Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 19.08.2010, Blaðsíða 58
30 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 19. ágúst 2010 ➜ Tónleikar 20.00 Trúbatrixur verða með tón- leika á Paddy’s í Keflavík í kvöld. Tón- leikarnir hefast kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Kynningar- og styrktartón- leikarnir „Rokkað gegn fátækt“ verða haldnir á Sódómu Reykjavík í kvöld. Húsið opnar kl. 20.00 og tónleikarnir hefjast kl. 21.00 Aðgangseyrir er 1500 krónur. 21.30 Djasskvartettinn Óli Stolz og co leikur á Heitum fimmtudegi nr. 8 í Ketilshúsi, á Akureyri. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. 22.00 Hljómsveitirnar Múgsefjun, Nóra og Nista slá upp tónleikaveislu á Faktorý í kvöld. Efri hæðin opnar kl. 21 og byrja tónleikarnir stundvíslega kl. 22. Aðgangseyrir er 500 kr. ➜ Íþróttir 16.00 Borgarskákmót fer fram í dag og hefst kl. 16.00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Þátttaka er ókeypis og öllum opin, en skráning fer fram á www.skak.is ➜ Leikrit 20.30 Leikverkið In the Beginning verður frumsýnt í kvöld kl. 20.30. Sýningin fer fram í Hafnarhúsinu. Aðgangur er ókeypis, en sætaframboð er takmarkað. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Spunahljómsveitin IKI, sem skipuð er níu söngrödd- um, er nú stödd hér á landi. Hljómsveit þessi sam- anstendur af níu stúlkum frá fjórum Norðurlandanna sem flytja tónlist sína án allra hljóðfæra. „Við hittumst allar síðastliðið haust þar sem við vorum saman í námi við Rytmisk Musik Kons- ervatorium. Haustið 2009 ákváð- um við nokkrir nemendur að taka okkur saman og stofna söngsam- spil. Eftir nokkrar æfingar voru það þessar níu sem voru á sama plani og hljómsveitin IKI varð til,“ segir Anna María Björnsdótt- ir, meðlimur spunahljómsveitar- innar IKI. Hljómsveitin er skipuð þeim Önnu Mose, Johönnu Sulkunen, Mari Tveito, Sofie Holm, Miu Marlen Berg, Önnu Maríu Björns- dóttur, Guro Tveitnes, Kamillu Kovacs og Mette Skou en þær eru frá Íslandi, Finnlandi, Nor- egi og Danmörku en nafnið IKI er fengið úr japönsku og merk- ir líf. „Það sem þessi hljómsveit gengur út á er að við spinnum upp alla tónlist á staðnum. Það hefur mikið að segja að hafa þennan ólíka bakgrunn og á staðnum verða textarnir til á öllum þess- um tungumálum,“ segir Anna María. Stúlkurnar sækja inn- blástur sinn í nútíma djass, klass- íska tónlist, popp, þjóðlagatónlist og fleira. Þær vinna með falleg- ar laglínur, hljóð, hljóma, tungu- mál og takt. Þegar IKI syngur má vel heyra djúpar skandinavískar rætur söngkvennana og kven- leika þeirra. Hljómsveitin held- ur fimm tónleika næstu vikuna. Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld á Jazzhátíð Reykjavíkur í Laugar- dalslaug og á laugardaginn koma þær síðan fram í Norræna húsinu á menningarnótt. linda@frettabladid.is Spinna tónlist Undanfarið ár hefur staðið yfir undir- búningur fyrir komu stúlknakórs frá Berlín sem ber nafnið „Mädchenchor der Sing-Akademie zu Berlin“ í heimsókn til Stúlknakórs Reykjavíkur. Stúlkurnar í báðum kórum eru á aldrinum 11 til 19 ára og munu þær syngja saman á tónleikum í Grensáskirkju á laugardag, þann 21. ágúst, klukkan 15.00. Auk þessara kóra koma fram aðrir kórar sönghússins Domus vox, kvennakórinn Vox feminae og Cantabile. Stjórnendur kór- anna eru Friederike Stahmer og Margrét J. Pálmadóttir. Píanistar eru Svenja And- er shon og Ásta Haraldsdóttir og trompet- leikari er Clemens Stahmer. Aðgangur er ókeypis á tónleikana og mun Stúlknakór Reykjavíkur þiggja boð um heimsókn til söngsystra sinna í Berlín á næsta ári. Heimsókn frá Þýskalandi HEIMSÓKN STÚLKNAKÓRS Stúlknakór Reykjavíkur fær heimsókn frá Stúlknakór Berlínar nú um helgina og munu kórarnir syngja saman í Grensáskirkju. > Ekki missa af Ólöf Rún Benediktsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu í kvöld á Kaffi Rót. Þessi 19 ára stúlka er ekki þekkt í mynd- listinni en hún er útskrifuð af myndlistarbraut Fjölbrauta- skólans í Garðabæ og tók þátt í hópsýningu útskriftarárgangs- ins 2009. Hún hyggst fara í LHÍ í haust og halda áfram að læra myndlist þar. Sýning Ólafar verður opnuð klukkan 19.00. SPUNAHLJÓMSVEITIN IKI Hljómsveitin, með níu söngraddir, er nú komin hingað til lands til að halda fimm tónleika á fimm dögum. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Vitavörðurinn - kilja Camilla Läckberg Barnið í ferðatöskunni - kilja Lene Kaaberbol/Agnete Frills Meistarar og lærisveinar kilja - Þórbergur Þórðarson Iceland on fire Vilhelm Gunnarsson Borða, biðja, elska - kilja Elizabeth Gilbert Eyjafjallajökull Ari Trausti og Ragnar Th. 25 gönguleiðir á höfuðborgar- svæðinu - Reynir Ingibjartsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 11.08.10 - 17.08.10 Makalaus - kilja Tobba Marinós Íslenska plöntuhandbókin Hörður Kristinsson Svipurinn Robert Goddard www.forlagid.is ALLIR ÚT AÐ TÍNA! Handbók fyrir alla matgæðinga og annað áhugafólk um sveppi og sveppatínslu. Fjöldi frábærra uppskrifta! 2. PRENTUN Stykkishólmskirkja kl. 20.00 Í kvöld klukkan 20.00 verður sung- ið guði til dýrðar í Stykkishólm- skirkju. Þar mun tríó skipað þeim Gerði Bolladóttur sópran, Sophie Schoonjans hörpuleikara og Victoriu Tarevsk aia sellóleikara flytja trúar- söngva bandarískra blökkumanna. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.