, gerði góða tilraun
til að hrekja gagnrýni Guðmundar
Steingrímssonar um að flokkurinn
virkaði of herskár og einstrengingsleg-
ur með því að … öh, bregðast öskuill-
ur við. Í fréttum RÚV á mánudag sagði
hann að annað hvort væri um gjörn-
ing að ræða af hálfu Guðmundar eða
ótrúlega ósvífni. Í Tíufréttum var svo
lesin yfirlýsing frá formanninum þar
sem hann tíundaði það sama og
hann sagði fyrr um kvöldið. Í heitu
pottunum áttu menn erfitt með að
átta sig á þeirri uppákomu. Spurði
þá einn hvort það væri einmitt ekki
einkenni á góðum gjörningi?
Hvaða stöðu?
Enn um Framsókn. Gunnar Bragi
Sveinsson hefur hvatt Einar Skúla-
son, oddvita listans í Reykjavík, til
að „íhuga stöðu sína“ eftir afhroð
helgarinnar. Þetta hlýtur að vera ein
máttlausasta krafa sem sett
hefur verið fram
lengi. Hvað vill
Gunnar Bragi að
Einar geri? Segi
af sér sem
borgar-
fulltrúi?
Frjáls Palestína
Mótmælendur söfnuðust saman fyrir
utan utanríkisráðuneytið í fyrradag
vegna árása Ísraelsmanna á skipalest
sem flutti neyðargögn á Gasa-strönd-
ina. Margir hrópuðu slagorð á borð
við „Frjáls Palestína“ og „Frjáls Gasa“.
Meðal þeirra sem hrópuðu svo
var Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra. Hann hefur ákveðið
forskot á aðra mótmælendur. Í
krafti stöðu sinnar getur hann
nefnilega beitt sér fyrir því að
Palestína verði frjálst ríki. Eða
ætlar utanríkisráðherra að láta
sér nægja að steyta hnefa á
útifundum?
bergsteinn@frettabladid.isE
nn hafa Ísraelsmenn gengið fram af heimsbyggðinni með
árás Ísraelshers á skipalest sem var á leið með hjálpar-
gögn til Gasasvæðisins, árás sem kostaði að minnsta kosti
tíu manns lífið.
Þeir eru orðnir fáir eftir sem treysta sér til að verja
hernað Ísraelsríkis á hendur Palestínumönnum. Þó er það svo að
stjórnvöld í Ísrael treysta sér enn til að halda þeim áfram og ástæð-
an er augljós. Alþjóðasamfélagið samþykkir með aðgerðaleysi sínu
þessar aðgerðir og meðan það grípur ekki til harðra aðgerða sem
sýna Ísraelsmönnum fram á að það líður ekki framgang þeirra við
Palestínumenn þá mun hernaði Ísraelsmanna ekki linna.
Þingmenn allra flokka fordæmdu á Alþingi í gær árásina en full-
trúar Sjálfstæðisflokks í utanríkismálanefnd stóðu ekki að sam-
þykkt meirihluta nefndarinnar þar sem utanríkisráðherra er falið
að meta, í samvinnu við aðrar
þjóðir, hvaða úrræðum unnt sé
að beita til að knýja á um breyt-
ingar, svo sem með alþjóðlegri
samstöðu um viðskiptaþvingan-
ir eða slitum á stjórnmálasam-
bandi ef önnur úrræði leiða ekki
til árangurs.
Í samtali við Fréttablaðið í
gær sagðist palestínski rithöf-
undurinn Suasan Abulhawa kenna alþjóðasamfélaginu um stöðuna.
„Það hefur leyft Ísraelsmönnum að fara sínu fram án þess að það
hafi minnstu afleiðingar,“ sagði Abulhawa en bók hennar Morgnar
í Jenín er nýkomin út í íslenskri þýðingu. Abulhawa óttast að hið
sama verði upp á teningnum nú; þjóðir munu fordæma árásina,
fara fram á rannsókn á tildrögum hennar en svo ekki aðhafast
frekar. Og það er einmitt þarna sem hnífurinn stendur í kúnni.
Palestínska þjóðin hefur verið hrakin áratugum saman. Það sést
best þegar skoðuð eru kort sem sýna útþenslu yfirráðasvæðis Ísra-
elsmanna síðustu áratugi. Hernaði er beitt og öllum er kunnugt við
hlutskipti þeirra Palestínumanna sem búa við fátækt og einangrun
á Gasasvæðinu. Árás á leiðangur sem sendur er til hjálpar þessu
fólki er með slíkum ólíkindum að orð fá því varla lýst.
Það liggur fyrir að tími orða er liðinn. Nú verður að fylgja for-
dæmingum eftir í verki. Meðan alþjóðasamfélagið grípur ekki til
harðra aðgerða svo sem viðskiptaþvingana eða slita á stjórnmála-
sambandi mun aðgerðum Ísraelshers ekki linna, þvert á móti munu
þeir stöðugt ganga lengra.
Almennir borgarar geta sýnt hug sinn í verki með því að hafna
vörum sem framleiddar eru í Ísrael. Það er sjálfsagt að sýna þann
hug. Það er þó fyrst og fremst táknræn aðgerð. Það sem vegur er
alþjóðleg samstaða um að líða ekki framgöngu Ísraels gagnvart
Palestínu, eða hversu lengi ætlar alþjóðasamfélagið að fordæma
og líta svo strax undan?
Þjóðir heims verða nú að taka höndum saman og sýna Ísraelsríki
fram á að þær líði ekki hernað þess gegn Palestínumönnum. Það
er vonum seinna og verður því að gerast án tafar.
Alþjóðasamfélagið verður að stöðva hernað
Ísraelsmanna á hendur Palestínumönnum.
Samþykki með
aðgerðaleysi