Fréttablaðið - 19.08.2010, Page 34

Fréttablaðið - 19.08.2010, Page 34
 19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● menningarnótt Jón Gnarr borgarstjóri mun nota Reykajvíkurhand- klæðið og Reykjavíkursápuna þegar hann stendur fyrir umræðum í heita pottinum í Sundhöll Reykja- víkur á menningarnótt. Handklæðið og sápan eru af- rakstur samvinnu vöruhönnuðanna Friðgerðar Guð- mundsdóttur og Kristínar Birnu Bjarnadóttur en þær báru sigur úr býtum í samkeppni um hönnun minja- gripa fyrir Reykjavíkurborg. „Baðmenning Íslendinga er það sem erlendum ferðamönnum þykir merkilegast þegar þeir heim- sækja landið, sundlaugarnar og heita vatnið. Minja- gripur þarf heldur ekki að vera hlutur sem fer upp í hillu, við hönnuðum því handklæði og sápu,“ útskýr- ir Friðgerður. Sápan, sem er blá, er nákvæm eftirlíking af heitu pottunum í Laugardalslaug og hvítt handklæðið dregur form sitt einnig af spírallagi pottanna og á að vefja því um líkamann. „Það er mjög klæðilegt, eins og skikkja eða kjóll. Svo er skrúbbhanski fast- ur við handklæðið til að skrúbba líkamann eftir guf- una eða pottinn.“ Samkeppnin um minjagripinn var haldin á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Reykjavíkurborg- ar. Úrslitin voru kunngerð í mars síðastliðnum og er varan nú að koma á markað. Hverju handklæði fylgir bæklingur þar sem fjallað er um baðmenningu Íslend- inga á sjö tungumálum en Friðgerður segir Reykja- víkurhandklæðið og sápuna einnig hafa fengið mjög góðar viðtökur hjá Íslendingum sjálfum. Reykjavíkurhandklæðið og sápan fást meðal ann- ars í verslununum Kraum, Mýrinni og Minju og munu fljótlega fást víðar, til að mynda í sundlaugum Reykja- víkur. - rat Eins og skikkja eða kjóll Friðgerður Guðmundsóttir og Kristín Birna Bjarnadóttir vöru- hönnuðir hönnuðu handklæði og sápu sem minjagripi fyrir Reykjavíkurborg en borgarstjórinn mun nota þetta tvennt í heita pottinum á menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ● KLÓAK OG KADILAKK Í KLETTAGÖRÐUM Dælu- og hreinsistöð Orkuveitunnar við Klettagarða verður opin almenn- ingi milli klukkan 16 og 18 á menningarnótt og boðið verður upp á leið- sögn skólpfróðra manna. Félagar í Cadillac-klúbbnum munu einnig mæta á olíudrekum sínum og stilla þeim upp á hlaðinu svo gestir og gangandi fái notið þeirra. Ólafur Gunnarsson rithöfundur er ástríðufullur Cadillac-áhugamaður og mun lesa upp úr verkum sínum. Þá mun tónlistarmaðurinn Dóri Braga taka lagið, svo eitthvað sé nefnt. ● ILMVÖTN TIL SÝNIS Í SPARK SPARK er nýtt hönn- unargallerí í Reykja- vík við Klapparstíg 33. Sýningin sem nú stendur yfir þar ber yfirskriftina EAU DE PARFUM. Þar eru frumsýnd ilm- vötn sem myndlist- armaðurinn Andrea Maack hefur unnið í samstarfi við franska ilmvatnsgerðarfyr- irtækið apf arômes & parfums. Ilmirnir eiga uppruna sinn í myndlistarverkum Andreu og hafa verið hluti af inn- setningum hennar síðastliðin tvö ár. Á meðan á sýningunni stendur eiga gestir kost á því að eignast útgáfur af ilmvötnum og fylgihlutum sem framleidd verða sérstaklega fyrir þessa frumsýningu. SPARK verður opið á menningarnótt frá klukkan 10 til 22. Kvikmyndagerðarkonan Helena Stefánsdóttir tekur þátt í vöfflukaffi í fyrsta sinn á menningarnótt. „Ég ætla að vera með vöfflur og kaffi og svo eitthvað að drekka fyrir börnin,“ segir Helena Stef- ánsdóttir kvikmyndagerðarkona sem býður gestum menningarnæt- ur í vöfflukaffi í garði sínum við Grettisgötu 6a. Þetta er í fyrsta sinn sem Helena tekur þátt í vöf- flukaffi menningarnætur. Að eigin sögn hefur Helena verið beðin um að taka þátt í vöfflukaff- inu nokkrum sinnum áður. „Ég var með Kaffi Hljóma lind í fimm ár þannig að ég var alltaf svo upptek- in á menningarnótt þar. Mig lang- aði alltaf að vera með í vöfflukaffi en ég hafði bara ekki tök á því út af Hljómalind,“ segir Helena og bætir brosandi við að hún sé hálf- partinn að færa Hljómalind í garð- inn heima. Helena ákvað að vera einnig með garðsölu meðfram vöfflukaff- inu. „Þar verða alls konar litlir, fal- legir hlutir sem ég er að losa mig við. Ég ætla að selja bolla, leirtau, kertastjaka og ýmislegt smádót. Svo ætlum við að selja rúmið okkar líka og ýmislegt fleira dót.“ Innt eftir því af hverju Helena ákvað að halda garðsölu meðfram vöfflukaffinu segir hún: „Það er vegna þess að ég er að flytja til út- landa.“ Hún er að fara til Gauta- borgar í mastersnám í Media Art sem er myndlist með ýmsum miðl- um. Námið tekur tvö ár og hjónin ætla að setjast á skólabekk saman. „Við verðum saman í bekk.“ Hvar kviknaði hugmyndin? „Við fengum þessa hugmynd vegna þess að ég á svo mikið af fallegum hlut- um sem ég tími ekki að henda eða gefa. Mig langar samt ekki að setja þá í geymslu því ég vil að þeir nýt- ist öðrum. Þannig að ég ákvað bara að reyna að selja þetta,“ útskýr- ir Helena sem segir dóttur sína einnig selja nokkur leikföng. „Það þurfti smá að tala hana til, þú veist hvernig börn eru, þau vilja eiga allt. Henni tókst að safna í einn kassa fallegum leikföngum sem hún vill að láta frá sér.“ - mmf Býður hjónarúm til sölu í vöfflukaffi á Grettisgötu Helena Stefánsdóttir mun hafa móður, systur og vinkonu til aðstoðar í vöfflukaffinu á menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Inntökupróf fyrir stráka og stelpur fædd 2000–2001(9–10 ára) fara fram laugardaginn 28. ágúst kl. 10.00. Prufutímar eru í boði fyrir sama aldur fram til 18. september Rafræn skráning er hafin á listdans.is Skólasetning framhaldsdeildar fer fram 20. ágúst kl. 15.00. Fyrsti kennsludagur samkvæmt stundartöflu í grunnskóla og fram- haldsdeild verður mánudaginn 23. ágúst Munið frístundarkortin. Skólaárið 2010–2011 Ljósmynd af vorsýningu Mynd: Valgarður Gíslason Þekking Reynsla Fagmennska Gæði Úrvalskennarar í klassískum og nútíma listdansi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.