Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 64
36 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Leikarahópurinn í kringum fyrstu
myndina um Lisbeth Salander og Mik-
ael Blomkvist er smám saman að skýr-
ast. Fjölmiðlar vestra greindu frá því í
gær að viðræður við sænska stórleik-
arann Max von Sydow væru hafnar
en hann ætti að leika Henrik Vanger,
höfuð Vanger-fjölskyldunnar sem
leitar að týndri frænku sinni. Þetta
þykir nokkuð fyrirsjáanlegt enda
væru fáir jafngóðir í hlutverk
Vangers og Sydow, hann er
enda sænskur eins og höfundur
bókanna, Stieg Larsson.
Eins og kom fram í fjölmiðl-
um í gær hreppti bandaríska
leikkona Rooney Mara hið eftir-
sótta hlutverk Salander en margir hafa
lýst því yfir að þetta sé eitt heitasta
kvenhlutverk seinni tíma. Fjölmiðlar
fjölluðu mikið um leikkonuna en hún
er svo mikið smástirni að einn vefur-
inn ruglaðist á henni og systur hennar.
Efasemdarmenn hafa lýst yfir miklum
áhyggjum af vali leikstjórans, Dav-
ids Fincher, en samkvæmt vefmæling-
um hafa skrif um Rooney Mara verið
mun oftar jákvæð en neikvæð sem
bendir til þess að aðdáendur bókanna
séu almennt ánægðir. Einn kvikmynda-
spekúlant sagðist einfaldlega vonast til
þess að myndin fylgdi söguþræðinum,
annars kæmi Larsson til með að snúa
sér við í gröfinni.
Nokkuð fyrirsjáanlegt leikaraval
The Expendables hefur
vakið gríðarlega lukku
meðal karlmanna sem hafa
lengi þráð að sjá testóster-
ónið flæða unnvörpum.
Kvikmyndin virðist hafa
uppfyllt allar þær óskir
því The Expendables hefur
fengið frábæra dóma og
ótrúlega aðsókn.
Leikarahópur The Expendables
er einstakur og þótt margir hafi
eingöngu látið sig dreyma um að
sjá Arnold Schwarzenegger og
Sylvester Stallone saman á hvíta
tjaldinu þá efuðust flestir um að
sá draumur yrði að veruleika. Sér-
staklega eftir að sá fyrrnefndi
tók við ríkisstjórastöðunni í Kali-
forníu. En nú hefur draumurinn
ræst, einhverjir tala um svipað-
an menningarviðburð og þegar
Al Pacino og Robert De Niro töl-
uðu fyrst hvor við annan á hvíta
tjaldinu í Heat.
Þótt Adda Svakanagg og Sly
Stallone bregði fyrir aðeins í
stuttan tíma saman þá birtast has-
armyndastjörnurnar á færibandi í
myndinni. Bruce Willis, sem fyrir
löngu hefur sýnt að hann er snill-
ingur í að drepa með sitt víðfræga
glott að vopni, birtist í myndinni
og ofurtöffarinn Mickey Rourke
lætur sitt ekki eftir liggja. Þá má
ekki gleyma Dolph Lundgren, Jet
Li og Jason Statham sem stimpl-
ar sig endanlega inn í þennan sér-
staka leikarahóp; að vera hasar-
myndastjarna. Til gamans má
svo geta að reynsluboltarnir í
myndinni, Sly, Schwarzenegger
og Lundgren skipa efstu sætin á
hinum ýmsu listum internetsins
yfir hvaða leikarar eigi flest morð
á hvíta tjaldinu. Kannski kemur
það á óvart að Lundgren er talinn
vera sá sem hefur murkað lífið úr
flestum en þær tölur voru reynd-
ar gerðar fyrir síðustu Rambo-
mynd. En þar náði tala látinna
nýjum hæðum.
Að kalla saman svona hasar-
myndahóp er engin nýlunda
þótt vissulega sé langt um liðið
síðan karlpeningurinn fékk slíka
snemmbúna jólagjöf. Á árunum
1960 til 1970 uppgötvuðu menn
nefnilega að það væri markaður
fyrir slíkar karlmennskumyndir.
Fyrst reið á vaðið kúrekamynd-
in The Magnificent Seven með
James Coburn, Charles Bronson
og Steve McQueen. Myndin fór
svo vel ofan í áhorfendur að The
Great Escape var gerð aðeins
þremur árum síðar; Coburn,
Bronson og McQueen voru á
sínum stað og seinni heimsstyrj-
öldin þótti tilvalin bakgrunn-
ur fyrir hetjudáðir og hárbeitt-
an húmor á kostnað nasista. Í
kjölfarið komu áþekkar myndir
á borð við The Dirty Dozen og
Kelly‘s Hero, allt myndir þar sem
nærvera aðal-harðhausa á borð
við Clint Eastwood, Bronson og
Coburn nægði.
Velgengni The Expendables
mun því að öllum líkindum hafa
nokkur áhrif á kvikmyndagerð í
Hollywood. Hugsanlega verður
afturhvarf til stjörnumprýddra
hasarmynda sjöunda áratugarins
þar sem vöðvabúnt sýna áhorf-
endum hvernig eigi að sigrast á
hinu illa í heiminum. Ef ekki, þá
virðist myndin vera velheppnaður
óður til hins hreinræktaða hasar-
myndaforms. - fgg
Sögulegur menn-
ingarviðburður
ENGAR VEIMILTÍTUR Dolph Lundgren og Sly Stallone börðust í Rocky en snúa
núna bökum saman. Arnold Schwarzenegger og Stallone háðu harða baráttu um
konungs tign Hollywood á níunda áratugnum en leika nú á móti hvor öðrum. The
Expendables er mynd sem alla aðdáendur hasarmyndanna dreymdi um að sjá en
trúðu aldrei að gæti orðið að veruleika.
> ROTTURNAR GERÐU ÚTSLAGIÐ
Eli Roth sagði í bloggi á vefsíðunni
Craignco.com að rottugangurinn í
íbúð hans í New York hefði orðið
til þess að hann ákvað að slá í gegn
í Hollywood. „Ég átti engan pening
og þreif upp dauðar rottur í íbúðinni
minni. Þá fékk ég nóg og ákvað að láta
verða eitthvað úr mér.“
HENRIK VANGER Max von Sydow kemur
sterklega til greina sem Henrik Vanger, höfuð
Vanger-fjölskyldunnar, í Karlar sem hata konur.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Flestum ætti að vera kunnugt um
stirt samband hunda og katta. Þessu
stríði voru gerð skil í kvikmyndinni
Hundar og kettir og nú er fram-
haldsmyndin af þeim ævintýrum
komin í bíó. Og það þarf væntan-
lega ekki að koma neinum á óvart
að hún er í þrívídd. Að þessu sinni
þurfa þó hundarnir og kettirnir að
grafa stríðöxina og berjast gegn
sameiginlegum óvini, Kitty Galore,
sem hyggst ná heimsyfirráðum.
Nokkrir þekktir leikarar ljá loðnu
ferfætlingunum röddu sína, helst
ber kannski að telja Bette Midler
sem talar fyrir Kitty Galore.
Leikstjórarnir Jason Friedberg
og Aron Seltzer eru ekki hátt skrif-
aðir kvikmyndagerðarmenn hjá
kvikmyndagagnrýnendum sem
hafa undantekningarlaust hakkað
myndir þeirra í sig. Friedberg og
Seltzer hafa engu síður náð frægð
og frama hjá peningamaskínunni
Hollywood en þeirra aðallífsviður-
væri er að gera bíómyndir sem eru
grínútgáfur af vinsælum myndum.
Þeirra nýjasta afurð heitir Vamp-
ires Suck og eins og nafnið gefur til
kynna er hugsunin sú að gera grín
að vampírumyndum sem hafa tröll-
riðið kvikmyndahúsum síðan Twi-
light-serían hóf göngu sína.
Hundar og kettir í þrívídd
ENN EITT RUGLIÐ Hinir sömu og komu að gerð Scary Movie, Epic Movie og allra
þeirra mynda eru mættir aftur með Vampires Suck.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500