Fréttablaðið - 08.06.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 08.06.2010, Blaðsíða 17
„Ég sekk mér dálítið vel ofan í hlut- ina og set markið alltaf hátt. Er þannig kappsöm keppnismanneskja og hætti ekki fyrr en ég er orðin verulega góð,“ segir Annie Mist Þórisdóttir sem um helgina sigraði í meistaraflokki kvenna á CrossFit- leikunum 2010, annað árið í röð. „Ég hef alltaf verið orkumikil og þurft útrás. Þá varð ég fljótt hand- sterk og farin að hanga í borðplöt- um löngu áður en ég fór að ganga,“ segir Annie hlæjandi, en sjö ára byrjaði hún að æfa fimleika hjá Gerplu undir strangri þjálfun rúss- neskra þjálfara. „Að mínu mati eru fimleikar besti grunnurinn að hvaða íþrótt sem er. Maður er fljótur að ná tæknilegum hlutum og þeim aga sem er nauð- synlegur til að ástunda íþróttir af kappi,“ segir Annie sem eftir fim- leikaárin var orðin háð miklu álagi og æfingum. „Fyrst á eftir byrjaði ég að æfa listdans og síðan stangarstökk en það var ekki nóg svo ég byrjaði í Boot Camp líka, sem ég hef ástund- að síðan ásamt ólympískum lyfting- um,“ segir Annie sem stöðugt til- einkar sér nýja hluti fyrir keppni í CrossFit þar sem einstakling- urinn þarf að vera búinn undir hið óvænta og fær um að ráða við þungar, tæknilegar lyftingaæfing- ar samhliða erfiðum þrek- og þol- æfingum. „CrossFit samanstendur af hlaupi, ólympískum lyftingum, róðri, ketilbjöllum, fimleikum og þolæfingum, en mestu skiptir að hafa mikið þol og vera sterkur.“ Í maí síðastliðnum vann Annie Evrópumeistaratitil kvenna á CrossFit-leikunum í Svíþjóð, en tveir aðrir Íslendingar unnu sér einnig rétt til þátttöku í heimsleik- unum sem senn fram fara í Los Angeles. „Æfingar eru verulega tíma- frekar en alls æfi ég einu sinni til tvisvar á dag, sex daga vikunnar,“ segir Annie sem með stífri íþrótta- iðkun stundar nám í lífefnafræði við Háskóla Íslands og stefnir á læknisnám í framtíðinni. „Það kemur alltaf á óvart að sigra því maður veit aldrei hverjum maður mætir eða hvernig keppnin verður fyrirfram. Á Evrópuleik- unum voru til dæmis greinar sem voru mér óhliðhollar, en styrkleikar mínir felast í þoli og löngum æfing- um sem blandast við þungar tækn- iæfingar. Og áfram stefni ég á sigur, eins og alltaf. Á því verður engin breyt- ing nú.“ thordis@frettabladid.is Hékk ung í borðplötum Annie Mist Þórisdóttir er kappsöm í meira lagi og jafnvíg á flestar íþróttagreinar, enda öruggur Íslands- meistari og Evrópumeistari í CrossFit, og í júlí keppir hún á heimsmeistaramóti CrossFit í Los Angeles. Það kostar vinnu að vera jafn vel á sig kominn og Annie Mist Þórisdóttir, en sjálf er hún heilbrigðið uppmálað og ötul að þjálfa kroppinn, enda að miklu að stefna á komandi heimsleikum í CrossFit. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SÍÐDEGISVAKT HEILSUGÆSLUSTÖÐVA heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verður lokuð frá 16. júní til og með 15. ágúst. Vaktþjónusta stöðvanna er opin fyrir skyndikomur og bráðaerindi frá klukkan 8.00 til 16.00 alla virka daga. Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 M eirapró f U p p lýsin gar o g in n ritun í s ím a 5670300 Patti.is Landsins mesta úrval af sófasettum Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 Kynn ingar tilboð Horn sófi 2 H2 Láttu þér líða vel í sófa frá Patta 199.9 00krMa 8356 sett Tímapantanir 534 9600Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA Nýju ReSound heyrnartækin endurvekja tilfinningu fyrir hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er á svipaðan hátt og þegar skipt er úr einföldum steríótækjum með tveimur hátölurum í kringóma (surround) heimabíó með hátalara til allra átta. Ný tækni . Betra verð . Fagleg þjónusta Frí ráðgjöf í maí ReSound heyrnartækin setja mann í miðpunkt hljóðheimsins sem maður hrærist í. Þegar maður getur fylgst betur með hljóðum sem berast úr öllum áttum nýtur maður góðs hljóms mun betur. Auðveldara er að átta sig á hvaðan hljóðið berst og maður getur notið þess að tala við fólk þó hávaði sé í umhverfinu. SURROUND KRINGÓMA MiðvikudagaJóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.