Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 20
20 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Guðmundur Andri Thorsson rithöfund-ur hefur skrifað greinar í Fréttablað- ið að undanförnu um Evrópusambandið. Eða öllu heldur, hann hefur skrifað grein- ar um þá sem skrifa um Evrópusamband- ið. Og niðurstaða hans er að þeir sem eru andvígir því að Ísland gangi í ESB fari með fleipur, séu haldnir órum eða segi trölla- sögur. Það staðhæfir þessi ágæti rithöfund- ur sem í hinu orðinu kallar eftir málefna- legri umræðu, segir að „óskandi væri að umræðan um ESB snerist um málefni.“ Síðasta grein hans heitir Vinstri græn og Evrópusambandið og fjallar aðallega um meint „raus“ Ögmundar Jónasson- ar. „Raus“ heitir það þegar andstæðing- ar ESB-aðildar færa rök fyrir máli sínu. Í ágætri grein hafði Ögmundur rakið hvern- ig áhersla á markaðsvæðingu almannþjón- ustunnar hefði færst í vöxt samkvæmt tilskipunum frá Brussel, sótt hefði verið að samningsréttarkerfum launafólks og stefnumótun innan Evrópusambands- ins færi í vaxandi mæli fram í dómsölum: „Þetta virðist mér vera að gerast“ skrif- ar ÖJ, „á vettvangi ESB: Aukin framsókn markaðsaflanna inn í lendur sem áður voru alfarið á vegum ríkis og sveitarfélaga og síðan hitt að dómstólar eru sífellt að verða meira stefnumótandi í málum sem eru í eðli sínu pólitísk, eða m.ö.o. lýðræðisleg úrlausnarefni, og snúa að skipulagi samfé- lagsins. Þetta vekur spurningar um hvort og hve lengi fyrirvarar sem kann að verða samið um halda gagnvart jafnræðisreglum sem dómstólar horfa jafnan til. Þegar jafn- ræðið snýr að markaðnum hafa félagsleg- ir þættir oftar en ekki þurft að víkja fyrir kröfu um hömlulaus markaðsviðskipti.“ Hér er vikið að grundvallarmáli. Halda fyrirvarar sem nú kann að verða samið um? Ekki minni maður en Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, segir svo ekki vera. Á sameiginlegum fréttamannafundi 27. júlí sl. með Össuri Skarphéðinssyni utanríkis- ráðherra lýsti stækkunarstjóri ESB því yfir að það væri „ekki hægt að fá neinar varanlegar undanþágur frá lögum ESB“ aðeins tímabundna aðlögun. Þegar í ofan- álag bætist aukið vægi dómstólanna sem Ögmundur Jónasson vísar til, er veruleg ástæða til að velta fyrir sér hvort hugsan- legir ávinningar við samningaborð séu til að treysta á. Svo virðist ekki vera sam- kvæmt því sem best verður séð. Sér Guð- mundur Andri aðra fleti sem ég kem ekki auga á hvað þetta snertir? Hvernig væri að hann léti af skætingsskrifum og hæfi málefnalega umræðu, til dæmis um þetta atriði? ESB fyrirvararnir halda ekki! Evrópumál Ásmundur Einar Daðason alþingismaður Vinstri- hreyfingarinnar- græns framboðs Áhugaleysi meðal drengja Rannsóknir hafa sýnt fram á að drengir í grunnskólum landsins hafa minni áhuga á því sem þar fer fram en skólasystur þeirra en þetta áhugaleysi kemur niður á námsárangri drengj- anna. Menntaráð Reykjavíkurborgar samþykkti nýverið að setja á fót starfs- hóp með það að markmiði að leita leiða til að auka námsáhuga drengja í grunnskólum. Var tillaga þess efnis samþykkt með sex atkvæðum gegn einu en fulltrúi Vinstri grænna í menntaráði greiddi atkvæði gegn tillögunni. Nám og kynjaímyndir Sóley Tómasdóttir, oddviti VG í borgar- stjórn, tjáði sig um málið í Fréttablað- inu í gær og sagði tillöguna falla í pytt gamallar orðræðu. Mikilvægast væri að vinna með og uppræta staðlaðar kynjaímyndir í grunnskólum og stuðla að markvissri kynjafræðslu fyrir bæði kynin. Sjónarmið Sóleyjar eru vissulega góðra gjalda verð en erfitt er að sjá að þau mæli gegn því að reynt sé að ýta undir áhuga drengja í skólastarfi. Getur þetta tvennt ekki farið saman? Ekki verk eins manns Icelandic Group birti í gær tölur um afkomu á fyrri helmingi ársins en hagnaður af reglulegri starfsemi jókst um 135 prósent milli ára. Í fréttatil- kynningu sem send var út af þessu tilefni skrifar Finnbogi Viktorsson, forstjóri fyrirtækisins: „Hvaða forstjóri yrði ekki ánægður með 135 prósenta arðsemisaukningu á fyrstu sex mán- uðum ársins eftir að hafa skilað besta rekstrarári í sögu félagsins árið 2009?“ Ekkert svar kemur við spurningunni en Finnbogi er fljótur að taka fram að þessi árangur sé ekki verk eins manns heldur allra starfsmanna fyrir- tækisins, hógværðin uppmáluð. magnusl@frettabladid.is Fæst í heilsubúðum, og matvöruverslunum • Lífrænt ræktað hráefni • Án viðbætts sykurs • Engin rotvarnarefni F réttablaðið sagði í gær frá tillögum, sem meðal annars eru unnar í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ganga út á að þak verði sett á það hversu mikið sveitar- félögum verður heimilt að skuldsetja sig. Rætt er um að horfa þá til allra skulda sveitarfélaganna, bæði A-hlutans, sem tekur til hefðbundins rekstrar og er fjármagnaður með skatt- fé, og B-hlutans, en í honum eru fyrirtæki í eigu sveitarfélaganna með sjálfstæða tekjustofna, til dæmis hafnir og orkuveitur. Tillög- urnar ganga út frá að skuldaþak- ið verði 150% af heildartekjum sveitarfélaganna. Verði þessar tillögur að lögum, gerir það út af fyrir sig ekki mikið til að bæta þá afleitu fjárhagsstöðu, sem mörg sveit- arfélög eru komin í. Skuldastaða þeirra margra er umfram mark- ið sem rætt er um og lögfesting þess verður þannig ekki annað en staðfesting á þeirri leið heilbrigðrar skynsemi að reyna að ná skuldunum niður með aðhaldi og hagræðingu í rekstri. Hins vegar getur skuldaþak komið í veg fyrir að staðið verði að rekstri sveitarfélaga með jafnábyrgðarlausum hætti og reyndin er um þau mörg á undanförnum árum. Það er staðreynd að mörg sveitarfélög skuldsettu sig í góðærinu, þrátt fyrir vaxandi tekjur. Stjórnmálamenn, sem vildu kaupa sér vinsældir, létu ekki duga að framkvæma fyrir tekjuaukann, hvað þá að greiða niður skuldir, heldur nýttu sér jafnframt aðganginn að ódýru fjármagni til að taka lán. Mörg dæmi eru um að þegar innlendur lánamarkaður varð tregari til að lána, hafi verið tekin erlend lán. Það fór síðan eins og það fór þegar krónan hrundi. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenzkra sveitarfé- laga, sagði í fréttum Bylgjunnar í gær að væri fjárhagsstaða sveit- arfélaga borin saman við stöðu ríkisins kæmu sveitarfélögin vel út úr þeim samanburði. Það er rétt svo langt sem það nær. Halldór gleymir hins vegar að geta þess að ríkissjóður hafði greitt niður skuldir í góðærinu og var betur í stakk búinn en ella að taka á sig þá gríðarlegu bagga, sem fylgt hafa bankahruninu, þar með talið gjaldþrot Seðlabankans, endurfjármögnun bankanna og Icesave- skuldirnar. Sveitarfélögin juku skuldir sínar þegar þeim bauðst einmitt sama tækifæri og ríkinu til að greiða þær niður. Rétt eins og hjá ríkinu er fram undan mikil tiltekt í fjármálum sveitarfélaganna. Hugsanlega knýr hún fram fleiri sameiningar sveitarfélaga. Þau eru enn of mörg og lítil og hafa sum hver ekki burði til að takast á við lögbundin verkefni. Skuldaþakið er skynsamlegt, vegna þess að ekki er víst að allir stjórnmálamenn hafi lært af reynslunni. Og á eftir þeim sem nú sitja í sveitarstjórnum kunna að koma pólitíkusar sem finnst í lagi að skuldsetja næstu kynslóð til að koma hugmyndum sínum sem fyrst í framkvæmd. Stjórnmálamenn sem vildu kaupa sér vinsældir skuldsettu sveitarfélögin. Skuldaþak er skynsamlegt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.