Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 29

Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 5FRANSKIR BÍLAR endast verst í Nor- egi segir í frétt í bílatímaritinu BilNorge sem byggð var á tölum yfir afskráða bíla sem sendir voru í eyðingu. Volvo og Mercedes eru langlífastir samkvæmt sömu tölum. TVEIR STÓRGÓÐIR !! Laugavegi 178 - Sími: 551 2070 Sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vertu vinur teg. 4457 - gamli, góði íþrótta- haldarinn í BCD skálum fæst í hvítu, húðlitu og svörtu á kr. 4.350,- teg. 75526 - mjög fl ottur íþróttahaldari í BCD skálum, fæst í hvítu og svörtu á kr. 4.350,- Laugavegi 178 - Sími: 562-1000 - www.utivist.is Jónsmessuhátíð Útivistar í spennandi umhverfi . Nánari upplýsingar á utivist.is LAGERSALA 50-90% afslá ur TÍSKUFATNAÐUR ÚR VERSLUNINNI ILSE JACOBSEN - KOMIÐ OG GERIÐ FRÁBÆR KAUP Á NÝRRI SUMAR- LÍNU - VÖNDUÐ VARA Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI TOPPAR - KJÓLAR - SKOKKAR - BOLIR - PILS - BUXUR - JAKKAR - KÁPUR - SKÓR - STÍGVÉL - SKART O.FL. LANGHOLTSVEGUR 126, 104 REYKJAVIK, s. 618 4150. Opið: Fimmtudaginn 3. júní kl.12-18 Föstudaginn 4. júní kl.12-18 Laugardaginn 5. júní kl.12-18 Sunnudaginn 6. júní kl.12-17 Missið ekki af þessu einstaka lboði ! Tvö ár í röð hefur Sigurrós sigrað í sparaksturskeppni Atlantsolíu og FÍB í flokki bensínbíla með vélar- stærð 1201-1600 cm³. Í bæði skipt- in hefur hún ekið Toyota Yaris. Hún var eina konan sem tók þátt í keppninni sem haldin var í síðustu viku og bíllinn hjá henni eyddi 4,45 lítrum á hundraði. Hvernig er farið að því? „Auðvitað eru öll trikk notuð til að eyða sem minnstu í svona keppni. Maður kveikir til dæmis hvorki á útvarpi, miðstöð né sjálf- virkri loftstillingu því rafmagns- eyðsla er jafnframt bensíneyðsla. Í daglegum akstri gengur maður auðvitað ekki svo langt en reynir að hafa tilfinningu fyrir bensín- gjöfinni og augu á snúningshraða- mælinum sem á helst ekki að fara yfir 200.“ Sigurrós segir sparakstur ekki endilega þýða mjög hægan akstur. „Best er að taka þokkalega ákveð- ið af stað og ná jöfnum hraða sem fyrst,“ segir hún. „Leyfa bílnum að vinna sjálfum upp brekkur, án þess að gefa of mikið í, en slá af og láta hann rúlla niður og grípa svo inn í með pedalann á réttum tíma. Það þarf líka að beita lagni í beygjum til að halda hraðanum sem jöfnust- um.“ Hún tekur fram að auðveldara sé að stunda sparakstur á vegum úti en í þéttbýlinu því allt stopp kosti peninga „Ef maður heldur sig í hæsta gír á 80-90 kílómetra hraða á sléttum þjóðvegum þá er bensíneyðslan í lágmarki. Þetta er erfiðara í bænum innan um öll umferðarljósin.“ Í keppninni í síðustu viku var ekinn Þingvallahringur, þaðan út á Selfoss og Eyrarbakka og um Þrengslin til baka. „Við lentum í miklu roki út við ströndina og það jók á bensíneyðsluna,“ segir Sigur- rós sem var ein í bílnum en kveðst hafa þjálfað sig aðeins í sparakstri fyrir keppnina í fyrra með tækni- stjórum fyrirtækisins. „Svo tók ég fjölskylduna með í skemmtilegan bíltúr en hún sofnaði öll á meðan ég æfði mig,“ segir hún hlæjandi. En er hún alltaf meðvituð um að eyða sem minnstu bensíni dags daglega? „Ekki alveg alltaf því stundum þarf ég að flýta mér. Þó hef ég reynt að temja mér sparakst- ur og honum fylgir líka öryggi því maður keyrir gætilegar. Svo er gott að hafa eyðslumæli í bílnum. Þá fer maður ósjálfrátt að reyna að ná töl- unni niður.“ gun@frettabladid.is Gott að hafa eyðslumæli Eldsneytisverð er í þeim hæðum hér á landi að eftir miklu er að slægjast með því að temja sér sparakst- ur. Sigurrós Pétursdóttir, vörustjóri hjá Toyota, hefur náð góðum árangri í þeirri viðleitni. „Ég hef reynt að temja mér sparakstur og honum fylgir líka öryggi því maður keyrir gætilegar,“ segir Sigurrós. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ef bæði bíllinn og ökumaðurinn eru góðir er árangurinn eftir því „Ég vil nú alls ekki vera að monta mig því bíllinn er langstærsti póst- urinn í þessu, en auðvitað þarf ökumaðurinn að búa yfir ákveð- inni leikni líka,“ segir Margeir K. Eiríksson, sölumaður Volkswag- en hjá Heklu, sem náði bestum árangri í Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu síðastliðinn mið- vikudag þegar hann ók Volkswag- en Polo bifreið, árgerð 2010, með 1.6 lítra diesel vél. Bíllinn eyddi einungis 2,93 lítrum af eldsneyti á hundraði og er það besti árangur sem náðst hefur í keppninni síðan hún var fyrst haldin árið 2005. Margeir er að vonum ánægður með árangurinn, en hann hefur starfað hjá Heklu síðan 1983. „Ég hef verið að keyra bíla á sýninga- ferðum um landið í mörg ár og það hjálpar klárlega til. Nú bíð ég bara eftir því að tilboðin frá bílaumboð- unum fari að streyma inn fyrir næstu keppni,“ segir Margeir og hlær. - kg Aldrei náðst betri árangur Margeir sigraði á Volkswagen Polo.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.