Fréttablaðið - 02.06.2010, Qupperneq 26
2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR2
REYKJANESBÆR
Næstkomandi laugardag verður
fjáröflunarveisla, til styrktar
þeim íbúum Suðurlands sem
farið hafa illa út úr eldgosinu í
Eyjafjallajökli, haldin á veitinga-
stað Flughótels, Vocal Restaur-
ant, í Reykjanesbæ.
Að fjáröfluninni standa Vocal
Restaurant og Rauði kross
Íslands og hefst dagskráin klukk-
an 18.00, með fordrykk, lystauk-
um og opnun á ljósmyndasýningu
Blaðaljósmyndarafélags Íslands.
Í kjölfarið er boðið upp á fjögurra
rétta glæsikvöldverð með hrá-
efni úr náttúru Íslands og milli
rétta verða óvæntar uppákomur,
skemmtiatriði og lifandi tónlist.
Veislustjóri verður sjónvarps-
maðurinn kunni Gísli Einarsson,
og mun hann einnig stýra upp-
boði á ljósmyndum og listaverk-
um. Miðaverð er 7.500 krónur og
rennur allur ágóðinn af miðaverð-
inu til Rauða kross Íslands. Vocal
Restaurant er við Hafnargötu 57
í Keflavík og pantanir eru teknar
niður fyrirfram. - jma
Fjáröflun á Flughóteli
Fjáröflunin er til styrktar þeim íbúum
Suðurlands sem orðið hafa illa út úr
eldgosinu í Eyjafjallajökli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Árlegur blómamarkaður Systra-
félags Ytri-Njarðvíkurkirkju hefst
í dag. Markaðurinn er haldinn í
29. sinn.
„Á hverju ári seljum við sumar-
blóm,“ segir Sigrún Alda Jens-
dóttir, formaður Systrafélags Ytri-
Njarðvíkurkirkju. „Við verðum
með öll helstu sumarblómin, rósir
og eitthvað örlítið af fjölæru.“
Systrafélag Ytri-Njarðvíkur-
kirkju er líknarfélag og er blóma-
markaðurinn helsta fjáröflunarleið
þeirra. „Markaðurinn hefur allt-
af gengið mjög vel. Hann er orð-
inn eina fjáröflunarleiðin okkar,“
segir Sigrún en félagið er 42 ára
gamalt. „En er búið að vera með
þessa blómasölu í 29 ár.“
Að sögn Sigrúnar verður
Systrafélagið með kaffi og með-
læti á staðnum en markaðurinn
er haldinn fyrir utan Ytri-Njarð-
víkurkirkju. „Þetta er orðin hefð
í bænum. Sumarið er að koma
þegar við mætum með blómin
okkar fyrir utan kirkjuna. Þetta
er sumarstemningin.“
Markaðurinn verður opinn mið-
vikudag og fimmtudag frá 16 til 20
og föstudag frá klukkan 13 til 17.
- mmf
Blóm boða sumar
Öll helstu sumarblómin verða á boðstólum á blómamarkaði við Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Garðskagi er ein af perlum
Suðurnesja, með mikilli náttúru-
fegurð og fuglalífi. Smá ferðalag
í Garðinn, út að Garðskagavita,
er gefandi upplifun fyrir alla
fjölskylduna.
Útskálar, kirkjustaðurinn í Garði,
var eitt mesta höfuðból Suðurnesja
áður fyrr og Útskálakirkja er lítil
og falleg kirkja sem gaman er að
skoða. Kirkjan var reist á árunum
1861-1863, ekki er síður vert að
gefa kirkjugarðinum gaum, þar
sem lesa má sögu fólks og atburði
út úr gömlum minningamörkum.
Garðskagavitar eru tveir, eldri
vitinn frá árinu 1897 og sá yngri
frá 1944. Sá yngri sést alls stað-
ar að úr Garðinum og setur heill-
andi svip á svæðið. Fjöruna þar er
líka skylda að ganga, en hún er ein
af fáum heiðgulum sandströndum
á Íslandi og geta ungir sem aldn-
ir eytt löngum tíma í að finna þar
fjársjóði. Garðskagabúar böð-
uðu sig hér áður fyrr í sjónum við
ströndina og sé veðrið gott er ekki
úr vegi að prófa, en straumar geta
hins vegar oft verið sterkir og því
mikilvægt að fara varlega.
Garðskagi er talinn einn besti
fuglaskoðunarstaður Reykja-
ness og Garðurinn er því vinsæll
áningarstaður fuglaskoðara sem
keyra þangað til þess eins að liggja
úti í móa með kíki í hendi, sérstak-
lega á vorin og haustin. - jma
Heiðgul fjara og fuglalíf
Vitinn nýi á Garðskaga setur heillandi
svip á litla byggðakjarnann í Garði.
Norður-Ameríku- og Evrasíuflekana rekur í sund-
ur samkvæmt kenningum jarðfræðinga og rek-
beltið liggur meðal annars yfir Reykjanesið og
norðaustur um landið.
Því er stundum talað um að Mið-Atlantshafs-
hryggurinn „gangi á land“ á Reykjanesi og Reykja-
nesið marki skil milli flekanna þar sem skilin birt-
ast sem opnar sprungur og gjár.
Táknræn brú var byggð milli flekanna upp af
Sandvík á Reykjanesi og gaman er fyrir ferðalanga
að upplifa það að ganga á milli þessara fleka, þar
sem segja má að fólk gangi á milli heimsálfa. -jma
Táknræn brú milli
flekanna hjá Sandvík
Jarðfræðiáhugamenn finna ýmislegt við sitt hæfi á Reykjanesi, meðal
annars upp af Sandvík.
2ja til 6 manna herbergi.
Öll herbergi með sér baðherbergi.
Morgunverðarhlaðborð kl. 4:30-9:30.
GYM salur fyrir okkar gesti.
Gerum föst tilboð í
gistingu fyrir hópa.
Höfum til leigu í Vallarhverfi,
Keflavíkurflugvelli
Símar: 426 5000/899 2570
Geymsla á bíl.
Akstur til og
frá flugvelli
Valhallarbraut 761, Keflavíkurflugvelli
gistihus@internet.is
Hafnargata 57, Keflavík / sími 421 5222www.flughotel.is
Toppaðstaða við öll tækifæri
Flughótel er fjögurra stjörnu hótel í hjarta Reykjanesbæjar. Á Flughóteli er hinn rómaði veitinga-
staður VOCAL þar sem gestum er boðið upp á framúrskarandi þjónustu og ljúffengar veitingar.
Flughótel er kjörinn ráðstefnu- og fundarstaður með fjóra sérsniðna og glæsilega fundarsalir fyrir
15 til 150 manns. Við bjóðum þér að njóta toppaðstöðu Flughótels við öll tækifæri.