Fréttablaðið - 19.08.2010, Qupperneq 16
16 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Hjörleifur Kvaran, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Hjörleifur Kvaran segist halda laun-
um sínum í níu mánuði eftir að stjórn
Orkuveitunnar ákvað að leysa hann
frá störfum sem forstjóra. Hann gef-
ur í skyn ágreining við stjórnarfor-
mann um uppsagnir og gjaldskrár-
hækkanir í viðtali við Fréttablaðið.
Segir engan trúnaðarbrest hafa orðið
því trúnaður hafi aldrei myndast.
Hjörleifur Kvaran, sem vikið var úr starfi for-
stjóra Orkuveitu Reykjavíkur í fyrrakvöld,
fær greidd laun frá Orkuveitunni í níu mán-
uði, samkvæmt því sem fram kemur í sam-
tali hans við Fréttablaðið. Það eru þau kjör
sem honum ber samkvæmt ráðningarsamn-
ingi sem var gerður þegar hann var ráðinn til
forstjórastarfa síðsumars 2008.
„Það var ekki samið um nein starfsloka-
kjör,“ segir Hjörleifur spurður hverra kjara
hann njóti eftir að stjórn Orkuveitunnar ákvað
að leysa hann frá störfum. „Ég fæ bara þau
kjör sem ráðningarsamningur minn gerir ráð
fyrir. Ég er með þriggja mánaða uppsagnar-
frest og sex mánuði á launum þar á eftir. Þetta
eru lakari kjör en forveri minn hafði og ég hef
verið á mun lægri launum en hann hafði.“
Með 1,8 milljónir á mánuði, samkvæmt
Frjálsri verslun
Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar var
Hjörleifur með rúmlega 1,8 milljónir króna
í laun á mánuði frá Orkuveitu Reykavíkur á
síðasta ári. Hjörleifur var ráðinn forstjóri í
stað Guðmundar Þóroddssonar, korteri fyrir
hrun og segir að það hafi verið sitt fyrsta
verk í starfi að lækka laun forstjóra. Þau séu
nú 35-40% lægri en var áður en hann tók við
starfi.
„Auðvitað er maður aldrei sáttur við að
svona þurfi að fara,“ segir Hjörleifur. „En
mér var tilkynnt í [fyrradag] að stjórnin hefði
tekið ákvörðun um að ég þyrfti að víkja sem
forstjóri. Það var óskað eftir að það gerðist
þegar í stað.“ Hann segir að það hafi komið
sér á óvart þegar Haraldur Flosi Tryggva-
son, starfandi stjórnarformaður Orkuveit-
unnar, sagði honum að öll stjórn Orkuveit-
unnar stæði á bak við þá ákvörðun að skipta
um forstjóra.
Fékk ekki réttar upplýsingar um afstöðu
stjórnar
„Síðar kom í ljós að það var ekki rétt,“ segir
Hjörleifur og bendir á að samkvæmt fundar-
gerð stjórnar hafi aðeins helmingur stjórnar-
innar tekið þátt í afgreiðslu málsins á stjórn-
arfundi. „En þessi ákvörðun var tilkynnt mér
og ekki rædd frekar.“
Hjörleifur segir að miklar hagræðingar-
aðgerðir hafi staðið yfir innan fyrirtækisins
undanfarið. Starfsfólkið hafi í sameiningu náð
góðum árangri við að lækka launakostnað og
annan rekstrarkostnað. „Það er búið að hag-
ræða um fleiri hundruð milljónir í rekstri og
launum og fyrir liggja tillögur frá mér um
fleiri hundruð milljóna sparnað, en þó þannig
að það komi ekki illa við meginþorra starfs-
manna. Á síðasta eina og hálfa árinu hefur
starfsmönnum Orkuveitunnar fækkað um
þrjátíu og átta án uppsagna, fyrst og fremst
með því að ráða ekki í störf sem losnuðu og
með því að endurnýja ekki tímabundnar ráðn-
ingar.“ Starfsmenn Orkuveitunnar eru nú um
650 talsins.
Eftir stjórnarskiptin í vor fól ný stjórn,
undir formennsku Haraldar Flosa Tryggva-
sonar, Hjörleifi að gera úttekt á fyrirtækinu.
„Ég fékk til þess tiltölulega skamman tíma,
en kláraði innan frests og skilaði til starf-
andi stjórnarformanns, sem hefur haft hana
til meðferðar síðan og meðal annars sent til
rýnihóps.“
Vann hófsamar tillögur
Hjörleifur segir að sér hafi heyrst að starf-
andi stjórnarformaður væri ekki fyllilega
ánægður með hvernig staðið var að úttekt-
inni og þær tillögur sem þar voru gerðar.
Það kunni að vera skýringin á því að leiðir
skildi. „Ég hafði unnið tillögur um hvernig
bæta megi stöðu fyrirtækisins til næstu ára,
sem við töldum trúverðugar og settar fram af
hóf semd gagnvart neytendum og starfsmönn-
um,“ segir Hjörleifur.
Spurður hvort skilja beri þessi orð hans
þannig að hann hafi ekki viljað ganga eins
langt í því að hækka gjaldskrá og segja upp
starfsfólki og Haraldur Flosi, segir Hjörleifur:
„Við kunnum að eiga eftir að sjá tillögur sem
eru öðru vísi en við lögðum til.“
Hann segist ekki vita hvaða aðgerðir séu í
undirbúningi en starfandi stjórnarformaður
hafi ekki verið sáttur við framlag forstjórans
til þeirra.
Hjörleifur segist leggja áherslu á að nú
séu erfiðir tímar hjá Orkuveitunni og starfs-
fólki fyrirtækisins. „Ég hefði talið nauðsyn-
legt að menn stæðu saman og ynnu sig saman
í gegnum þessa erfiðleika. En það eru aðrir
sem ráða. Þeir taka ákvarðanirnar og þeir
hljóta að hafa í hendi þær lausnir sem nauð-
synlegar eru.“
Enginn trúnaðarbrestur án trúnaðar
Spurður um það hvernig samstarfið við Har-
ald Flosa hafi gengið, segir Hjörleifur Kvaran:
„Þetta er sjöundi stjórnarformaðurinn sem
ég vinn með. Það hefur verið gaman og ljúft
að vinna með þeim fyrstu sex en samstarfið
hefur ekki alveg verið að gera sig með þeim
sjöunda. Það hefur ekki orðið neinn trúnaðar-
brestur. Það þarf að skapast trúnaður til þess
að hann geti brostið.“
Segir að trúnaður
hafi aldrei myndast
HJÖRLEIFUR KVARAN Segist hafa gert úttekt og undirbúið tillögur um hófsaman sparnað gagnvart neytend-
um og starfsmönnum Orkuveitunnar. Starfandi stjórnarformanni hafi ekki fallið þær tillögur í geð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Pétur Gunnarsson
peturg@frettabladid.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
1
0-
12
30
Lán til
góðra verka
* Vextir skv. vaxtatöflu Íslandsbanka 1. júlí 2010. Vextir taka mið af kjörvöxtum óverðtryggðra skuldabréfalána en veittur er fastur 2% vaxtafrádráttur frá þeim.
5,75%