Fréttablaðið - 24.07.2010, Síða 52
32 24. júlí 2010 LAUGARDAGUR
Verslunin Kiosk Búðardóttir, sem rekin er af tíu ungum hönnuðum,
opnaði á fimmtudaginn. Verslunin er á Laugavegi 33.
Gleði og hamingja ríkti í opnunarteiti verslunarinnar Kiosk Búðardóttur, en versl-
unin er samstarfsverkefni þeirra Ásmundar Más Friðrikssonar, Eyglóar Lár-
usdóttur, Rebekku Jónsdóttur, Sævars Markúsar, Ýrar Þrastardóttur, Örnu
Sigrúnar Haraldsdóttur, Hlínar Reykdal, Maríu Sigurðardóttur og Eddu og
Sólveigar Guðmundsdætra.
Danski plötusnúðurinn Djuna Barnes þeytti skífum og af myndunum að dæma
skemmtu allir sér hið besta. - sm
Gleði og hamingja í
opnunarpartíi Kiosk
ÁNÆGÐIR EIGENDUR Hönnuðirnir sem reka Kiosk Búðardóttur voru að vonum ánægðir með
kvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
FRÍÐA OG MARÍA BJÖRG létu sig ekki vanta á opnunina.
UNGUR TÍSKU-
UNNANDI Eva
mætti ásamt eins
árs gömlum syni
sínum, Gísla
Marinó, á
opnunina.