Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 32
 19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● menningarnótt Setningarathöfn menning- arnætur verður í Íslandstjaldi ferðaþjónustunnar við gömlu verbúðirnar á Reykjavíkurhöfn klukkan 13 á laugardag. „Áður en Jón Gnarr borgarstjóri setur menningarnótt með pompi og prakt syngur finnski háskóla- kórinn Chamber Choir Cantinovum ljúfa tónlist fyrir hátíðargesti í 180 fermetra Íslandstjaldi sem standa mun á bílastæði milli gömlu Hafn- arbúðar á Geirsgötu 9 og gömlu, sægrænu verbúðanna, en þar verð- ur taumlaus dagskrá og mikið stuð í sjö tíma,“ segir Kristín Þorleifs- dóttir landslagsarkitekt sem skipu- leggur viðburði Ferðamálastofu og markaðsstofu landshlutanna sem nú taka þátt í hátíðarhöldum menn- ingarnætur í fyrsta sinn. „Eftir ávarp Jóns Gnarr hefst vinna við hápunkt hátíðarhald- anna í Íslandstjaldinu. Sú hug- mynd kviknaði að tengja saman landshlutana sjö sem taka þátt í viðburðum Ferðamálastofu nú í skemmtilegum gjörningi og úr varð sjö metra langt Íslandsmál- verk þar sem listamenn úr hverj- um landshluta spinna af fingr- um fram fagurt listaverk. Lista- maðurinn Pétur Stefánsson ríður á vaðið fyrir hönd Höfuðborgar- stofu og eftir hans klukkustund við strigann tekur næsti listamað- ur við penslinum þaðan sem Pétur lagði línurnar, en verkið er hugsað sem ein heild þótt við vitum ekkert hvað kemur út úr óvæntri sköpun listamannanna sjö,“ segir Kristín full tilhlökkunar. „Dagskránni verður skipt upp í klukkutíma skemmtihólf fyrir hverja og eina markaðsstofu og allt milli himins og jarðar sem hver landshluti býður gestum sínum til skemmtunar. Þar má nefna leik- brúðusýningu frá Borgarnesi, trú- badorinn Bjartmar Guðlaugsson, Jönu Maríu Guðmundsdóttur með sönglög Helenu Eyjólfsdóttur, Stúf Leppalúðason norðan úr Mývatns- sveit, Valgeir Guðjónsson, sunn- lenska Aer-tríóið og Bigga Bix tón- listarmann og Ísfirðing. Þá mætir norðlensk skíðafjölskylda í höfuð- staðinn til að sýna Sunnlendingum hvernig á að haga sér í snjó, svo fátt sé upptalið af bráðskemmti- legri dagskrá þar sem allir finna eitthvað við hæfi,“ segir Kristín kát. „Það er svo við hæfi að hinn víðförli Ómar Ragnarsson sjái um gamanmál og afhjúpi málverk allra landsmanna klukkan 20, og sem erindreki ferðalangsins í uppák- omum Ferðamálastofu lokar há- tíðinni belgíska brassbandið La Fanfare du Belgistan með djöful- legum dönsum í villtum og dular- fullum ryþma sem blandast við dá- leiðandi laglínur sem æra jafnt þá sem aðhyllast arabíska-, sígauna- eða djassmúsík.“ - þlg Málverk allra landsmanna Hér standa þau Einar Þór Karlsson hjá Höfuðborgarstofu og Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt við sægrænu verbúðirnar þar sem Íslandstjaldið mun standa. Einar heldur að gamni hjólinu á lofti til að minna á hjólakortið í Grænu Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Flugbjörgunarsveitin í Reykja- vík fagnar 60 ára afmæli í ár. Í tilefni þess verður opið hús á laugardaginn milli klukkan 13 og 18 í höfuðstöðvum Flugbjörg- unarsveitarinnar að Flugvallar- vegi. Gestum gefst þar tækifæri til að kynna sér starfsemi Flug- björgunarsveitarinnar í gegnum árin í hnotskurn. Á staðnum verð- ur meðal annars sögusýning þar sem gamlir og nýir hlutir úr sögu Flugbjörgunarsveitarinnar verða til sýnis. Börnum verður boðið að klifra á klifurvegg sveitarinnar og geta rennt sér á lítilli línubraut sem sett verður upp á staðnum. Ferðasjúkrahús verður sett sér- staklega upp og geta gestir reynt bæði blástursmeðferð og hjarta- hnoð á þar til gerðum brúðum og eins verður hægt að skoða tvo stóra jeppa, sérútbúna til björg- unarstarfa. Flugbjörgunarsveit- arfólk verður á staðnum í fullum útivistarfatnaði og útskýrir bún- aðinn fyrir gestum. Flugbjörgunarsveitin er eina sveitin með sérhæfða fallhlífa- sveit. Í miðbænum verður því hægt að sjá fallhlíf á lofti auk þess sem erlendir kórar á kóra- móti á menningarnótt koma við yfir daginn og syngja vel valin lög og óska sveitinni til hamingju með afmælið á íslensku. Flugbjörgunarsveitin 60 ára Opið hús verður hjá Flugbjörgunarsveit- inni á menningarnótt. MYND/FLUGBJÖRGUNARSVEITIN ● GALDRAFERÐ FRÁ SKÓLAVÖRÐUHOLTI Menningarfylgd Birnu Þórðardóttur verður farin frá Hallgrímskrikju klukkan 13 á laugardag. Birna leiðir gesti um stræti og torg Þingholta, drepur á dyr öðl- inga og eðalmeyja. Göngufólkið mun sjá Alla Nalla skottast um, styttur fara á stjá, Freyju kasta koss- um, Loka leynast, Þór þumbast og Nönnu hvells- pringa af þrotlausum harmi. Magnús R. Einarsson gæðir sögur og ljóð Birnu Þórðardóttur lífi með tónum og túlkað verður á pólsku, ensku og ítölsku. ● LÚÐRAÞYTUR SVANSINS Lúðrasveitin Svanur marserar upp Banka- strætið á menningarnótt og rifjar þannig upp hefð sem lúðrasveitir í kringum 1920 höfðu, en þá var til siðs að sveitirnar færu upp Bankastrætið en ekki niður eins og algengast er í dag. Gangan hefst klukkan 14.30 á Ingólfstorgi. Þaðan verður haldið upp Bankastræti og endað á Smiðjustíg en big-band lúðrasveitarinnar Svans mun halda tónleika í portinu fyrir framan Faktory. „Í göngunni spilum við létt og skemmtileg lög í karnivalstíl. Á tónleikum big-bandsins fáum við hins vegar til liðs við okkur ýmsa söngvara á borð við Áslaugu Helga, Edgar Smára og Helga Rafn og spilum fjölbreytta tónlist, allt frá lögum með Robbie Williams upp í Frank Sinatra slagara,“ segir Matthías V. Baldursson, stjórnandi Svansins. ● MYND AF ÞÉR Í GÖMLUM ANDA Ljósmyndasafn Reykjavíkur býður að vanda upp á skemmtilegar myndatökur á menningarnótt. Boðið er upp á myndatöku í gömlum anda þar sem fólk getur klætt sig upp í búninga sem fengnir eru að láni í Borgarleikhúsinu. Það getur síðan stillt sér upp fyrir framan málaðan bakgrunn við húsgögn frá versl- uninni Fríðu frænku og látið smella af sér polaroid-mynd til eignar. Myndatakan fer fram í sýningarsal Ljósmyndasafnsins, Grófarsal, að Tryggvagötu 15 á sjöttu hæð. Fólk þarf aðeins að borga efniskostnaðinn við myndina sem er 200 krónur. IKI er spunasönghljómsveit 9 söngkvenna frá 4 Norðurlöndum, Íslandi, Finnlandi, Noregi og Danmörku. IKI spinnur ALLA tónlist á staðnum, skapar tónlist í núinu. Söngkonurnar fara ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun en leiðir þeirra lágu saman í Rytmisk Musik Konservatorium í Kaupmannahöfn. IKI notar öll fjögur tungumálin í tónlistarsköpun sinni og leika söngkonurnar sér með laglínur, hljóma, hljóð og takt. Tónleikar með IKI eru því einstök upplifun! www.ikivocal.com Norrænahúsinu kl. 20 aðgangur ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.