Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 8
8 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
1 Hvað hefur landsmönnum
fækkað mikið frá því í júlí í
fyrra?
2 Hvað vill forsætisráðherra
Ástralíu gera þegar Elísabet
Englandsdrottning verður öll?
3 Hvað kostar mikið í Strætó í
Reykjavík á menningarnótt?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50
KIRKJAN Allir starfsmenn kirkj-
unnar verða beðnir um að sam-
þykkja að heimila aðgang að
sakaskrá sinni, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Biskupsstofu. Ráðist verður í
sérstakt skimunarátak gegn kyn-
ferðisofbeldi.
Tilkynningin var send út í gær.
Einnig var greint frá því að Guð-
rún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs
Skúlasonar biskups, hafi átt fund
með kirkjuráði á þriðjudag þar
sem hún sagði sögu sína. Fund-
urinn var haldinn á þriðjudag
en upphaflega átti hann að vera
eftir fimm vikur. Guðrún Ebba
hafði óskað eftir fundinum fyrir
rúmu ári í erindi sem hún sendi
Biskupsstofu. Eftir að hún sendi
erindið fundaði hún með biskupi
Íslands, Karli Sigurbjörnssyni.
Hún hafði sent erindið þar sem
hún vildi brýna kirkjuna til að
taka skýra afstöðu gegn kynferð-
islegu ofbeldi og lýsa það synd.
Á fundinum með kirkjuráði var
hlýtt á sögu Guðrúnar Ebbu um
samskipti hennar við föður sinn,
og gaf hún ráðinu kost á að spyrja
spurninga. Það var ekki gert.
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að í kjölfarið á erindi Guð-
rúnar Ebbu hafi biskup og kirkju-
ráð meðal annars hafið endur-
skoðun á reglum um fagráð um
meðferð kynferðisbrota innan
kirkjunnar. Þá hafi verið samd-
ar siðareglur sem taki til presta,
djákna, alls starfsfólks og sjálf-
boðaliða kirkjunnar. Þær siða-
reglur voru samþykktar á kirkju-
þingi í fyrra.
Kirkjuráð segir einnig í til-
kynningunni að þjóðkirkjan hafi
tekið skýra afstöðu gegn ofbeldi
gegn konum og börnum. Kirkj-
an standi með einstaklingum og
samtökum sem vinni með þolend-
um ofbeldis og þeim sem stuðli
að vitundarvakningu meðal þjóð-
arinnar um þessi alvarlegu mál.
Kirkjan hefur einnig greint frá
því að fagráð um meðferð kyn-
ferðisbrota hafi haft afskipti af
fimm málum á þeim ellefu árum
sem það hefur starfað. Starfs-
manni í æskulýðsstarfi var sagt
upp störfum í fyrra eftir ósæmi-
lega hegðun gagnvart ungmenni.
Þá er eitt málanna mál Gunnars
Björnssonar, sem var sýknaður
af ákæru um kynferðisbrot og
brot gegn barnaverndarlögum á
síðasta ári. Hin þrjú málin bárust
frá fullorðnu fólki. Tvö þeirra eru
yfir tuttugu ára gömul og varða
óviðeigandi samskipti æsku-
lýðsleiðtoga við unglinga. Síð-
asta málið snerist um óvelkomna
snertingu prests við kollega sinn.
thorunn@frettabladid.is
Sakaskrár
verði skoðaðar
Starfsmenn kirkjunnar munu leyfa aðgang að saka-
skrám. Kirkjan tekur skýra afstöðu gegn ofbeldi
gegn konum og börnum. Þetta var tilkynnt í kjölfar
fundar Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur með kirkjuráði.
BISKUPSSTOFA Kirkjuráð hlýddi á Guðrúnu Ebbu á fundi á þriðjudag.
EYJABERG
S
tS
t_
10
04
26
-0
04
BRUNI Eldur kom upp í húsinu á Laugavegi 4
á áttunda tímanum í gærmorgun. Allt tiltækt
slökkvilið var sent á staðinn en greiðlega gekk
að ráða niðurlögum eldsins. Talið er að um
íkveikju hafi verið að ræða. Tjón var óveru-
legt.
„Verkstjórinn mætti til vinnu þarna um
morguninn og varð var við reyk. Hann lokaði
þá á eftir sér og kallaði á slökkviliðið. Þegar
við mætum á staðinn var þarna töluverður
reykur og greinilegur eldur reyndist vera í
panelplötu sem átti að fara á vegg þarna. Það
gekk síðan greiðlega að slökkva eldinn,“ segir
Árni Ómar Árnason, varðstjóri hjá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins. Hann segir líklegt
að um íkveikju hafi verið að ræða og bætir við
að mun verr hefði getað farið ef eldurinn hefði
komið upp á öðrum tíma sólarhringsins.
Slökkvistarf tók um 20 mínútur eftir að
slökkviliðið mætti á staðinn og að því loknu
var húsið reykræst. Unnið er að því að gera
upp húsið á Laugavegi 4 en það var meðal húsa
á Laugaveginum sem Reykjavíkurborg festi
kaup á í byrjun árs 2008 með það að markmiði
að gera upp til að viðhalda 19. aldar götumynd
miðbæjarins. Gátu framkvæmdir hafist aftur
þegar eldurinn hafði verið slökktur. - mþl
Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp á framkvæmdasvæði í miðborginni:
Talið að kveikt hafi verið í Laugavegi 4
LAUGAVEGUR 4 Unnið er að því að gera húsið upp um
þessar mundir en það var meðal húsa sem Reykjavík-
urborg festi kaup á í janúar 2008.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Tveir menn voru
handteknir eftir bílveltu við
vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk
í gær.
Grunur leikur á því að öku-
maður bílsins hafi ekið undir
áhrifum áfengis. Taka átti
skýrslu af mönnunum þegar
runnið væri af þeim í gær-
kvöldi.
Olía lak úr bílnum sem valt og
var óttast að hún gæti lekið út í
vatnið. Ekki var um mikið magn
að ræða. - þeb
Ölvunarakstur í Heiðmörk:
Handteknir
eftir bílveltu
Hluthafafundur Icelandair
Stjórn Icelandair Group hf. hefur
samþykkt að boða til hluthafafundar
15. september næstkomandi klukkan
16.00. Á dagskrá fundarins verður kjör
nýrrar aðal- og varastjórnar félagsins.
VIÐSKIPTI
VEISTU SVARIÐ?