Fréttablaðið - 24.07.2010, Side 11
LAUGARDAGUR 24. júlí 2010 11
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til
að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og
bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið
er á móti efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar
sem finna má nánari leiðbeiningar.
Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
Í grein í Fréttablaðinu í gær, föstudag, um Björgólf Thor
Björgólfsson og fjárfestingar hans
er m.a. fjallað um kaup eignar-
haldsfélagsins Samson á Lands-
bankanum. Þar vísar blaðamaður
til þeirra raka stjórnmálamanna
að Björgólfsfeðgar kæmu með
peninga til landsins. Í greininni er
því hins vegar bætt við að „þess í
stað“ hafi þeir fengið lán hjá Bún-
aðarbankanum fyrir kaupunum.
Margsinnis hefur komið fram
að greiðslan og lánið voru í fullu
samræmi við kaupsamning
íslenska ríkisins og Samsonar
sem undirritaður var 31. desem-
ber 2002. Í þeim samningi setti
seljandi, íslenska ríkið, engin skil-
yrði um hvar kaupandi gæti tekið
lán fyrir hluta kaupanna. Hins
vegar var gerð krafa um að eigið
fé kaupanda væri ekki lægra en
35%. Samson greiddi fyrir 45,8%
hlut sinn í Landsbanka Íslands hf.
eins og hér segir:
- Í febrúar 2003 greiddu eigend-
ur með eigin fé erlendis frá 48,1
milljón bandaríkjadala.
- Í apríl 2003 greiddu eigendur
48,3 milljónir bandaríkjadala með
láni frá Búnaðarbanka Íslands
hf.
- Í desember 2003 greiddu eig-
endur með eigin fé erlendis frá
42,7 milljónir bandaríkjadala.
Heildargreiðslur námu sam-
tals 139,0 milljónum bandaríkja-
dala, þar af voru 90,8 milljónir
fjármagnaðar af eigendum eða
65%. Þær voru greiddar að fullu
inn á reikning ríkissjóðs Íslands
í Seðlabanka Bandaríkjanna í
New York í árslok 2003 og átti þá
sér stað fullnaðaruppgjör vegna
kaupa Samsonar á hlut ríkisins í
Landsbankanum. Lánið í Búnaðar-
bankanum var greitt að fullu upp
snemma árs 2005, eins og sýnt
hefur verið fram á með gögnum.
Svo öðru sé haldið til haga, sem
sífellt er ranglega farið með í
þessu sambandi: Samson tók annað
lán í bankanum, sem þá var orð-
inn einkabankinn Kaupþing, í árs-
lok 2005. Björgólfur Thor og faðir
hans voru í persónulegum ábyrgð-
um fyrir því. Það lán var ógreitt
við fall bankanna, en hefur nú
verið gert upp sem hluti af skulda-
uppgjöri Björgólfs Thors.
Eins og þessi upprifjun sýnir
fram á, þá fer því afskaplega
fjarri að kaupin hafi verið fjár-
mögnuð með láni frá Búnaðar-
banka og Samson ekki flutt fé til
landsins. Nú er tími til kominn að
þessi síendurtekna vitleysa hverfi
úr fréttaflutningi af málinu.
Annað sem nefnt er í grein-
inni er að Björgólfur Thor hafi
undanfarið verið milli tannanna
á fólki vegna „tæplega helmings
hlutar hans í Verne Holding“.
Fyrir margt löngu kom fram, að
Björgólfur Thor á engan helm-
ingshlut þarna lengur. Fjárfest-
ingarfélag hans, Novator, stofnaði
félagið með bandaríska fjárfest-
ingarsjóðnum General Catalyst.
Sá hlutur þynntist út vegna eign-
arhluta lykilstjórnenda og var um
mitt ár í fyrra 38%. Í janúar sl.
bættist breski góðgerðarsjóðurinn
Wellcome Trust í hópinn og varð
langstærstur hluthafa og þar með
minnkaði hlutur þeirra sem fyrir
voru verulega.
Vegna mikillar umræðu, jafnvel
á sjálfri löggjafarsamkundunni,
um að óeðlilegt væri að Björgólf-
ur Thor nyti nokkurs konar fyrir-
greiðslu í viðskiptum ákvað hann
að afsala sér þeim ríkisstyrk sem
felst í lögfestingu fjárfestingar-
samning um gagnaverið Verne
Global, að því er snertir fjárfest-
ingarfélag hans. Novator fær því
enga fyrirgreiðslu af hálfu ríkis-
ins vegna uppbyggingar gagna-
versins, sem mun fjárfesta fyrir
um 20 milljarða króna hér á landi
fram til ársins 2013. Þá lýsti hann
því jafnframt yfir að hann myndi
ekki auka hlut sinn í félaginu eða
taka leiðandi hlutverk við stjórn
þess.
„Þess í stað …“
Vandamálið sem Besti bank-inn leysir er að borgarsjóð-
ur getur ekki tekið lán í Seðla-
bankanum. Í reglum Seðlabanka
segir að einungis fjármálafyrir-
tæki hafi þau forréttindi að eiga
viðskipti við Seðlabankann. Þar
sem reglurnar hygla fjármála-
fyrirtækjum er lausnin sú að
borgin stofni fjármálafyrirtæki,
Besta bankann, sem hyglar borg-
arbúum. Vonandi taka hin sveitar-
félögin sig svo saman um að stofna
Sveitabankann.
Besti bankinn getur tekið lán
hjá Seðlabankanum á stýrivöxt-
um sem borgarsjóður notar svo
til að borga upp dýrari lán borg-
arinnar og fyrirtækja hennar.
Borgin sparar sér vaxtamuninn að
frádregnum kostnaði við rekstur
bankans.
Samkvæmt ársreikningi Reykja-
víkurborgar 2009 eru heildar-
skuldir borgarinnar og fyrirtækja
í hennar eigu um 300 milljarðar.
Vaxtalækkun um 1% sparar borg-
inni þrjá milljarða á ári. Þrír millj-
arðar borga ansi mörg leikskóla-
pláss fyrir ísbirni.
Besti
bankinn
Viðskipti
Jón Þór
Ólafsson
stjórnmálafræðingur
Viðskipti Björgólfs Thors
Björgólfssonar
Ragnhildur
Sverrisdóttir
talsmaður Novators
Einkaklúbburinn er einn öflugasti veitinga- og
fríðindaklúbbur á Íslandi og var stofnaður árið
1992. Í dag eru þúsundir Einkaklúbbsfélaga
um allt land. Skírteini klúbbsins veitir afslátt hjá
hundruðum fyrirtækja um allt land.
Kynntu þér málið á www.ek.is eða í síma 577-2222
• Tveir fyrir einn tilboð á veitingastöðum
• Góður afsláttur af ýmsum vörum og þjónustu
• Þú færð afsláttinn strax
Hefur þú kynnt þér
Einkaklúbbinn?