Fréttablaðið - 24.07.2010, Síða 28
LJÓSMYNDASÝNING undir heitinu Fjársjóður – tuttugu ljós-
myndarar frá Eyjafirði 1858-1965 stendur nú yfir í Minjasafninu á
Akureyri. Leiðsögn um sýninguna verður í boði á morgun klukkan 14.
„Ég hóf störf hér í mars árið 2008
og skömmu síðar héldum við fyrsta
Barnadaginn í Viðey. Hann vakti
svo mikla lukku að við ákváðum
strax að þetta yrði gert að árviss-
um viðburði og sú varð raunin.
Þetta er auðvitað paradís fyrir
börnin til að koma og leika sér,“
segir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir,
verkefnastjóri Viðeyjar, en Barna-
dagurinn í eynni verður haldinn
hátíðlegur í þriðja sinn á morgun,
sunnudaginn 25. júlí.
Börn á öllum aldri ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi í Viðey
á morgun, þar sem blásið er til
skemmtilegrar dagskrár auk alls
þess sem Viðey hefur upp á að
bjóða. Viðeyjarstofa með sinn fjöl-
breytta matseðil verður opin frá
klukkan 11.30 til 17, en einnig lofa
aðstandendur barnadagsins grill-
uðum pylsum á barnalegu verði
í tilefni dagsins. Lalli töframað-
ur verður á svæðinu og skemmtir
börnunum með uppblásnum furðu-
dýrum og fleiru, auk þess sem
hann sýnir töfrabrögð við Viðeyj-
arstofu klukkan 13.30. Klukkan
15 munu svo þeir Gunni og Felix
syngja og sprella fyrir börnin
eins og þeim einum er lagið. Þá er
barnamessan fastur liður á Barna-
deginum, og er það séra Þorvaldur
Víðisson í Dómkirkjunni sem sér
um hana. „Á síðasta ári var troð-
fullt út úr dyrum í barnamess-
unni. Hann Þorvaldur býr yfir svo
ótrúlega fallegri og kærleikslíkri
nálgun að börnin verða hreinlega
dolfallin,“ segir Guðlaug.
Hún segir börnin vera sína eftir-
lætisgesti í Viðey því þau njóti sín
svo vel og hlakki mikið til heimsókn-
anna. „Enda er hér svo ótalmargt
sem þau komast ekki í dagsdaglega.
Til að mynda hafa þau mjög gaman
af því að leika sér í fjörunni, finna
steina, kuðunga, krossfiska og alls
kyns furðuskepnur, og því tilvalið
fyrir foreldra að koma við í búð og
grípa með lítinn háf eða sigti til að
fullkomna fjöruferðina. Það er svo
margt sem þarf að rannsaka til hlít-
ar,“ segir Guðlaug.
Fyrsta ferð frá Skarfabakka
er klukkan 11.15 á morgun og svo
er siglt á klukkustundar fresti til
klukkan 18.30. Dagskrá Barnadags-
ins er að finna á videy.com.
kjartan@frettabladid.is
Algjör paradís fyrir börn
Öll börn ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á þriðja Barnadeginum í Viðey sem haldinn verður hátíð-
legur á morgun. Leyndardómar fjörunnar, skemmtiatriði og barnamessa eru meðal þess sem freistar.
Börn geta fundið sér ýmislegt skemmtilegt að gera í Viðey.
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnastjóri Viðeyjar, segir börnin vera sína eftirlætisgesti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Salsaveisla verður haldin á
Hljómalindarreitnum í dag frá
klukkan 12.00 til 18.00.
Suður-amerísk tónlist mun hljóma
í dag á Hljómalindarreitnum þar
sem salsaveisla verður haldin frá
klukkan 12.00 til 18.00. Allir geta
prófað dansa eins og bachata,
merengue, salsa og tangó. Það
eru Veraldarvinir sem standa
fyrir veislunni.
Boðið verður upp á suður-amer-
ískan mat, leikir verða fyrir börn-
in og útimarkaður með alls konar
hönnun. Nánari upplýsingar á
wf.is - eö
Allir dansa salsa
Hægt verður að dansa tangó og fleiri
suður-ameríska dansa.
Laugardagur dregur
nafn sitt af því að eitt
sinn tíðkaðist að fólk
laugaði sig, það er
færi í bað, á þessum
degi.
is.wikipedia.org
6 dagar í golfi , fl ug,
hótel, rúta
Verð 98.900 kr.
Í RIGA
Einn besti golfvöllur
í N-Evrópu
RIGA á frábæru verði í beinu fl ugi frá Kefl avík
Forn borg menningar og lista við Eistra saltið.
Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Flug með skatti 32.990. kr.
Brottför til Riga í Lettlandi:
16.-24. ágúst Flug og hótel, rúta, fararstjóri
64.900 kr. per mann.
Flug og hótel, rúta, fararstjóri
63.900 kr. per mann. 4 sæti laus
17.-22. ágúst
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín