Fréttablaðið - 08.06.2010, Blaðsíða 34
18 8. júní 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
„Vissulega er þetta langur tími, en hann hefur liðið mjög
hratt og í raun má segja að þetta hafi verið ævintýri lík-
ast,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins, en garðurinn fagnaði tuttugu
ára afmæli sínu fyrir skemmstu.
Tómas hefur starfað við garðinn frá upphafi og segir það
standa upp úr hversu blessunarlega vel hafi gengið þann
tíma þótt töluverðar breytingar hafi orðið á rekstrinum.
„Ég réði mig til starfa í Húsdýragarðinum en svo bættist
Fjölskyldugarðurinn við þremur árum síðar og svo sjávar-
dýrasafn og vísindaveröld í kjölfarið, þannig að barnið er
að þroskast. Starfið er í öllu falli orðið mun fjölbreyttara en
það var í upphafi,“ segir Tómas.
Að sögn Tómasar hefur eitthvað á fjórðu milljón gesta
heimsótt garðinn á þessum tuttugu árum og aðsóknin verið
mjög stöðug. „Skýringin er líklega sú að Íslendingar eru
duglegir að eignast börn og nýjar kynslóðir bætast í hóp
gesta. Það er ekki hægt annað en að vera bjartsýnn á fram-
tíðina.“
Afmælishátíð garðsins stendur yfir allt árið og hluti henn-
ar er opnun nýs vaðleikjasvæðis, en því gamla var lokað
vegna sýkingarhættu á sínum tíma. Einnig fékk garðurinn
eitt stærsta safn uppstoppaðra fugla á landinu til varðveislu
á afmælisdaginn og þá er von á slöngum og eðlum í garðinn
á næstu vikum. „Annars er aðalverkefnið alltaf að halda því
við og gangandi sem byrjað hefur verið á. Það þarf enda-
laust að breyta og bæta í stórum garði,“ segir Tómas.
Aðspurður segist forstöðumaðurinn ekki eiga eftirlætis-
dýr í garðinum því hann geri ekki upp á milli barnanna.
Lengst af öllum dýrunum í garðinum hafa verið þrír selir,
Særún, Kobba og Snorri, sem hafa verið í honum frá fyrsta
degi. „Selirnir eru ættaðir að vestan, frá Rauðasandi og urt-
urnar hafa kæpt á hverju ári frá því þær urðu kynþroska.
Það er mjög ánægjulegt því það er ekki svo algengt að urtur
kæpi í dýragörðum,“ segir Tómas. kjartan@frettabladid.is
FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐUR-
INN: FAGNAR TUTTUGU ÁRA AFMÆLI
Hefur verið
ævintýri líkast
AFMÆLI Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins, ásamt selunum góðkunnu
sem hafa verið í garðinum frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NANCY SINATRA ER SJÖTUG Í
DAG.
„Það sem gerist í tónlistar-
bransanum er að ef þú
bregður þér frá í örskots-
stund til að sinna einhverju
öðru þá fyllir sandurinn
sporin þín og þú ert horfin,
liðin tíð.“
Nancy Sinatra er dóttir hins
heimsfræga söngvara Franks
Sinatra og hefur látið að sér
kveða í tónlistarheiminum.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og vinar-
hug vegna andláts,
Jóhönnu Sæmundsdóttur
fyrrverandi handavinnukennara og
húsmóður á Ísafirði,
sem lést 17. maí s.l. og jarðsett var frá Neskirkju
þriðjudaginn 1. júní s.l.
Sighvatur og Björk
Elín og Sigþór
Björgvin og Dóra Valdís
Rúnar og Alma
Bryndís og Nicolas
og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Magnþóra Kristín
Þórðardóttir
lést að morgni 2. júní á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Neskirkju fimmtu-
daginn 10. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast henn-
ar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Sveinbjörn Árnason
Ingibjörg Þ. Sveinbjörnsdóttir Guðmundur B. Jóhannsson
Árni Sveinbjörnsson Marianne Sveinbjörnsson
Sigrún I. Petersen Ingolf J. Petersen
Díana S. Sveinbjörnsdóttir Jón Þ. Traustason
Kolbrún L. Sveinbjörnsdóttir Stefán Halldórsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Emilsson
Álfaskeiði 90, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 31. maí.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 10. júní kl.
13.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Jón Jónsson
Emil Jónsson
Örn Jónsson
Hjartans þakkir fyrir þá vináttu og hlý-
hug sem okkur hefur verið sýnt við and-
lát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
Halldóru Sigurðardóttur.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki 3-A á
Dvalar og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir alúð og
umhyggju sem hún naut þar.
Arnór Þorgeirsson Rósa Pálsdóttir
Þorgeir A. Þorgeirsson Jóna Rebekka Högnadóttir
Stefán Stefánsson Erla Gunnarsdóttir
Kristín Huld Harðardóttir
ömmubörn, langömmubörn og langlangömmubarn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ásgerður
Sigurbjörnsdóttir
sjúkraliði, Byggðavegi 86, Akureyri,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
1. júní. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju í
Garðabæ, fimmtudaginn 10. júní kl. 15.00.
Haraldur Magnússon
Anton Haraldsson
Sigurbjörg Haraldsdóttir
Þorvaldur Rafn Kristjánsson
Sverrir Haraldsson
Magnús Orri Haraldsson
Sigurbjörn Haraldsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Þorleifur Þorláksson
Langhúsum, Fljótum, Skagafirði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar, Siglufirði
5. júní 2010. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
föstudaginn 11. júní kl. 13.30. Jarðsett verður að Barði
í Fljótum. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð
en þeim sem vilja minnast hans er bent á minning-
arsjóð Rakelar Pálmadóttur nr. 0310-13-703015 kt.
561179-0189.
Sigurbjörn Þorleifsson Bryndís Alfreðsdóttir
Guðný Ó. Þorleifsdóttir Elías Æ. Þorvaldsson
Jóhanna Þorleifsdóttir Hallgrímur S. Vilhelmsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar og afi, sonur okkar og bróðir,
Lárus Hrafn Kvaran
flugmaður,
lést á Hospital Kirchberg í Lúxemborg þann
5. júní. Útför hans fer fram í Lúxemborg 10. júní.
Gitty Kvaran
Anna Sugila Kvaran Tara Lee Gloden
Einar Artin Kvaran
Talla Björk Kvaran
Minningarathöfn um Lárus verður haldin í Reykjavík
og verður tilkynnt um hana síðar.
Ragnar G. Kvaran
Hrefna Lárusdóttir Kvaran
Anna Ragnhildur Kvaran
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Gunnar Helgason
hæstaréttarlögmaður
lést þann 4. júní á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Jarðarför auglýst síðar
Kristján Tómas Gunnarsson Beverly Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson Gunilla E. Gunnarsson
Margrét Gunnarsdóttir Vilhjálmur Hörður
Vilhjálmsson
Hallgrímur Helgi Gunnarsson Guðrún Högnadóttir
Guðjón Halldór Gunnarsson Henríetta Guðrún
Gísladóttir
og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn
Hrólfur Hafsteinn
Guðjónsson
frá Heiðarbæ
andaðist 4. júní á Heilbrigðisstofnuninni Hólmavík.
Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju 11. júní kl.
14.00. Jarðsett verður í Kollafjarðarneskirkjugarði.
Gerður Hentze Pálsdóttir
Ívar Örn Hrólfsson og aðrir ættingjar.