Fréttablaðið - 11.06.2010, Page 38

Fréttablaðið - 11.06.2010, Page 38
 11. JÚNÍ 2010 FÖSTUDAGUR6 ● HM blaðið Ian Jeffs hefur búið hérlendis síðan 2003. Hann er hóflega bjartsýnn á gengi Eng- lendinga í keppninni þrátt fyrir mikla sigurgöngu í undankeppninni, en þeir unnu þar níu af tíu leikjum og skoruðu 34 mörk. Hann spáir þeim sæti í undanúrslitunum, en telur að Brasilía eða Spánn fari alla leið og hampi heimsmeistaratitlinum. „Capello hefur komið sterkt inn, er agaður þjálfari og ákveðinn og ekki spillir góður árangur hans í for- tíðinni. Hann hefur góð áhrif á leikmenn.“ Ekki kemur á óvart að Ian telur Wayne Rooney mikilvæg- asta leikmanninn, miðað við hvernig hann hann hefur spilað með United og landsliðinu á síðustu mánuðum. „Steven Gerrard mun einnig reynast mikilvægur og þá verður John Terry mjög mikilvægur.“ Ian er ánægður með hversu reynslumikið enska liðið er, en flestir leikmanna eru á aldrinum 27 til 31 árs og minnir á góðan árangur Frakka þegar þeir voru með reynslumikinn mannskap. Spurður um þau hneykslismál sem hafa tengst leik- mönnum enska liðsins segir Ian að þau muni ekki hafa áhrif á spilamennskuna. „Það er svo mikil pressa hvort sem er á þessa leikmenn og þeir eru vanir því að vera í sviðsljósinu og munu bara standa sig á vellinum. Vonandi munu þeir halda áfram að spila léttleikandi bolta eins og þeir gerðu í undankeppninni, en þeir hafa hins vegar fleiri möguleika, til dæmis með því að setja Crouch inn á og dæla háum boltum á hann. Mest af öllu vonast ég þó til þess að þeir æfi vítaspyrnur og það á hverjum degi.“ Englendingar vilja eflaust gleyma öllum þeim skiptum sem þeir hafa fallið úr keppni vegna vítaspyrnukeppna og taka því vafalaust undir þau orð. Þó að Ísland eigi ekki landslið í úrslitakeppni HM, þá eiga margir íbúar landsins sín lið í keppninni. Við báðum Jaqueline Cardoso da Silva frá Brasilíu, Ian Jeffs frá Englandi og Aart Schalk frá Hollandi um að meta möguleika sinna liða og stemninguna fyrir keppninni. Aart Schalk hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1999. Hann vinn- ur við ráðgjöf, er giftur Sóleyju Tómasdóttur borgarfulltrúa og á með henni tvö börn. „Bert van Marwijk, þjálfari hol- lenska landsliðsins, er búinn að gera góða hluti. Spilaði sjálfur í landsliðinu á sínum tíma og búinn að þjálfa síðan 1980. Van Marwijk leggur mikla áherslu á að klára riðlakeppnina og til að tryggja fulla einbeitingu, þá hefur hann bannað eiginkonum og fjölskyld- um leikmanna að koma til Suður- Afríku fyrr en þeir eru komir upp úr riðlakeppninni. Þá verður þeim boðið til Suður-Afríku.“ Sú staðreynd að Mark van Bomm- el, leikmaður hollenska liðsins, sé tengdasonur Van Marwijks hefur mikið verið milli tannanna á fólki. Aart segir þó að spilamennska Van Bommels bæði með Bayern München og landsliðinu réttlæti fyllilega veru hans í landsliðinu. Raunar telur Aart hann vera einn af lykilmönnum landsliðsins sem muni binda saman leik liðsins á miðjunni ásamt Van Sneijder. „Aðrir lykil- menn verða Van der Vaart, hinn vinnusami Dirk Kuyt og eldfljóti sóknarmaðurinn Van Persie, sem hefur að fullu jafnað sig á meiðsl- unum sem héldu honum frá keppni lengst af í vetur. Hvað varðar unga leikmenn þá eiga menn að fylgj- ast vel með Gregory van der Wiel í vörninni. Þessi 22 ára leikmaður Ajax verður kominn til einhvers stórliðs í Evrópu fyrir haustið.“ Hvernig verður stemningin í Hollandi meðan á keppninni stend- ur? „Stemningin í Hollandi verð- ur eins og á Íslandi þegar Ísland er að taka þátt í Eurovision, bara ýkt- ari. Allir eru klæddir appelsínu- gulu þegar hollenska liðið spilar, húsin skreytt og fólk kemur saman út um allt til að fylgjast með leikj- unum. Það hefur miklar vænting- ar og heldur að það sé bara forms- atriði að komast í gegnum riðla- keppnina.“ Aart segist vera með hollenska fánann tilbúinn og ætlar að horfa á leikina með Hollending- um búsettum hér. Hann býst við að Hollendingar komist í fjórðungsúr- slit, það sé lágmarkskrafa eins og liðið hefur spilað að undanförnu. Ýktara en þátttaka Íslands í Eurovision-söngvakeppninni Aart reiknar með að Hollendingar eigi eftir að komast í fjórðungsúrslit. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ian spilar með Val. Hann telur að reynslan eigi eftir að nýtast enska liðinu vel í heimsmeistarakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Jaqueline er viss um að Brasilíumenn eigi eftir að bera sigur úr býtum á HM 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Vona að þeir æfi vítaspyrnur Jaqueline Cardoso da Silva, sem hefur búið á Íslandi í 20 ár, fylgist meira með varamanna- bekknum hjá Brasilíu en margir aðrir sjónvarpsáhorfendur á Ís- landi. Hinn knái þjálfari Brasilíu- manna, Dunga, var nefnilega kær- astinn hennar um eins árs skeið á unglingsaldri. „Hann er rosa- lega skemmtilegur og fyndinn, en þótti ekki með fallegustu drengj- um og var kallaður Álfur eftir ljót- asta dvergnum af dvergunum sjö hennar Mjallhvítar.“ Þegar Jaqueline, eða Jackie, er spurð um sigurmöguleika Brasilíu á HM, þá stendur ekki á svari: „Við erum best og munum vinna þessa keppni. Mér finnst bara leiðinlegt hvað hinar þjóðirnar ná varla að vinna þessa keppni af því að við erum svo góð.“ Jackie ætlar að fylgjast með keppninni ásamt nokkrum Bras- ilíumönnum sem eru búsettir hér á landi. „Við hittumst og pössum upp á það að hafa nóg af tequila til að fagna eða gráta saman. Allir koma í brasilískum búningum og við verðum líka með fána. Þetta verður mjög gaman.“ Við erum best

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.