Fréttablaðið - 11.06.2010, Page 6

Fréttablaðið - 11.06.2010, Page 6
6 11. júní 2010 FÖSTUDAGUR EFNAHAGSMÁL „Sé horft á vanda- málin sem við höfum þurft að glíma við vegna skorts á trausti á gjaldmiðlinum okkar þá, þrátt fyrir erfiðleikana sem evrusvæðið gengur nú í gegnum, er mun betri ákvörðun að vera innan evru- svæðisins en utan þess séu kost- ir og gallar vegnir,“ sagði Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands, á blaðamannafundi á Bessastöðum í gær en hann er í opinberri heim- sókn á Íslandi. „Ef við höfum lítið land með fjárfesta sem flýja með fjármagn sitt vegna vantrausts á gjaldmiðl- inum og stöðugar fréttir um að gjaldmiðillinn muni veikjast, án nokkurrar sýnilegrar ástæðu, þá verður að skoða aðra möguleika,“ sagði Ilves ennfremur og bætti síðan við að ef litið sé bara á lægri viðskipta- og vaxtakostnað sem upptaka evru hefði í för með sér, sé vænst að landsframleiðsla Eist- lands muni aukast um eitt prósent strax við upptöku. Fjármálaráðherrar Evrópusam- bandsríkjanna samþykktu á fundi sínum á þriðjudaginn að Eistland taki upp evruna í byrjun næsta árs. Landið gekk í Evrópusam- bandið árið 2004 en upphaflega var stefnt að upptöku evru árið 2007. Það hefur dregist vegna mik- illar verðbólgu í landinu en í kjöl- far heimskreppunnar, sem hófst árið 2008, hefur verulega dreg- ið úr verðbólgunni og er hún nú komin vel niður fyrir viðmiðunar- mörk evrusvæðisins. Ilves, eiginkona hans og fylgdar- lið komu hingað til lands síðdegis á miðvikudag en þau hverfa af landi brott snemma á laugardaginn. Ilves var kjörinn forseti Eist- lands árið 2006 en var áður utan- ríkisráðherra landsins og seinna Evrópuþingmaður. Ilves segir Eista tilbúna til að hjálpa Íslendingum á alla mögu- lega vegu í tengslum við umsókn Íslands um aðild að Evrópusam- bandinu. magnusl@frettabladid.is Telur upptöku evru enn álitlegan kost Toomas Ilves, forseti Eistlands, er í opinberri heimsókn hér á landi. Eistar munu taka upp evru í upphafi næsta árs og þrátt fyrir núverandi erfiðleika evrusvæð- isins telur Ilves kosti evrunnar vega þyngra en galla hennar. TOOMAS ILVES OG ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Forseti Eistlands ásamt forseta Íslands á Bessastöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Í kjölfar staðfestingar þess að Eistland muni taka upp evru í janúar næst- komandi hækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) lánshæfis- einkunn landsins um einn flokk, úr A- í A, í gær. Rökstuðningur S&P fyrir hækkuninni var að upptaka evru ætti að minnka gengisáhættu og auðvelda aðgang Eistlands að fjármagnsmörkuðum í Evrópu. Auk þess þykir Eistland hafa sýnt þann efnahagslega sveigjanleika sem þátttaka í myntbandalagi þarfnast. Búist er við því að matsfyrirtækin Moody‘s og Fitch fylgi í kjölfarið. Lánshæfismat hækkaði við fréttirnar fyrir 24002 Úrval vinsælla bóka á 2 fyrir 2400 tilboði Gleðilegt sumarfrí! „Tvímælalaust besta bók sem ég hef lesið á árinu.“ Metro 2009 „Frábær bók! Spenna út í gegn... Patterson aðdáend- ur vilja ekki missa af þessari.“ Memphis Reads Ert þú 21 árs eða eldri? Viltu taka þátt í ævintýralegu verkefni í sumar? Viltu eignast 75 nýja vini allstaðar að úr heiminu? Hefur þú gaman af því að vinna með börnum og unglingum? CISV á Íslandi (Alþjóðlegar sumarbúðir barna, www.cisv.is ) leitar að sjálfboða- liðum til að taka þátt í því frábæra starfi sem fer fram í sumar frá 25.júní – 22.júlí. Einnig er laust fyrir stelpu/strák 17 – 18 ára í Seminar búðir sem haldnar verða í Lúxemborg þann 31.júlí – 20.ágúst. Nánari upplýsingar gefur Arnór Fannar í síma 693 7823 eða Halla í síma 692 6846. DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá menn í Reykjanesbæ fyrir að hóta lögreglumönnum líf- láti, einn þremenninganna fyrir að hóta að skera börn tveggja lög- reglumanna á háls og annan þeirra fyrir hrækja í andlit og á höfuð lög- reglumanns. Öll áttu brotin sér stað á síðasta ári. Einum mannanna, sem er á fer- tugsaldri er gefið að sök að hafa í júní 2009 á skemmtistaðnum Offic- eraklúbbnum slegið lögreglumann sem þar var við skyldustörf, með báðum höndum í brjóstkassann. Í lögreglubifreið á leið á lögreglu- stöð og á stöðinni sjálfri hótaði mað- urinn þremur lögreglumönnum ítrekað lífláti. Hinir tveir sem ákærðir hafa verið eru um tvítugt. Annar þeirra er ákærður fyrir að hafa á akbraut- inni við Hringbraut í Reykjanesbæ hótað þremur lögreglumönnum, sem þar voru við skyldustörf, lífláti. Hinn er ákærður fyrir að hafa á sama stað hrækt tvisvar sinnum í andlit og á höfuð lögreglumanns og hótað honum og öðrum lögreglu- manni lífláti. Jafnframt að hafa skömmu síðar, í lögreglubifreið á leið á lögreglustöðina við Hring- braut 130, hótað tveim lögreglu- mönnum lífláti og að skera börn þeirra á háls, eins og segir í ákæru. - jss LÖGRREGLUBIFREIÐ Mennirnir höfðu uppi hótanir í lögreglubílum. Þrír karlmenn ákærðir fyrir ofstopa og hótanir í garð lögreglumanna: Hrottalegar líflátshótanir SJÁVARÚTVEGUR Sérfræðingar Hafrannsóknastofn- unar hafa áhuga á að kanna frekar áhrif gossins í Eyjafjallajökli á fiskistofna hér við land. Þó er talið ólíklegt að það takist að einangra þátt gossins frá öðrum áhrifavöldum á vöxt og viðgang fiskistofna við landið. Eins og Fréttablaðið hefur sagt frá bendir tilraun í eldisstöð Hafró í Grindavík til að mengun vegna hlaupvatns og gosefna hafi dregið úr klaki um 12 prósent í Markarfljótssjónum og 40 prósent í Svað- bælissjónum miðað við ómengaðan sjó úr Faxaflóa. Björn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Hafrann- sóknastofnun, segir að þar hafi menn áhuga á að gera frekari tilraunir og kanna áhrif ösku á lífið í hafinu. Líklega geti þó ekki orðið af því þetta árið. Alltaf verði erfitt eða útilokað að öðlast vissu um áhrif gossins á fiskistofna. Fjölmargir aðrir óvissu- þættir í náttúrunni geti haft áhrif á stofnana. - pg Óljóst hvaða áhrif eldgosið í Eyjafjallajökli hefur á fiskistofna: Áhugi á frekari rannsóknum EYJAFJALLAJÖKULL Áhugi er á því að gera frekari rannsóknir á áhrifum gossins á fiskistofna. Þó er erfitt að öðlast vissu um áhrifin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNSÝSLA Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda mótmælir fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um að leggja af landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Í ályktun stjórnar segir að eindregin andstaða hafi komið fram frá þeim sem starfa innan landbúnaðar og sjávarútvegs, en ríkisstjórnin hafi kosið að hafa hana að engu. „Samtökin hljóta að spyrja sig hvort það sé beinlínis stefna ríkisstjórnarinnar að valda þessum grunnatvinnuvegum íslenskrar þjóðar tjóni.“ - kóp Sauðfjárbændur mótmæla: Vilja halda í ráðuneytið KJÖRKASSINN Ætlar þú að fylgjast með HM í knattspyrnu? Já 43,6% Nei 56,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á fjármálastjóri Orkuveitunnar að fá lúxusbíl frá fyrirtækinu? Segðu skoðun þína á Vísi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.