Fréttablaðið - 02.06.2010, Síða 54
34 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. lingeðja, 6. ullarflóki, 8. vafi,
9. óhreinka, 11. 999, 12. tala, 14.
akstursíþrótt, 16. í röð, 17. að, 18.
mælieining, 20. til dæmis, 21. ókyrr.
LÓÐRÉTT
1. ríki í Arabíu, 3. tveir eins, 4. yfirsýn,
5. pili, 7. vífilengjur, 10. angra, 13.
hnoðað, 15. rotnunarlykt, 16. átti
heima, 19. kusk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. meyr, 6. rú, 8. efi, 9. ata,
11. im, 12. númer, 14. rallý, 16. bd,
17. til, 18. júl, 20. td, 21. órór.
LÓÐRÉTT: 1. íran, 3. ee, 4. yfirlit, 5.
rim, 7. útúrdúr, 10. ama, 13. elt, 15.
ýlda, 16. bjó, 19. ló.
„Ég hlusta á svo mikið en í fljótu
bragði nefni ég Rósin Murphy -
Overpowered, Sometime - Artif-
icial, Bat for Lashes - Daniel“
Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir, eigandi KOW
Kristján Kristjánsson, best þekkt-
ur sem KK, semur Þjóðhátíðarlag-
ið í ár en það verður frumflutt á
sérstakri for-Þjóðhátíð sem halda
á í Reykjavík í sumar. Þetta verð-
ur í fyrsta skipti sem þessi háttur
verður hafður á, að sögn Tryggva
Más Sæmundssonar sem á sæti í
Þjóðhátíðarnefndinni. Allar hljóm-
sveitir sem koma fram á Þjóðhátíð
um verslunarmannahelgina troða
upp á reykvísku hátíðinni en bæði
Dikta og Páll Óskar Hjálmtýsson
hafa boðað komu sína. Rúsínan í
pylsuendanum verður auðvitað
flutningur Þjóðhátíðarlags KK en
hann tekur við keflinu af Bubba
Morthens sem átti lagið í fyrra
ásamt Egó.
KK var staddur á Akranesi eftir
að hafa þurft að sigla í land undan
brælunni á Faxaflóa. „Ég fékk
þetta verkefni strax í janúar og
hef eiginlega legið yfir því bæði
dag og nótt síðan,“ spaugar KK,
en hann bjóst við því að fara með
lagið í hljóðver strax eftir helgi.
Hann ætlar að syngja það sjálfur
og hafði ekki gert ráð fyrir því að
fá í lið með sér einhverja gesta-
söngvara. „En ef svo fer, þá hóa
ég bara í þá úr hljóðverinu.“ KK
hefur þegar spilað lagið fyrir kon-
una sína og Eyþór Gunnarsson,
mág sinn. Og að hans sögn voru
þau bæði ákaflega hrifin. „Þetta
er lag í ljúfari kantinum, svona
týpískt KK-lag enda hlýtur það að
vera það sem þeir vilja fyrst þeir
báðu mig um að semja það. Ann-
ars vona ég bara að lagið henti vel
fyrir Þjóðhátíð í Eyjum.“
KK hefur oft spilað á Þjóðhá-
tíð og það er ekki óalgengt að lög
eftir hann séu kyrjuð í hinum
frægu hvítu hústjöldum sem
skreyta Herjólfsdalinn yfir versl-
unarmannahelgina, Besti vinur og
Vegbúinn þar vinsælust. „Eyja-
menn eru duglegastir allra Íslend-
inga að syngja, þeir syngja sig í
gegnum allt, gleði, sorg og erfið-
leika. Það er því mikil ábyrgð sem
fylgir þessum lagasmíðum,“ segir
tónlistarmaðurinn en fyrsta Þjóð-
hátíðarlagið var Ég veit þú kemur
eftir Ása í Bæ og Oddgeir Kristj-
ánsson. Það var samið fyrir Þjóð-
hátíðina í Eyjum árið 1962.
freyrgigja@frettabladid.is
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON: MIKIL ÁBYRGÐ HVÍLIR Á MÍNUM HERÐUM
KK semur Þjóðhátíðarlagið
Í ÞJÓÐHÁTÍÐARSTUÐI Kristján Kristjánsson, KK, semur Þjóðhátíðarlagið í ár og verður það frumflutt á for-þjóðhátíð í Reykjavík í
sumar. Dikta og Páll Óskar hafa þegar boðað komu sína á þessu miklu verslunarmannahelgarveislu úti í Eyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Ólafur F. Magnússon.
2. Einar er fimmtugur.
3. Guðrún Valdimarsdóttir
hagfræðingur.
Hún hefur væntanlega
ekki verið auðveld,
byrjunin á Íslands-
mótinu í fótbolta fyrir
þá sem lýsa leikjum
karlaliðs KR í Pepsi-
deildinni í KR-útvarp-
inu. Þeir ætla hins
vegar að vera á vell-
inum í Eyjum þegar
Vesturbæjaveldið etur kappi við
spútniklið Eyjamanna. Lýsendur KR-
útvarpsins eru miklir reynsluboltar
úr fjölmiðlaheiminum, Bogi Ágústs-
on, sonur hans Ágúst Bogason og
Haukur Hólm. Nýjasti liðsmaðurinn
er hins vegar Popppunkts-kóngur-
inn Felix Bergsson.
Elli og félagar í
hljómsveitinni Jeff
Who? fá í kvöld að
sjá í fyrsta skipti
tónlistarmyndböndin
sem voru tekin upp
með hljómsveitinni
vegna markaðsher-
ferðar Reyka Vodka
í Bandaríkjunum
sem er að fara í
gang. Myndbönd-
in voru tekin upp í
myndveri Latabæjar fyrr á árinu og
verða þau sýnd á völdum veitinga-
og skemmtistöðum í Bandaríkj-
unum, þar á meðal í New York,
Chicago og San Francisco. Kynning-
arpartí vegna herferðarinnar verður
síðan haldið á Austur Steikhúsi
annað kvöld þar sem fjöldi góðra
gesta verður viðstaddur.
Vonbrigðin voru mikil þegar
niðurstaðan í Eurovision var ljós.
Nítjánda sætið var staðreynd þrátt
fyrir að landsliðsmaðurinn Grétar
Rafn Steinsson hafi lagt sín lóð
á vogarskálarnar og hreinlega
platað liðsfélaga sína í Bolton til
að kjósa Ísland. Grétar sendi þeim
sms með orðunum „I‘m in trouble,
please call me at“ og setti svo inn
kosninganúmer Íslands.
Lúmskur, Grétar, en
það er spurning hvort
liðsfélagarnir hafi ekki
séð við honum því
hann gerði þetta líka
í fyrra og þá hafnaði
Ísland í öðru
sæti.
- fgg/fb/afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er eins og þegar maður býr
í Vestmannaeyjum þá fær maður
eftirnafn. Þetta er eftirnafnið mitt
og ég er búinn að taka því og fagna
því,“ segir Birgir Örn Steinarsson
– Biggi Maus.
Biggi hefur verið kenndur við
hljómsveit sína Maus síðan hún
sló í gegn um miðjan tíunda ára-
tug síðustu aldar. Síðustu misseri
hafa fjölmiðlar bætt „í“ í nafnið
þannig að hann hefur verið nefnd-
ur Biggi í Maus. Biggi vill ekki sjá
það, en gengst í staðinn við því að
vera kallaður Biggi Maus og lítur á
það sem listamannanafn sitt.
„Mér finnst Biggi Maus miklu
fallegra en Biggi í Maus – eins og
til dæmis Joey Ramone og eitt-
hvað svoleiðis,“ segir Biggi, sem
var að koma úr Nauthólsvík þegar
Fréttablaðið náði í hann í blíðunni
í gær. „Ég reyndi mjög lengi fyrir
tíu árum að berjast á móti því að
vera kallaður Biggi Maus. En það
væri fávitaskapur að berjast á móti
þessu. Maus er frábær hljómsveit,
það er heiður að fá að vera nefndur
eftir henni.“
Af Bigga er annars að frétta
að hljómsveit hans Króna hefur
sent frá sér lagið Maðurinn sem
vildi verða Guð. „Lagið fjallar um
síendurtekið stef í mannkynssög-
unni,“ segir Biggi. „Þegar predik-
arar, sem hefja verk sín í þeim til-
gangi að hjálpa öðrum, fá rugluna
og fara að misnota aðstöðu sína. Í
tilviki okkar Íslendinga: Guðmund-
ur í Byrginu.“ - afb
Biggi gengst loksins við Maus
ALLTAF MAUS Biggi segist alltaf verða
Biggi Maus, en ekki Biggi í Maus.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Röksemdin fyrir þessari breytingu er að Söngva-
keppni Sjónvarpsins er fyrst og fremst íslensk söngva-
keppni fyrir íslenska áhorfendur,“ segir Páll Magn-
ússon, útvarpsstjóri. Öll lög í næstu Söngvakeppni
Sjónvarpsins verða að vera sungin á íslensku ólíkt því
sem hefur verið undanfarin ár. Páll segir að vegna
þrýstings frá Félagi tónskálda og textahöfunda, FTT,
hafi verið fallið frá þessari kvöð á sínum tíma. Niður-
staðan af þeirri ákvörðun hafi hins vegar verið vond, fá
lög hafi verið sungin á íslensku. „Síðast var aðeins eitt í
úrslitaþættinum og það er óviðunandi að okkar mati.“
Páll tekur fram að séu lögin sungin á íslensku, og
Söngvakeppni Sjónvarpsins notuð sem nokkurs konar
forkeppni fyrir Eurovision, taki RÚV þátt í kostnaði
við að útfæra sigurlagið á ensku. „En við gætum hugs-
anlega valið framlagið með allt öðrum hætti þótt sig-
urlag í Söngvakeppninni sé fundið.“
Jakob Frímann Magnússon, formað-
ur FTT, segir afar skiptar skoðanir um
þetta mál, bæði innan FTT og samfélags-
ins alls. „Við virðum sjónarmið Ríkis-
útvarpsins og treystum því að metnaður
þeirra nái ekki aðeins til innlendrar dag-
skrárgerðar heldur einnig til tryggingar
þess marktækasta og best ígrundaða
framlags Íslands á alþjóðavettvangi
sem okkur ber að stefna að hverju
sinni,“ segir Jakob og vísar þar til
Eurovision-lagsins. „Þetta kann
að fara saman en annað tryggir
ekki endilega hitt,“ segir Jakob
sem kaus að öðru leyti að tjá sig
ekki um málið.
- fgg
Næsta Söngvakeppni verður á íslensku
ÍSLENSKA Í AÐALHLUTVERKI Páll
Magnússon hefur ákveðið að
öll lögin í næstu Söngvakeppni
Sjónvarpsins verði á íslensku.
Jakob Frímann Magnússon segir
skiptar skoðanir um málið innan
FTT.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755