Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 74
46 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR golfogveidi@frettabladid.is FL U G A N A F B A K K A N U M Veiðistaðurinn - Myrkhylur í Norðurá 70.000 Sjóbirtingurinn er nú víða farinn að láta sjá sig í töluverðum mæli í Vestur-Skafta- fellssýslu. Á sunnudag var fyrsta sjóbirtingnum í Geirlandsá landað en undan- farna daga hefur sjóbirtingur einnig veiðst í Tungulæk og Steinsmýrarvötnum. Í Steinsmýrarvötnum veiddi hollið, sem þar var um síðustu helgi, 25 sjóbirtinga. Reyndar hafa stöku sjóbirtingar fengist í Steinsmýrarvötnum frá því í lok júli en nú er veiðin heldur betur farin að glæðast þar. Sjóbirtingsveiði farin að glæðast Sjóbirtingur er einnig farinn að ganga í Varmá en þar hefur verið ágætis veiði undanfarið. Reyndar hefur borið á veiðiþjófum í Varmá og eru þar ekki á ferðinni börn eða unglingspiltar. Veiðimaður sem hafði keypt sér leyfi í síðustu viku, og átti að vera einn í ánni, kom að tveimur fullorðnum mönnum, með flugugræjur við veiðar. Þeir voru ekki með veiðileyfi og voru því reknir úr ánni. Veiðiþjófar í Varmá 60 Laxveiðiferill hins danska Steens Foldberg byrjaði heldur betur fjörlega. Hann fékk maríulaxinn í fyrradag á Nessvæðunum í Laxá í Aðaldal þar sem hann landaði 109 sentímetra hæng sem sam- kvæmt viðmiðunarkvarða Veiði- málastofnunar er 25,5 pund. Daninn veiddi laxinn á Sker flúðum á svæði 2. Laxinn tók fluguna Hair Mary Brown númer 4 og stóð viðureignin yfir í 40 mínútur. Völundur Hermóðs- son í Álftanesi var leiðsögumað- ur Foldbergs. Menn hafa marg- ir orðið varir við stórlaxa í ánni í sumar og hafa nokkrir stórir sloppið á Knútsstaðatúni og Grundarhorni en báðir veiðistað- irnir eru á svæði 6. - th Fjörleg veiði í Laxá í Aðaldal: Dani landaði risamaríulaxi 25,5 PUNDA HÆNGUR Steed Foldberg og Völundur Hermóðsson með laxinn á bökkum Laxár í Aðaldal. Tachyon XC Fullkomin myndbandsupptökuvél til að taka upp myndskeið af áhugamálinu án þess að nota hendurnar því þú festir vélina á hjálminn, byssuna, húfuna stýrið eða köfunargleraugun. Vélin er vatnsheld að 30 metra dýpi og ótrúlega sterk. Fjörið sýnir þú svo á Facebook eða YouTube. Verð frá 33.900 Dakota Harðgert, lófastórt útivistartæki með snertiskjá, næmum GPS-móttakara með HotFix™ gervihnattaútreikningi, hæðarmæli, rafeindaáttavita, SD-kortalesara, 3-ása rafeindaáttaavita og grunnkorti af heiminum. Dakota staðsetur þig fljótt, örugglega og nákvæmlega. Verð frá 49.900 Oregon GPS staðsetningartæki með einfaldri og aðgengilegri valmynd, alvöru þrívíddarkorti, snertiskjá, hágæða GPS-móttakara, hæðarmæli, 3-ása rafeindaáttavita, SD-kortalesara, myndaskoðun o.fl. Oregon veitir góða tilfinningu fyrir landslaginu og er fullkominn ferðafélagi hvert sem förinni er heitið. Verð frá 74.900 Surefire vasaljós Surefire vasaljós er ekki það sama og vasaljós því ljósið er ótrúlega bjart úr ekki stærra vasaljósi. Surefire notar nýjustu og bestu tækni sem völ er á til að þróa enn betri ljós en þekkst hafa. Amerísk gæði tryggja styrk og endingu, hvort sem er í handljósum eða höfuðljósum. Verð frá 16.900 LEGGÐU EKKI AF STAÐ ÁN ÞEIRRA Frábær búnaður í skotveiðina Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is GARMIN BÚÐIN Þeir eru töluvert margir veiðimennirnir sem ár- lega snúa frá Stóru-Laxá í Hreppum án þess að hafa sett í fisk. Þeir sem eru henni trúir geta hins vegar upplifað ævintýri sem fátt skákar þegar kemur að stangveiði. Hópur veiðimanna sem var við veiðar á svæði I og II í tvo daga síðla júlímánaðar er meðal þeirra sem engan lax fengu og sáu lítið. Hins vegar er náttúran við Laxá með þeim ólíkindum að enginn þeirra átta veiðimanna sem þar komu í fyrsta skipti fóru ósáttir. Allir ætla að snúa aftur og und- irritaður er einn þeirra. Er það kannski ekki síst vegna færslu í gestabókinni sem hefst á orðunum „Loks var okkur launað erfiðið. Eftir áralanga tryggð og margar veiðiferðir í Stóru-Laxá var stór- veiði raunin.“ Það var Gunnar Örlygsson, fyrr- verandi alþingismaður, sem þar hélt á penna og er einn þeirra sem hafa tekið ástfóstri við Stóru-Laxá. Það er ekki erfitt að finna virðing- una sem hann ber fyrir ánni þegar hann ritaði færsluna í gestabók- ina 28. september í fyrra. Þá höfð- ui hann og félagar hans landað og sleppt 53 löxum og áttu eina vakt eftir. Vekur athygli að bjartir og lúsugir fiskar voru innan um í aflanum sem er með ólíkindum á þessum árstíma. Eins var óhugn- anlega hátt hlutfall veiðinnar ríg- vænn tveggja ára lax; sannkallað- ur stórlax. „Þessi á er sannkallaður helgidómur veiðimanna“ skrifaði Gunnar í niðurlagi færslunnar. Þegar Gunnar er inntur eftir minningum frá Stóru-Laxá þessa daga í september segist hann varla vita hvar á að byrja. „Þetta var auðvitað stórkostlegt og ég hef aldrei lent í öðru eins. Það kemur þér varla á óvart að ég pantaði á sama tíma að ári. Baráttan við þessa fiska var ógleymanleg.“ Gunnar lýsir því að aðstæður við ána hafi verið fullkomnar. Fiskur- inn var að koma upp úr jökulvatn- inu í Hvítá inn á heimaslóðirnar. Áin var að jafna sig eftir miklar rigningar og fiskurinn í tökustuði sem vart verði lýst. „Ein ljúfasta minningin tengist því líka að ég var í ánni með æskufélaga mínum sem aldrei hafði veitt 20 punda fisk. Hann fékk tvo sama daginn.“ Gunnar segist hafa kynnst því hversu dyntótt áin er, en hann hefur veitt í Stóru-Laxá í tvo ára- tugi og oft komið þaðan fisklaus. „Ég hef engu að síður alltaf sömu ástríðu fyrir þessari á, hvernig sem aflatölurnar líta út í það og það skiptið. Það sem ræður því er nátt- úran. Víða er fallegt við íslenskar ár en fátt ef nokkuð stenst saman- burð við Stóru-Laxá. Hún gaf mér líka minn stærsta lax sem var 21 pund.“ svavar@frettabladid.is „Loks var okkur launað erfiðið“ ÆVINTÝRI Á BÖKKUM STÓRU-LAXÁR Gunnar segir að þessi mynd lýsi veiðitúrnum vel. Stórlax í hendi og gleði veiðimanna fölskvalaus. Af tæplega 60 löxum sem komu á land var meira en helmingurinn tveggja ára fiskur; margir voru yfir 20 pund eins og sá sem Arthur Galvez heldur hér á. Gunnar samgleðst félaga sínum. The Crazy Twin er hönnuð af Ásmundi Helgasyni. Nafnið er til komið vegna geðillsku Gunnars tvíburabróður hans sem var ekki par ánægður með að Ási mokaði upp löxum fyrir framan nefið á honum á þessa flugu. Flugan er búin að sanna sig sem góð veiði- fluga, ekki síst í Laxá í Aðaldal. Geðillskan gaf flugunni nafn THE CRAZY TWIN manns eða stór hluti landsmanna sem getur haldið hjálparlaust á stöng, eru taldir stunda stangveiði í ám og vötnum landsins ár hvert. laxar veiddust að jafnaði í Eystri- og Ytri Rangá fyrir tíma seiðasleppinga. Eins og kunnugt er veiðast fleiri laxar daglega í ánum þegar veiði stendur sem hæst. Bjarni Júlíusson, fyrrverandi formaður SVFR, þekkir Norðurá betur en margur og lýsir aðstæðum þannig: „Myrkhylur er án efa einn af betri hyljum Norðurár. Fyrri hluta sumars stoppar þarna lax í göngu, sérstaklega ef vatnið er ekki of mikið. Þó Myrkhyl- ur sé fyrst og fremst staður sem gefur laxa í göngu, í júní eða júlí. Hylurinn er skemmtilegastur þegar ekki er of mikið vatn í ánni. Venjulega er hann veiddur vestan frá. Best er að byrja efst í strengnum og standa fyrir ofan stóra steininn sem þar er. Margir setja flottúbu með gárubragði eða reyna að strippa Kolskegg, Collie Dog eða Sunray Shadow ofarlega í strengn- um sjálfum. Þegar fullreynt er efst í strengnum, er gott að fara niður fyrir steininn og vaða aðeins út í og kasta á spegilinn sjálfan. Síðan er vaðið niður eftir og kastað niður hylinn. Ekki fara of langt út í, því þegar neðar dregur er rás eða gjá stutt frá landi og fyrir miðri rásinni er dálítill bolli og þar liggur oft lax. Beint fyrir ofan bollann er kletturinn Skyggnir. Veiði- menn geta farið varlega upp með klettinum og skyggnt hylinn og þá ættu þeir að sjá hvar sá silfraði liggur. Í göngu má oft setja í lax neðan við hylinn sjálfan þar sem gjáin endar og lygna vatnið og dýpið byrjar. Munið – Þetta er einn af þeim hyljum sem veiðimenn skulu alls ekki ganga fram hjá án þess að kasta á hann!“ - shá YFIR 20 PUNDIN Hér heldur Gunnar á einum risahængnum rétt áður en honum var rennt út í hylinn að nýju. Flestir veiðimenn njóta þess aldrei að handfjatla fisk eins og þennan. Gunnar veiddi þrjár hrygnur á veiðistaðnum Reykhólma sem voru 90 til 98 sentimetrar. Engin mynd er þó til af þeim drottningum. MYNDIR/GUNNAR ÖRLYGSSON Það kemur þér varla á óvart að ég pantaði á sama tíma að ári. GUNNAR ÖRLYGSSON FYRRV. ALÞINGISMAÐUR GLÆSILEG BYRJUN Þórdís Klara Bridde landaði 73 sentimetra hrygnu við opnun Norðurár í sumar. MYND/BJARNI JÚLÍUSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.