Fréttablaðið - 18.06.2010, Page 18
18 18. júní 2010 FÖSTUDAGUR
Þér kemur það við
Ölvunarakstur er eitt af stærstu heilbrigðisvanda-
málum þjóðarinnar. Varla þarf
að fara mörgum orðum um
réttmæti þeirrar fullyrðingar
– enda er það sannað að fjórða
hvert banaslys á Íslandi tengist
ölvunarakstri á einn eða annan
hátt auk þess sem stóran hluta
alvarlegra slysa má rekja til
þess að ökumaður var drukk-
inn. Líklega hefði mátt koma í
veg fyrir marga harmleiki göt-
unnar ef tekist hefði að stöðva
ökumennina áður en slys hlut-
ust af.
Láttu vita. Því miður virðist
sem sumir veigri sér við að til-
kynna til lögreglu ef þeir verða
þess varir að ölvaður maður
sest upp í bíl. Þetta á sérstak-
lega við ef hinn ölvaði er fjöl-
skyldumeðlimur eða vinnu-
félagi en þá vilja margir loka
augunum og telja að þeim „komi
ekki við“ hvað aðrir aðhafast.
Slík viðhorf eru ekki aðeins
ámælisverð – heldur beinlín-
is stórhættuleg. Hver myndi
láta undir höfuð leggjast að til-
kynna um eftirlýstan ofbeld-
ismann eða innbrotsþjóf sem
staðinn er að verki? Líkingin er
að því leyti til réttmæt að þeir
sem beita fólk líkamlegu ofbeldi
og þeir sem setjast undir stýri
ölvaðir, ógna umhverfi sínu og
geta skaðað saklaust fólk; fólk
sem allt eins gæti verið nákom-
ið þeim sem veigraði sér við að
hringja til lögreglunnar, 112 og
tilkynna um athæfið. Umferð-
arslysin fara nefnilega ekki í
manngreinarálit.
Mikilvægur þáttur til að
sporna við ölvunarakstri er að
nóg sé af edrú ökumönnum.
Fram hefur komið að ölvunar-
akstur sé mikið vandamál úti
á landsbyggðinni þar sem það
þykir nánast sjálfsagt að aka
ölvaður heim af ballinu eða
kránni. Í ýmsum bæjarfélög-
um er löggæsla lítil á nóttunni
og löggæslusvæðið stórt sem
lögreglumennirnir á staðnum
þurfa að sinna. Ef lögreglan
þarf að sinna útkalli um lang-
an veg geta ölvaðir ökumenn,
og aðrir afbrotamenn umferð-
arinnar, athafnað sig að vild án
þess að eiga á hættu að mæta
lögreglubíl. Sumir þeirra hafa
þegar komist í skýrslur Umferð-
arráðs yfir „mikið slasaða“ og
allt of margir komast á skrá
yfir „látna í umferðinni“ – eða
það sem verra er; eru valdir
að dauða eða örkumli farþega
sinna. Framboð edrú ökumanna
og viðurkenning á að þeirra sé
þörf er mikilvæg. Áminning til
þeirra sem eru að skemmta sér
um að aka ekki undir áhrifum
hjálpar.
Þótt öflug löggæsla sé mjög
mikilvæg leið til þess að sporna
við ölvunarakstri telja því
miður alltof margir að það sé
„í lagi“ að aka undir áhrifum
áfengis svo fremi að þeir verði
ekki á vegi lögreglunnar. Slík-
ur hugsunarháttur er ekki bara
siðlaus – heldur beinlínis lífs-
hættulegur.
Ölvunarakstur
Gunnar Þór
Einarsson
fv. formaður Ung-
mennahreyfingar
IOGT á Íslandi
0 kr.
Eftirstöðvum dreift á
allt að 12 mánuði.*
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreitt: 24.000 kr.
Símalán – útborgun:
LG VIEWTY
Frábær 3G sími með stórum snertiskjá, flottri
5MP myndavél, tónlistarspilara og FM útvarpi.
*
Ef
g
re
itt
e
r
m
eð
k
re
di
tk
or
ti
er
h
æ
gt
a
ð
dr
ei
fa
e
ft
ir
st
öð
vu
nu
m
v
ax
ta
la
us
t
á
al
lt
að
1
2
m
án
uð
i.
G
re
ið
sl
ug
ja
ld
e
r
25
0
kr
./
m
án
.
0 kr.
Eftirstöðvum dreift á
allt að 12 mánuði.*
1.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreitt: 13.900 kr.
Símalán – útborgun:
HUAWEI U1251
Ódýrasti 3G síminn með öllu sem þú þarft.
Styður m.a. 3G langdrægt kerfi.
3G
Báðir símarnir
styðja 3GL
Báðum
símum fylgir
12.000 KR.
INNEIGN
yfir árið!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
5
9
5
Fyrir réttu ári síðan var veruleg-ur meirihluti íslensku þjóðar-
innar hlynntur því að teknar yrðu
upp aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið. Í skoðanakönnun sem
Morgunblaðið gerði á tímabilinu
28. maí til 4. júní 2009 og kynnti
13. júní kom fram að 57,9% atkvæð-
isbærra Íslendinga voru hlynnt
aðildarviðræðum, 26,4% voru því
mótfallin og 15,7% voru óákveð-
in. Þetta þýðir að rúmir 2/3 hlutar
þeirra sem tóku afstöðu vildu hefja
viðræður.
Íslensk stjórnvöld tóku mark á
þessum óskum og hafa unnið síð-
ustu tólf mánuði svo vel að þessu
markmiði að á fundi sínum 17.
júní ákvað leiðtogaráð Evrópu-
sambandsins formlega að hefja
aðildarviðræður við Ísland. Þetta
eru góðar fréttir og viðeigandi að
þessi ákvörðun hafi verið tekin á
þjóðarhátíðardaginn, afmælisdegi
Jóns Sigurðssonar, sem jafnframt
er sá dagur sem íslenska lýðveldið
var stofnað við hátíðlega athöfn á
Þingvöllum árið 1944.
Staðreyndin er sú að sjálfstæð-
isbaráttunni lýkur aldrei. Litl-
ar þjóðir eins og við Íslendingar
þurfa stöðugt að leita nýrra leiða
til að tryggja stöðu sína og sjálf-
stæði í ótryggum og síbreytilegum
heimi. Þær eiga í grundvallaratrið-
um um tvennt að velja: Að treysta á
einn öflugan bakhjarl (stóran bróð-
ur) eða vera þátttakendur í fjölþjóð-
legu samstarfi jafningja (tilheyra
öflugri fjölskyldu).
Við lýðveldisstofnun og raunar
meirihluta lýðveldistímans var
erlendur her í landinu og einn
grundvallarþátturinn í íslenskri
utanríkisstefnu snerist um að
halda góðu sambandi við banda-
rísk stjórnvöld. Ætla má að ein-
hliða ákvörðun tveggja ráðherra
um að Ísland skyldi vera formlegur
þátttakandi í innrásinni í Írak hafi
verið tekin með þessa hagsmuni í
huga en hún bar ekki þann árangur
sem að var stefnt. Við getum ekki
lengur treyst á Bandaríkin sem
okkar stóra bróður. Vingjarnleg
þjóðhátíðarkveðja Hillary Clinton
breytir engu um þá staðreynd.
Nýlegur gjaldeyrisskiptasamn-
ingur við Kínverja og viljayfirlýs-
ing um þátttöku þeirra í uppbygg-
ingu íslensks orkuiðnaðar benda
til þess að fleiri stórir bræður séu
í veröldinni en um leið er ljóst að
við Íslendingar þurfum að kanna
til hlítar alla möguleika sem okkur
bjóðast til að tryggja að hér geti
áfram lifað sjálfstæð þjóð í siðuðu
samfélagi, sem njóti efnahagslegr-
ar og andlegrar velsældar og hafi
hugsjónir um frelsi, jafnrétti og
bræðralag í fyrirrúmi. Aðildarvið-
ræðurnar við Evrópusambandið
skipta afar miklu máli í því sam-
hengi.
Hrun íslenska bankakerfisins
haustið 2008 sýndi fram á veikleika
íslensks samfélags, bankakerfisins,
stjórnkerfisins og þess fyrirhyggju-
og agaleysis sem við viljum stund-
um telja okkur til tekna. En um leið
sýndi það fram á galla samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið og
þeirrar fjarstæðu sem er í því falin
að ætla að halda úti sjálfstæðum
örsmáum gjaldmiðli á opnum fjár-
málamarkaði. Í samningum fólst
auk þess veigameira framsal á full-
veldi þjóðarinnar en í fullri aðild.
Sem aðildarþjóð værum við virkir
þátttakendur í öllum þeim ákvörð-
unum sem teknar eru á vettvangi
sambandsins; eins og er erum við
algjörlega áhrifalaus.
Ég er í hópi þeirra sem bind
vonir við að aðildarviðræðurnar
við Evrópusambandið skili góðri
niðurstöðu fyrir okkur Íslend-
inga. Viðræðurnar marka nýtt
spor í sjálfstæðisbaráttunni. Ef
niðurstaða þeirra er góð getur hún
tryggt stöðu og áhrif Íslands í sam-
félagi þjóðanna og eflt okkur til
framtíðar.
Mikilvægur áfangi í
sjálfstæðisbaráttunni
Evrópumál
Jón Karl Helgason
bókmenntafræðingur
Við getum ekki lengur treyst á
Bandaríkin sem okkar stóra bróð-
ur. Vingjarnleg þjóðhátíðarkveðja
Hillary Clinton breytir engu um þá
staðreynd.