Fréttablaðið - 19.08.2010, Side 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
KONUKVÖLD Smáralindar og Á allra vörum verður haldið í Smára-
lind í kvöld. Dagskráin hefst klukkan 19.00 og meðal þess
sem verður í boði er glæsileg tískusýning á
göngugötunni.
„Í dag er ég borgaralega klæddur í
skjalasafns-tveedjakkanum mínum.
Hann keypti ég þegar ég var í sagn-
fræðinni, þótti ekki annað hægt en
að vera í viðeigandi klæðnaði en
jakkinn er með leðurbótum á oln-
bogunum,“ segir Jón Torfi Arason,
hljóðfæraleikari í Varjárbandalag-
inu, þegar Fréttablaðið vill fá að
vita í hverju hann sé þennan dag-
inn.
Á höfðinu ber hann forláta húfu
sem hann gaf sjálfum sér í útskrift-
argjöf. „Húfuna gaf ég mér þegar
ég fékk pungaprófið sem ég er gríð-
arlega stoltur af. Ég set hana upp
þegar mikið liggur við, til dæmis
þegar ég stíg á svið með Varsjár-
bandalaginu, hún er eins og hálf-
gert öryggisteppi.“
Jón Torfi mun einmitt þjófstarta
menningarnótt á tónleikum með
Varjárbandalaginu annað kvöld
á Rosenberg. Þar segist hann að
sjálfsögðu verða með húfuna góðu á
hausnum og hafi hugsað sér hvítan
jakka og gylltan trefil við. Hann
segir jafnframt klæðaburð mikið
atriði allra hljómsveitarmeðlima.
„Hljómsveitin er alltaf vel klædd
og yfirleitt í búningum. Við spilum
austur-evrópska tónlist svo þarna
er að finna gyðing með lopagriffl-
ur og austantjalds hershöfðingja.
Harmonikkuleikarinn okkar, Sigga
Ásta eða Tatjana Laungova eins og
hún er kölluð, er alltaf gríðarlega
vel til höfð og í raun tilhlökkunar-
efni fyrir áhorfendur að fá að sjá í
hverju hún verður annað kvöld.“
Þrátt fyrir búningastand hljóm-
sveitarinnar segist Jón Torfi ekki
hugsa mikið um föt yfirleitt, reyni
bara að vera snyrtilegur til fara.
Það kemur því skemmtilega á óvart
hverju hann lumaði eitt sinn á í fata-
skápnum sínum.
„Ég átti einu sinni bláar leður-
buxur með rauðri og hvítri sport-
rönd. Þær eru týndar og ég sé ekk-
ert eftir þeim.“ heida@frettabladid.is
Sér ekkert eftir leðrinu
Jón Torfi Arason leikur á trompet og gítar í hljómsveitinni Varsjárbandalaginu. Þess utan gruflar hann
innan um rykfallnar skruddur á Þjóðskjalasafninu og reynir að vera snyrtilegur til fara.
Jón Torfi Arason lumaði eitt sinn á leðurflík í fataskápnum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONVERÐ-
HRUN
60–80% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM FATNAÐI OG SKÓM
Kjólar, peysur, buxur, bolir, yfi rhafnir og jakkar
í úrvali. St. 36-52
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
www.gabor.is
Sérverslun með