Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 18
18 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
NEYTENDUR Nokkrir viðskiptavin-
ir símafyrirtækisins Alterna hafa
sent kvartanir til Neytendastofu
vegna loforða um ókeypis síma-
þjónustu í mánuð sem ekki var
staðið við. Talsmaður fyrirtækis-
ins segir sennilegast að um mistök
hjá starfsmanni í símaveri hafi
verið að ræða. Þá hafi reikning-
arnir verið felldir niður og hlutað-
eigendur beðnir afsökunar.
Alterna bauð nýjum viðskipta-
vinum í upphafi sumars upp á til-
boð er hljóðaði upp á 200 fríar
mínútur á mánuði og notaði sím-
hringingar til að kynna tilboðið.
„Við nýttum okkur þjónustu hjá
símasölufyrirtæki sem heitir Kol
ehf. Svo þegar reikningar fóru að
berast höfðu nokkrir samband
við okkur sem sögðu að þeim hafi
verið lofað að fá frían mánuð. Við
höfðum samband við símasölu-
fyrirtækið og þá kom í ljós að
sölumaður þar hafði notað sölu-
ræðu þar sem sagði að þetta væri
í raun og veru frír mánuður þar
sem fæstir notuðu 200 mínútur
á mánuði,“ segir Þorsteinn Bald-
ur Friðriksson, sölu- og markaðs-
stjóri Alterna. Hann segir reikn-
inga þeirra einstaklinga sem
hefðu kvartað hafa verið fellda
niður og hlutaðeigendur beðnir
afsökunar og enn fremur að þetta
væru ekki aðferðir sem fyrirtæk-
ið notaði.
Helgi Már Haraldsson, aug-
lýsingastjóri Kol ehf., þekkti
ekki til málsins en sagði að yfir-
leitt þegar svona mál kæmu upp
þá hefðu viðskiptavinirnir sem
hefðu kvartað einfaldlega ekki
verið að hlusta.
- mþl
Sumir viðskiptavina Alterna telja sig hafa verið narraða í viðskipti:
Óánægja með tilboðssímtöl
FARSÍMI Verðlagning á símamarkaði hefur löngum verið talin frumskógur. Á vef Póst-
og fjarskiptastofnunar (www.pfs.is)er að finna reiknivél sem á að geta hjálpað fólki
að fóta sig þar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Íslendingum bjóðast upplýsingar hjá Evrópsku neytendaaðstoðinni, um rétt
þeirra sem neytenda í löndum Evrópu. Neytendasamtökin greina frá þessu á
vef sínum. Evrópska neytendaaðstoðin, www.ena.is, býðst til að aðstoða þá
sem hafa verið beittir órétti við hversdagsleg viðskipti. Meðal málaflokka neyt-
endaaðstoðarinnar eru: ferðaþjónusta, svik,
kaup á Netinu og réttarstaða neytenda.
Í einni fréttatilkynningunni er kvörtunar-
ferli lýst þannig að beri kvörtun kaupanda
ekki árangur setji ENA sig í samband við
seljanda. Neytendasamtökin íslensku hafa
eftir sem áður milligöngu fyrir Íslendinga
gagnvart íslenskum seljendum. - kóþ
■ Evrópsk neytendaaðstoð
Blaðamaður fór með bilaða Apple-tölvu í viðgerð á verkstæði Epli.is á Lauga-
vegi. Tölvuna hafði hann keypt fyrir næstum kvartmilljón á sama stað. Hún
var enn í ábyrgð. Á verkstæðinu var honum tilkynnt að hringt yrði í hann eftir
tvær til þrjár vikur og hann látinn vita hvað amaði að
tölvunni. Nema, var bætt við, þú borgir forgangsgjald
upp á 9.475 krónur. Þá verður hringt í þig á morg-
un. Blaðamanni lá ósköpin á og gekk að þessu, en
hugsaði sitt. Eftir að blaðamaður ítrekaði neyð sína var
hringt í hann tveimur dögum seinna. Þá var honum
tilkynnt að tölvan væri svo illa farin að hún yrði að fara
upp í tryggingafélag. Til að það væri hægt þyrfti bil-
unarskýrsla að fylgja frá Epli.is. Sú kostaði um 5.000
krónur. - kóþ
■ Kostar sitt að eiga Apple
Útgjöldin
> Verð á gallabuxum fyrir fullorðinn
Árstímanum þegar skólar
hefja störf aftur fylgja oft
mikil útgjöld hjá barna-
fjölskyldum. Fréttablaðið
tók saman hver útgjöld
fjölskyldu með barn á leið í
fyrsta bekk gætu verið.
Mikil útgjöld verða hjá barnafjöl-
skyldum þegar skólar hefja störf
á haustin. Sýnu mest eru útgjöld-
in þegar barnið hefur nám í fyrsta
bekk en yfirleitt er hægt að nota
einhver gögn, eins og til dæmis
skólatösku, í nokkur ár. Frétta-
blaðið kannaði hver kostnaður-
inn gæti verið hjá fjölskyldu með
eitt barn sem er að fara í fyrsta
bekk.
Það mikilvægasta sem kaupa
þarf áður en barnið getur hafið
skólagöngu er skólataskan. Gæði
og verð á skólatöskum eru mjög
mismunandi.
Hægt er að finna skólatöskur
sem kosta um 3.500 krónur en það
er alls ekki óalgengt að sjá töskur
sem kosta fimm sinnum það. For-
eldrar þurfa að gera upp við sig
hve miklu þeir vilja verja í skóla-
tösku en mikilvægt er að velja
töskuna þannig að hún henti stærð
og baki barnsins.
Flestir skólar útbúa lista yfir
skriffæri og annað dót sem nauð-
synlegt er fyrir nemendur að hafa
í skólanum.
Sé miðað við lista sem birtur er
á heimasíðu Grandaskóla er hægt
að fullnægja kröfum um skrif-
færi, pennaveski og annað nauð-
synlegt fyrir tæpar þrjú þúsund
krónur með því að versla ódýrt
en ekki þarf að láta sér bregða ef
kostnaðurinn nálgast sex þúsund
krónur.
Annar stór útgjaldaliður fyrir
margar fjölskyldur á þessum tíma
ársins eru hlífðarföt fyrir börnin.
Séu úlpa, hlífðarbuxur og stígvél
keypt er hægt að komast af með
rúmlega 12 þúsund krónur. Slík-
ur fatnaður er þó mjög ólíkur að
gæðum og það er allt eins hægt
að verja mun hærri fjárhæðum í
vandaðri fatnað.
Heildarútgjöld við upphaf skóla-
ársins; skólataska, pennaveski,
skriffæri, gögn og hlífðarföt, geta
því verið ansi mismunandi eftir því
hvernig innkaupum er háttað. Sé
ódýr leið farin þarf heildarpakk-
inn ekki að kosta mikið meira en 20
þúsund krónur en enginn ætti þó að
láta sér koma það á óvart ef útgjöld-
in verða nær 50 þúsundum.
Dýrustu útgjaldaliðirnir eru
skólataskan og hlífðarfatnaður og
ráða þeir mestu um hvað heildar-
pakkinn kostar. magnusl@frettabladid.is
Hægt að sleppa með 19 þús-
und krónur í skólainnkaup
2002 2004 2006 2008 2010
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
6.240 kr.
6.574 kr.
9.553 kr.
7.035 kr.
15.076 kr.
■ Þorkell Gunnar Sigurbjörns-
son, íþróttafréttamaður á RÚV,
kaupir bara svarta sokka.
„Ef ég á að nefna
eitthvað, þá get
ég alveg mælt
með því, til að slá
vel á vöðvabólgu,
að nota kælipoka,
en ekki hitapoka.
Gerir miklu meira
gagn,“ segir Þor-
kell Gunnar.
„Annars er líka gott húsráð við hvítum
sokkum sem verða fljótt skítugir að
henda öllum hvítu sokkunum og
kaupa bara svarta sokka til að ganga
í. Það svínvirkar.“
GOTT HÚSRÁÐ
HENDA HVÍTU SOKKUNUM
VERSLAÐ FYRIR SKÓLANN Handagangur er í öskjunni í mörgum þeim verslunum sem selja skólabækur og ritföng. Glatt var yfir
þeim Hildi Völu og Ebbu Katrínu þar sem þær voru að kaupa bækur sem þær þurfa í Verzlunarskólanum í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Bestu kaupin er forláta sjö manna tjald sem ég
keypti fyrir fimm árum í 66°Norður á fimmtán
þúsund krónur. Ég sá það auglýst á 96 þúsund
krónur um daginn,“ segir Vala Garðarsdóttir
fornleifafræðingur. Tjaldið er með miðrými og
herbergjum til beggja enda. Hún segir tjaldið hafa
verið notað mikið hvert sumar. Þar af hafi hún
farið í sjö tjaldferðalög í sumar. „Ég ferðast mikið.“
Verstu kaup Völu er gamaldags
ítölsk espressó-kaffivél úr krómi sem
hún keypti fyrir fimmtíu þúsund
krónur árið 2002. „Vélin var nýkomin
á markaðinn og leit vel út þótt hún
hefði mátt kosta minna. En þetta var
óðagot hjá mér. Vélin hefur aldrei virkað
almennilega og hellir upp á vont kaffi.
En ég fékk aldrei að skila henni. Þeir í versluninni
sögðu að hún ætti að vera svona,“ segir Vala.
Kaffivélin hefur ekki verið notuð um árabil. Hún
stendur samt enn uppi í eldhúsinu hjá fornleifa-
fræðingnum. „Vélin er svo falleg, hún fær að njóta
sín þar þótt ég nota hana aldrei,“ segir Vala en
í stað þess að súpa kaffi úr dýrri og fallegri vél
hefur hún hellt upp á í kaffivél sem hún
keypti fyrir níu árum fyrir 4.990 krónur
í Fríhöfninni. „Hún virkar fullkomlega.“
Vala segir kaffivélakaupin hafa
kennt sér að hlaupa aldrei til og
kaupa hluti í óðagoti. Þess í stað
hugsi hún sig vel um áður en
hún tekur upp veskið.
NEYTANDINN: Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur
Hefur dýra kaffivél upp á punt
Nýtt leikár kynnt á morgun
1
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Skólatöskurnar fást í verslunum og á þjónustustöðvum N1
FLOTTAR
SKÓLATÖSKUR
x4
Skólatöskur fyrir
stelpur og stráka.
Íþróttataska, nestisbox
og brúsi fylgja.
3.990 kr.
auk 1000 punkta
Safnkortshafar borga aðeins
Fullt verð: 7.990 kr.
Punktar
gilda fjórfalt