Fréttablaðið - 02.06.2010, Blaðsíða 46
26 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Svo getur farið að Peter Jackson
leikstýri Hobbitanum í stað hins
mexíkóska Guillermo del Toro.
Jackson leikstýrði Lord of the
Ring-myndunum þremur með
flottum árangri og er einn af
handritshöfundum Hobbitans,
sem gerist á undan Lord of the
Rings. Del Toro hætti við að leik-
stýra myndinni vegna tafa hjá
framleiðandanum Warner Bros.
Ef enginn leikstjóri fæst í staðinn
er Jackson tilbúinn að hlaupa í
skarðið. „Ef ég þarf að gera þetta
til að vernda fjárfestingu Warner
Bros þá er ég tilbúinn til að skoða
það,“ sagði Jackson.
Vill leikstýra
Hobbitanum
PETER JACKSON Leikstjóri Lord of the
Ring ásamt leikkonunni Saoirse Ronan.
Auglýsingaplakat með Benna Hemm
Hemm og Skotanum Alasdair Roberts
vegna tónleika þeirra á Listahátíð í
Reykjavík hefur vakið athygli í strætó-
skýlum borgarinnar. Myndin á plakatinu
var tekin í Glasgow og þar skartar Alas-
dair myndarlegu glóðarauga.
„Rétt áður en við fórum í að taka þessa
mynd var ráðist á Alasdair á karókíbar
af því að hann var með naglalakk á putt-
unum,“ segir Benni en bætir við að hann
hafi ekki meiðst alvarlega í árásinni.
„Hann gerði einhverjar tilraunir með
naglalakk og það var aðeins tekið í hann.
Við erum eins og einhverjir Glasgow-
mafíósar á þessari mynd.“
Benna og Alasdair til halds og trausts
á tónleikunum verður Blásarasveit
Reykjavíkur og hafa æfingar staðið yfir
að undanförnu. „Þetta hljómar stórkost-
lega, sem er ekki vaninn á fyrstu æfingu.
Það er ógeðslega flott sánd í hljómsveit-
inni,“ segir Benni, sem var veikur þegar
hann samdi tónlistina. „Mér datt þetta
fyrst í hug þegar ég var með hita og óráð
uppi í rúmi og leið hræðilega. Svo sá ég
fyrir mér gróflega þessa hugmynd og
fór að pæla í hvernig ég ætlaði að hafa
hana. Svo fattaði ég að ég var orðinn full-
frískur.“ Í textunum blanda þeir félagar
saman íslensku og skoskri ensku svo úr
verður nánast nýtt tungumál.
Tónleikarnir verða í Íslensku óper-
unni á fimmtudagskvöld og í Ketilhúsinu
á Akureyri á laugardaginn á tónlistar-
hátíðinni AIM. - fb
Laminn vegna naglalakks
SAMSTARFSMENN Eins og sjá má er Alasdair
búinn að jafna sig eftir árásina. Tónleikar hans
og Benna verða á fimmtudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
> FLYTJA SIG UM SET
Hjónakornin Scarlett Johansson og
Ryan Reynolds hafa fest kaup á nýju
húsi í Louisiana-ríki. Heimildarmenn
segja hjónin hafa farið í miklar endur-
bætur á húsinu og munu þau meðal
annars notast að mestu við rafmagn
framleitt með sólarorku.
Ólátabelgurinn Liam Gallagher
segir að dauði hljómsveitarinnar
Oasis sé það besta sem gat gerst.
Hann segist hafa áttað sig á því
að nú sé hann frjálsari en hann
var áður.
Söngvarinn vinnur nú að því
að kynna fatalínuna sína, Pretty
Green, í Bandaríkjunum og sagði
í viðtali við New York Times
að hann væri að einbeita sér að
eigin ferli. „Þetta var það besta
sem gat gerst vegna þess að núna
höfum við frelsi
til að gera það
sem við viljum,“
sagði hann.
Liam stað-
festi í viðtalinu
að hann og Noel
bróðir hans hefðu
ekki talast við
síðan hann
yfirgaf
Oasis í
ágúst.
Loks
sagði Liam
í viðtalinu
að afar fáir
væru jafn
töff í dag og
hann væri.
„Ég vil bara
að fólk sem
er nógu
töff klæðist
fatalínunni
minni,“ sagði
hann. „Ekki
bara hver sem
er.“
Liam loksins
frjáls og töff
TÖFF Liam segist
ekki vilja að fólk
sem er ekki töff
klæðist fatalínunni
hans.