Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 2
2 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR Khat er planta sem er upprunnin í Norðaustur-Afríku og á Arabíuskaga. Lauf plöntunnar innihalda örvandi efni og hafa verið skilgreind sem fíkniefni víða um heim. Khat-neyt- endur tyggja laufblöð plöntunnar, sem hafa takmarkaðan líftíma eftir tínslu. Notkun efnisins hefur að mestu verið bundin við þau svæði þar sem plantan vex, en með betri samgöngum hefur neysla khats færst í aukana á Vesturlöndum. Einar, eruð þið ekki úti að aka? „Nei, við erum ekki úti að aka, við erum í strætó.“ Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi er formaður menningar- og ferðamálaráðs og í stjórn Strætó bs. Frítt verður í strætó á menningarnótt á laugardag. SKOTLAND Meira en fimmtíu bál- reiðir mótmælendur komu í veg fyrir að færeyskir sjómenn gætu landað makrílafla í bænum Peter- head í Skotlandi í fyrrakvöld. Seint um kvöldið gáfust Færey- ingarnir upp og sigldu úr höfn. Skoskir sjómenn eru afar ósáttir við veiðar Færeyinga og Íslendinga á makríl þrátt fyrir að ekki hafi tekist samkomulag um skiptingu heildarafla úr stofn- inum. Bæði norsk stjórnvöld og ráðamenn í Evrópusambandinu hafa gagnrýnt þessar veiðar. - gb Harka hleypur í makríldeilur: Færeyskt skip gat ekki landað DÓMSMÁL Sigurður Einarsson, fyrr- verandi stjórnarformaður Kaup- þings, kom til landsins í gær, en hann hefur verið eftirlýstur í þrjá mánuði. Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar, staðfestir að hann verði yfirheyrður hjá Sérstökum sak- sóknara í dag. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins, segir að alþjóðleg handtökuskipun sem Interpol gaf út á hendur Sig- urði að ósk Sérstaks saksóknara hafi verið felld úr gildi. Hvorki Ólafur né Gestur vildu tjá sig um hvort samkomulag hafi verið gert við Sigurð um heimkom- una. Niðurfelling handtökubeiðn- innar, og sú staðreynd að Sigurður var ekki handtekinn strax við kom- una til landsins, benda þó til þess að einhvers konar samkomulag hafi náðst, samkvæmt heimildarmönn- um Fréttablaðsins. Eins og fram kom í Fréttablað- inu fljótlega eftir að handtökuskip- unin var gefin út, sagðist Sigurður viljugur til að mæta í yfirheyrslur gegn því skilyrði að hann yrði ekki handtekinn. Spurður hvort þriggja mánaða töf á því að hægt væri að yfirheyra Sigurð hafi skaðað eða tafið rann- sókn á meintum brotum í starfsemi Kaupþings sagði Ólafur að ágætur framgangur hafi orðið í rannsókn- inni. Þó að ekki takist að fram- kvæma einn þátt rannsóknarinnar eins hratt og hugsast gæti sé hægt að vinna að öðrum þáttum máls- ins. Haft var eftir Ólafi í Fréttablað- inu fyrir viku að nýjar upplýsing- ar hefðu komið fram í rannsókn- inni á Kaupþingi. Málið væri orðið stærra og flóknara en áður hafi verið talið. Interpol gaf út alþjóðlega hand- tökuskipun á hendur Sigurði 11. maí síðastliðinn að beiðni embættis sér- staks saksóknara. Þá hafði Sigurð- ur hundsað óskir saksóknara um að koma sjálfviljugur til lands- ins til yfirheyrslu. Þrátt fyrir hand- tökuskipunina töldu bresk löggæsluyf- irvöld sig ekki hafa heimild til að hand- taka Sigurð á grund- velli hennar. Var vísað til þess að Ísland hefði ekki fullgilt Evrópu- samning um hand- töku og fram- sal grunaðra og dæmdra manna. Þrír af æðstu stjórnendum Kaup- þings voru handteknir í byrjun maí vegna rannsóknar á meintum brotum þeirra. Þeir voru hneppt- ir í gæsluvarðhald, og eftir að því lauk voru þeir auk fjórða manns úrskurðaðir í farbann, sem nú er runnið út. Til stóð að yfirheyra Sig- urð um svipað leyti, en hann kom ekki til yfir- heyrslu. brjann@ frettabladid.is Verður yfirheyrður hjá saksóknara í dag Sigurður Einarsson er kominn til landsins og stefnt er á að yfirheyra hann hjá embætti sérstaks saksóknara í dag. Handtökuskipun Interpol hefur verið felld úr gildi. Ágætur framgangur á rannsókn á Kaupþingsmálum segir saksóknari. HANDTÖKUSKIP- UN Alþjóðalög- reglan Interpol gaf út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Sigurði Einarssyni 11. maí. Hún hefur nú verið felld úr gildi. KOMINN TIL LANDSINS Sigurður Einarsson er kominn til Íslands og er væntanlegur í yfirheyrslur hjá Sérstökum saksóknara í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu um níu milljóna króna framlag til rannsóknar á áhrifum eldgossins í Eyjafjalla- jökli á heilsu manna og dýra. Óskað var eftir framlaginu vegna vinnu við gagnasöfnun á gossvæðinu sem fram á að fara í haust, áður en gögn kunna að glatast. Heilbrigðisráðherra skipaði í sumar stýrihóp sem vinna á vís- indarannsókn á heilsufarsleg- um áhrifum eldgossins til langs tíma. Guðrún Pétursdóttir, for- stöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða, er formaður hópsins. - jss Áhrif eldgoss á menn og dýr: Ríkisstjórn veit- ir níu milljónir til rannsókna KJARAMÁL Ekki náðist árang- ur á kjarafundi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna (LSS) og launanefndar sveitarfélaganna í gær. Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmda- stjóri LSS, segir málið nú liggja allt hjá launanefndinni og fund- urinn í gær hafi verið bakslag í kjaradeiluna. Finnur Hilmarsson, varafor- maður LSS, segir öryggismál á menningarnótt nú vera í uppnámi sökum yfirvinnubannsins sem er í gildi. „Bráðaþjónustunni verður einungis sinnt úr Skógarhlíðinni. Og það er með tilliti til seinkana,“ segir Finnur. - sv Kjaradeila slökkviliðsmanna: Fundurinn var mikið bakslag LÖGREGLUMÁL Tollgæsla og lögregla hafa lagt hald á 37 kíló af fíkniefn- inu khat, sem er upprunnið í Norð- austur-Afríku. Þetta er í fyrsta skipti sem yfirvöld á Íslandi hafa fundið þetta fíkniefni. Talið er að efnið hafi átt að fara til Kanada. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stöðvuðu rúmlega fertugan karl- mann frá Litháen við komu hans til landsins þann 10. ágúst síðastliðinn. Í fórum hans fundu þeir 24 kíló af fíkniefninu khat. Í framhaldinu handtók lögreglan á Suðurnesjum breskan karlmann á sextugsaldri á gistiheimili í Kefla- vík. Hann er talinn hafa verið sam- ferðamaður Litháans. Í fórum hans fundust þrettán kíló til viðbótar af khat. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald 11. ágúst, og rennur varðhaldið út á morgun. Samkvæmt tilkynningu frá lög- Tollverðir og lögreglan á Suðurnesjum lögðu hald á um 37 kíló af fíkniefninu khat: Telja efnið hafa átt að fara til Kanada Örvandi laufblöð reglu og tollstjóra hefur rannsókn leitt í ljós að allar líkur séu á því að senda hafi átt efnið til Kanada, og það hafi ekki verið ætlað til dreif- ingar á Íslandi. Rannsókn leiddi einnig í ljós að Bretinn kom hing- að til lands í byrjun ágúst ásamt öðrum Breta. Talið er að þeir hafi sent fjórar sendingar af khat til Kanada, en óvíst er hversu mikið magn þeir sendu. Mennirnir eru ekki taldir hafa átt sér samstarfs- menn á Íslandi. - bj FÓLK Haraldur Noregskonungur heimsótti íslenska sýningarsvæð- ið á sýningunni Nor-Fishing, sem stendur nú yfir í Þrándheimi. Haraldur setti sýninguna við hátíðlega athöfn í gær, en þetta er í 50. skipti sem hún fer fram. Íslandsstofa skipulagði íslenskan bás þar sem sjö fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu. Þá eru nokkur önnur íslensk fyrirtæki með umboðsaðilum sínum á sýn- ingunni. Íslenski básinn var einn af fáum sem konungurinn heimsótti. Í básnum ræddi hann um fyrirtæk- in sem þar kynna og nýafstaðna veiðiferð sína til Íslands. - þeb Íslendingar á fiskisýningu: Fengu konung- lega heimsókn ÍSLENSKI BÁSINN Haraldur heimsótti íslenska básinn ásamt fylgdarliði sínu eftir að hann hafði sett sýninguna. MYND/ÍSLANDSSTOFA SKATTAR Ríflega sautján prósent á námsbækur mun bæði draga úr bóksölu og leiða til aukins brott- falls úr námi, segir Jens Fjalar Skaptason, formaður stúdenta- ráðs HÍ, í opnu bréfi sem hann hefur ritað fjármálaráðherra til að vara við hugmyndum um hækkun virðisaukaskatts á bækur. „Þrátt fyrir að LÍN láni fyrir kaupum á námsbókum er sú upp- hæð nú þegar algerlega úr takti við verðlag,“ segir Jens. „Fari þetta á versta veg og af breytingum verð- ur er að minnsta kosti nauðsyn- legt fyrir sjóðinn að hækka lán til bókakaupa umtalsvert.“ - pg Skattur á námsbækur: Stúdentaráð óttast brottfall KHAT Plantan er tuggin til að fá örvandi áhrif, og er neysla á henni útbreidd víða í Norðaustur-Afríku. N O R D IC PH O TO S/A FP LÖGREGLUFRÉTTIR Lyfjum stolið úr bílum Brotist var inn í tvo bíla og eitt íbúð- arhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í gær og stolið þaðan lyfjum. Sam- kvæmt lögreglu er mjög líklegt að meðal lyfjanna hafi verið rítalín. STJÓRNSÝSLA Hjörleifur Kvaran heldur forstjóralaunum hjá Orku- veitu Reykjavíkur í níu mánuði. Þau kjör byggjast á ráðningarsamningi frá í september 2008. Þetta kemur fram í viðtali við Hjörleif í Fréttablaðinu í dag. Hjörleif og Harald Flosa Tryggva- son, stjórnarformann OR, greindi á um úttekt Hjörleifs á stöðu fyrir- tækisins. Haraldur Flosi kveðst hafa talið nauðsynlegt að fá fram upplýsingar um „skýrt samhengi gjaldskrárhækkana og rekstrar Orkuveitunnar og markvissar til- lögur um það hvernig sparnaði verði náð. Það er hlutverk stjórn- enda að leggja slíka tillögu fyrir stjórn,“ segir Haraldur Flosi. „Verk- efnið er að koma Orkuveitu Reykja- víkur í það ástand að fyrirtækið sé greiðsluhæft og gjaldgengt á lána- mörkuðum. Það þarf að fara að skil- greina lykilþætti árangurs á þeirri leið og skoða alla möguleika með opnum hug.“ - pg / sjá síðu 16 Harald Flosa og Hjörleif greindi á um úttekt Hjörleifs á stöðu Orkuveitunnar: Fær forstjóralaun í níu mánuði HARALDUR FLOSI TRYGGVASON Telur að greining forstjóra Orkuveitunnar hafi ekki skilað stjórninni nægilega greinar- góðum upplýsingum um fyrirtækið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPURNING DAGSINS H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -1 6 7 4 ... og rjómi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.