Fréttablaðið - 11.06.2010, Blaðsíða 34
6 föstudagur 11. júní
tíðin
✽ hlutir sem gleðja
LILJA HRÖNN HELGADÓTTIR
hjúkrunarnemi við HÍ
HJÓL sem ég keypti núna á sumardaginn fyrsta. Í fyrsta lagi virka allir
sætari á fínu hjóli og í öðru lagi hef ég einungis notað strætó tvisvar sinn-
um eftir að ég fékk það, er algjörlega orðin háð því.
KJÓLL úr Sumarlínunni 2008 frá Soniu Rykiel. Mig
dreymdi um hann í marga mánuði áður en ég fékk
hann loksins á 50% afslætti sumarið 2009.
NÆSTUM ALLAR BÆKUR EFTIR UPPÁ-
HALDSRITHÖFUNDINN MINN, David Sed-
aris, komnar í safnið. Fékk þær líka allar árit-
aðar á bókmenntahátíð síðasta haust, sem
skemmir alls ekki fyrir.
MYNDIR sem vinkona mín Sunna málaði
handa mér og gaf mér í jólagjöf 2008, sú efri
er af mér og henni saman og sú neðri af mér.
LADY DANGER VARALITUR frá
MAC. Besti og fallegasti rauði varalit-
ur sem til er, alveg peninganna virði,
endist vel og lengi þrátt fyrir þráláta
notkun.
IPHONE-INN minn hefur hægt og
rólega þróast yfir í þriðja handlegg
minn, sem ég get ekki lifað án. Vinur
minn reddaði mér honum frá Banda-
ríkjunum.
HRINGUR sem afi minn frá Patró gaf
mér í stúdentsgjöf, amma mín átti
hann áður. Ég held alveg hrikalega
mikið upp á hann.
SKÓR ÚR SÖMU LÍNU FRÁ SONIU RYKIEL, sem
fullkomnuðu drauminn og keypti ég þá einnig á 50%
afslætti í mars síðastliðnum. Núna þarf ég bara að
komast aftur til Parísar til að geta leyft dressinu að
njóta sín til fulls.
SPEGILL sem langamma mín átti og
amma mín gaf mér. Ég var nú ekki
alveg sátt við hann á sínum tíma,
enda á hápukti gelgjunnar, en er mjög
fegin að mamma mín píndi mig til að
þiggja hann, því núna elska ég hann.
ÉG ER ALGJÖRT SKISSUBÓKA-SNOBB og vil helst einungis nota
Moleskine, sem er mjög óhentugt þar sem þær kosta nánast handlegg
og hálfan hér á landi.
SUMARLEGUR OG SÆTUR Þegar sólin tekur
syrpu er gott að eiga flottan hatt til að verja andlitið og
bæta útlitið. Þessi klassíski stráhattur fæst í Topshop.
FR
É
TTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
TOPP
10