Fréttablaðið - 02.06.2010, Blaðsíða 22
MARKAÐURINN 2. JÚNÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Þórunn Elísabet Bogadóttir
skrifar
„Þetta átak algjörlega sló í gegn, að öllu leyti,“ segir
Gústaf Gústafsson markaðs- og fjáröflunarstjóri
Krabbameinsfélags Íslands um nýlegt markaðsátak
félagsins, mottumars.
„Allt í allt söfnuðu um 38 þúsund karlmenn yfir
átján ára aldri yfirvaraskeggi sérstaklega til styrkt-
ar þessu átaki. Það er um það bil einn af hverjum
þremur mönnum.“ Fjáröflun gekk sérlega vel í gegn-
um heimasíðu mottumars, þar sem um 65 prósent
kvenna tóku þátt, og 59 prósent karla. Meira fé safn-
aðist en búist hafði verið við. „Þetta er magnaður ár-
angur hvort sem um er að ræða Ísland, Evrópu eða
heiminn allan.“
Gústaf segir margt hafa verið gert á nýjan hátt, þó
að upprunalega hugmyndin um sérstakt átak fyrir
karla og krabbamein komi frá Noregi. Mikil áhersla
var lögð á að fá fólk til liðs við verkefnið sem hafði
áhuga og vildi breiða út boðskapinn. „Fjörutíu pró-
sent af allri umferð á heimasíðunni kom í gegnum
Facebook. Við náðum að virkja þessa nýmiðla alveg
gríðarlega vel og ég held að það hafi verið lykillinn
að þessari miklu velgengni. Fyrir utan að yfirvara-
skegg er þrælfyndið og ekki mikil hefð fyrir því síðan
á diskótímabilinu. Þetta var ný nálgun og húmorinn
leiddi þetta, þó að alvaran sé auðvitað undirliggjandi.“
Gústaf segir nálgunina hafa virkað vel á karlmenn,
en strax hafi verið lagt upp með að ekki væri hægt
að nálgast þá á sama hátt og konur. „Það sýnir í raun-
inni markaðshugsunina á bak við þetta.“
„Það er ekki nóg að vera með gott málefni, það þarf
að koma því á framfæri og vinna fyrir því, og sækja
þann stuðning sem við fáum. Það er ekkert sjálfgefið
að almenningur setji traust sitt á félagið, það þarf að
vinna traust hans og nota peningana í góða hluti,“ segir
Gústaf. „Fjáröflun er ekki tilgangur heldur nauðsyn-
legt verkfæri til að ná fram markmiðum.“
Bandaríski auðkýfing-
urinn Warren Buffett
svarar í dag spurning-
um bandarískrar þing-
nefndar sem skoðar
meðal annars hlut mats-
fyrirtækja í aðdraganda
hrunsins.
Fjárfestingarfélag
Buffetts á þrettán pró-
senta hlut í matsfyrir-
tækinu Moody‘s. Buffett hefur
ekki forðast kastljós fjölmiðla
en þráaðist við að mæta þing-
nefndinni og þurfti að stefna
honum til þess.
Helstu matsfyrir-
tæki heims hafa verið
gagnrýnd fyrir að gefa
vafasömum skulda-
bréfavafningum góða
einkunn. Meðal lána-
vafninga sem fengu
grænt ljósi hjá Moody‘s
voru undirmálslán sem
ýttu kreppunni úr vör.
Einnig þykir gagnrýni-
vert að tveir þriðju hlutar af
tekjum Moody‘s koma frá fjár-
málafyrirtækjum, sem þurfa á
mati að halda.
- jab
Vill ekki á fund
WARREN BUFFETT
Nouriel Roubini, prófessor í hag-
fræði við New York-háskóla í
Bandaríkjunum, segir stjórnvöld í
Brasilíu verða að innleiða gjaldeyr-
ishöft ætli þau að koma í veg fyrir
gengishrun brasilíska realsins.
Roubini, sem heimskunnur er
fyrir varnaðarorð og svartsýnis-
spár um þróun efnahagsmála á
heimsvísu, sagði á ráðstefnu í
Sao Paolo í fyrradag gengishrun-
ið koma illa við brasilískan út-
flutning og skaða samkeppnis-
hæfni landsins. „Ef gjaldeyris-
höft eru notuð skynsamlega má
koma í veg fyrir frekara tjón,“
hefur breska dagblaðið Financial
Times eftir honum. Fleira þarf að
laga til í brasilísku efnahagslífi og
draga úr hitanum í hagkerfinu. Þá
sýndi sig að þótt draga megi úr út-
gjöldum hins opinbera megi ekki
draga lappirnar í menntamálum.
Það muni skila sér síðar.
Fjármálayfirvöld í Brasilíu
lögðu tveggja prósenta skatt á er-
lent fjármagn í október í fyrra til
að stemma stigu við innflæði á er-
lendu fjármagni en fjárfestar hafa
séð hag í því að festa fé sitt í land-
inu og ávaxta það í skugga hárra
stýrivaxta. - jab
ROUBINI Varð þekktur þegar spá hans um
ofhitnun á bandarískum fasteignamarkaði,
verðhrun og kreppu frá 2006 gekk eftir.
Herra Dómsdagur vill gjaldeyrishöft
„Það vantar ekki hugmyndir, held-
ur fólk til að gera þær að veru-
leika,“ segir Eyþór Ívar Jónsson,
framkvæmdastjóri Klaks – ný-
sköpunarmiðstöðvar atvinnulífs-
ins, sem rekur Viðskiptasmiðjuna
í félagi við Háskólann í Reykja-
vík. Viðskiptasmiðjan gefur frum-
kvöðlum möguleika á að stofna ný
fyrirtæki eða koma fyrirtækjum
sínum á rétta braut.
Eyþór var á meðal þeirra for-
svarsmanna nýsköpunarfyrir-
tækja sem kynntu starfsemi sína
á árlegum kynningarfundi um
stuðningsumhverfi nýsköpunar
sem haldinn var í tilefni af evr-
ópsku fyrirtækjavikunni (SME
Week) á Grand Hótel í síðustu viku.
Um tvö hundruð manns mættu á
fundinn og hlýddu á fulltrúa nokk-
urra af helstu frumkvöðlafyrir-
tækjum landsins miðla af reynslu
sinni. - jab
FRÁ EINUM KYNNINGARBÁSANNA Um tvö hundruð manns mættu á kynningarfund
um stuðning við íslenska nýsköpun í síðustu viku og hlýddu á fulltrúa helstu frumkvöðla-
fyrirtækja landsins lýsa reynslu sinni. MARKAÐURINN/GVA
Auglýst eftir fólki -
ekki hugmyndum
Magnaður mottumars
Nýjasta markaðsátak Krabbameinsfélagsins sló algjörlega í
gegn. Ríflega 60 prósent landsmanna tóku þátt.
GÚSTAF Segir mikilvægt að félög sem standa í fjáröflunum og
átaki af þessu tagi segi frá góðum árangri. Fólk vilji heyra þegar vel
gengur og að peningarnir séu notaðir í góða hluti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hafðu samband
símiVerðbréfaþjónusta Arion banka
er söluaðili sjóða Stefnis.
Góð leið til að fjárfesta
í verðtryggðum skuldabréfum.
Stefnir - Ríkisskuldabréf verðtryggð
Stefnir: Ríkisskuldabréf verðtryggð er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildar-
skírteinum sjóða, t.d. getur fjárfestingin rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun sjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarávöxtun þeirra. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á.m. nánari upplýsingar um áhættu við
fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á www.arionbanki.is/sjodir.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
50
19
5
05
/1
0