Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 49
menningarnótt ● fréttablaðið ●FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2010 19
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og
Stjörnufræðivefurinn bjóða gestum og
gangandi að skoða sólina með sérstökum
sólarsjónaukum á menningarnótt, en sjón-
aukarnir sýna vel virk svæði sólarinnar og
fleiri fyrirbæri sem sýna glöggt hve breyti-
leg þessi nálægasta sólarstjarna er.
„Við verðum fyrir framan styttuna af
Jóni Sigurðssyni á Austurvelli frá klukkan
13 til 17 ef veður leyfir, en nauðsynlegt er
að sjáist til sólar svo hægt sé að skoða hana
með sólarsjónauka,“ segir Sverrir Guð-
mundsson, jarðeðlisfræðingur og stjörnuá-
hugamaður, um viðburðinn sem vafalaust er
með þeim forvitnilegri á dagskrá dagsins.
„Sólin er ofurbjört og við ráðum öllum
frá því að horfa beint í hana. Það er stór-
hættulegt sjóninni að skoða hana í gegn-
um öðruvísi sjónauka en sólarsjónauka, en
í þeim eru síur sem hleypa einum tíuþús-
undasta eða einum hundraðþúsundasta ljóss
í gegn. Þeir sem vilja skoða sólina nánar
skulu því bara drífa sig til okkar,“ segir
Sverrir og staðfestir að hreint magnað sé að
komast nær sólinni.“
- þlg
Komist nær sólinni á Austurvelli
Sverrir Guðmundsson jarðeðlisfræðingur í jarðlægu
návígi við sólina á Austurvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Við erum með heljarmikla dag-
skrá frá klukkan tvö til fimm þar
sem allir listhópar Hins húss-
ins frá sumrinu munu troða upp,“
segir Ása Hauksdóttir, deildar-
stjóri menningarmála hjá Hinu
húsinu.
Ása segir dagskrána mjög fjöl-
breytta. „Við munum skreyta göt-
una fyrir utan Hitt húsið í Austur-
strætinu og svo verður bara hvert
atriðið á fætur öðru. Tónlist, dans,
ljóð og götuleikur. Við getum sagt
að þetta verði bara brot af því
besta frá sumrinu,“ segir Ása og
bætir við að ef veður verður slæmt
verði hægt að fara inn í Hitt húsið.
- mmf
Fjölbreytt hjá
Hinu húsinu
Ása Hauksdóttir segir að Austurstrætið
verði skreytt fyrir utan Hitt húsið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hægt er að hlaða niður dagskrá
menningarnætur í farsímann sinn
á örskotsstundu og hugbúnaður-
inn kostar að hámarki 10 krón-
ur fyrir Íslendinga að sögn Ernis
Erlingssonar hjá fyrirtækinu Ýmir
Mobile. En hvernig ber fólk sig að?
„Auðveldast er að slá inn get.mobi-
leguide.is og sækja dagskrána í
gegnum hugbúnaðinn með því að
smella á Sækja hnappinn í aðal-
valmynd Mobileguide,“ lýsir hann.
Ernir segir hugbúnaðinn ganga í
flestar algengustu símategundir
eins og iPhone, Nokia og Ericson.
„Sé fólk með GPS-stuðning í far-
símunum getur það líka séð hversu
langt er í næsta viðburð, lesið leið-
arlýsingu og séð kort. Þetta er
gagnvirkt og nútímalegt.“
Hann segir ekki hægt að slá inn
leitarorð á símann. Hins vegar sé
hægt að skipta dagskránni eftir
flokkum, tíma og staðsetningu og
tekur dæmi um það síðastnefnda.
„Ef þú ert stödd á Kjarvalsstöðum
getur þú flett í gegnum alla við-
burði sem eru þar. Í betri símtækj-
unum er líka hægt að vera búinn
að for-
velja
dag-
skrá
áður en
haldið
e r a f
stað.
Þetta er
umhverf-
isvænt
og fólk er
alltaf með
nýjustu
upplýsing-
arnar.“
- gun
Dagskráin í
símann
MENNINGARNÓTT ALLA HELGINA
það er 25% afsláttur í tilefni menningarnætur Reykjavíkurborgar
a
n
to
n
&
b
e
rg
u
r
www.bluelagoon.is
Dagana 20. – 22. ágúst veitum við 25% afslátt af öllum Blue Lagoon húðvörum
í verslun okkar að Laugavegi 15. Komdu við og kynntu þér íslenskar gæðavörur.
Opnunartími í Blue Lagoon Verslun Laugavegi 15
Föstudagur 10:00-18:00 Laugardagur 10:00-18:00 Sunnudagur 13:00-17:00