Fréttablaðið - 19.08.2010, Side 44
19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR
Íbúar Haðarstígs í Þingholt-
unum eru samhentir mjög og
bjóða gestum og gangandi
upp á bakkelsi og bíósýn-
ingu.
Haðarstígur ómar kallast
skemmtilegur viðburður á krútt-
legu götunni Haðarstíg í Þingholt-
unum. „Við sem stöndum að þess-
um viðburði erum íbúar í göt-
unni og nágrannagötum á borð
við Nönnugötu og Njarðargötu.
Í raun er þetta aðallega fólk sem
hittist í kringum lítinn garð neðst
á Haðarstíg,“ segir Helga Óskars-
dóttir, íbúi við Haðarstíg. Hópur-
inn stofnaði fyrir nokkru samtök
sem kallast Hollvinir litlagarðs
og nágrennis og hafa þau staðið
í ýmsu.
„Við höfum tekið garðinn í
gegn, fengið götuna gerða að vist-
götu og staðið fyrir húllumhæi á
17 júní,“ lýsir Helga en á þjóð-
hátíðardaginn hafa íbúar dregið
fram öll grillin í götunni og sleg-
ið upp veislu fyrir vini og vanda-
menn. „Hér er mikil nágranna-
stemning og hrein forréttindi að
fá að búa hér.“
Á menningarnótt ætla íbúar
Haðarstígs að bjóða gestum og
gangandi upp á kaffi og með því.
„Við munum baka snúða, skúffu-
kökur og annað góðgæti sem
verður allt í boði götunnar,“ segir
Helga. Þá verður vísir að markaði
í götunni þar sem nokkrir íbúar
munu setja út borð og selja allt
frá gömlum plötum og sultu til
handverks. „Einhverjir ætla að fá
kórana sína til að koma og syngja
fyrir fólkið í götunni,“ upplýs-
ir Helga glaðlega en punkturinn
yfir i-ið verður kvikmyndasýning
í litla garðinum. „Þar verður sýnd
kvikmyndin Hjónakorn eftir Her-
bert Sveinbjörnsson sem hann tók
upp á menningarnótt fyrir tveim-
ur árum,“ segir Helga. Í mynd-
inni gefur að líta tónleikana þar
sem fram komu hljómsveitir á
borð við Hjaltalín og fleiri.
„Við gerum því ráð fyrir að
fólk gangi með bakkelsið í garð-
inn, tylli sér á kolla og teppi og
myndi þannig skemmtilega kaffi-
húsastemningu.“ - sg
Sannkölluð forréttindi
að fá að búa á Haðarstíg
Helga Óskarsdóttir ásamt nokkrum nágrönnum sínum af yngri kynslóðinni sem láta sig ekki vanta á hátíðahöldin á menningar-
nótt. FRÉTTABLAIÐ/STEFÁN
Opið hús verður hjá Frímúrara-
reglunni frá klukkan 14 til 16 á
menningarnótt. Reglan hefur
löngum vakið forvitni fólks enda
mega reglubræður aldrei ræða
það sem fram fer á fundum. Þor-
steinn Eggertsson skrifstofustjóri
segir Frímúrararegluna þó ekkert
leynifélag eins og margir virðist
halda. „Það er mikill misskiln-
ingur, því fólk getur fengið hér
félagatal og farið upp á Þjóðar-
bókhlöðu og skoðað grundvallar-
skipun reglunnar,“ upplýsir hann
og tekur fram að aðeins fundar-
siðir og það sem gerist á fundum
sé ekki rætt.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Frímúrarar opna húsnæði sitt
á menningarnótt en fyrir fimm
árum komu 1.400 manns á tveim-
ur tímum.
Frímúrararegla Íslands er til
húsa að Skúlagötu 55 í 5.300 fer-
metra húsi. Gestir menningarnæt-
ur fá þó aðeins að sjá hluta þess
og Þorsteinn upplýsir að marg-
ir reglubræðurnir hafi ekki einu
sinni komist yfir að skoða allt
húsið.
„Við munum sýna hátíðar- og
fundarsal, skrifstofu æðstaráðs,
sem er til ráðgjafar stórmeistar-
anum, og hans einkaskrifstofu. Þá
verður einnig til sýnis einn helsti
fundarsalurinn sem við köllum
St. Jóhannesarsal auk minjasafns
og bókasafns,“ segir Þorsteinn og
áréttar að allar myndatökur í hús-
inu séu bannaðar. Þá verður sýnd
kvikmynd um sögu reglunnar í
einum matsalnum en Frímúrarar
munu bjóða gestum upp á kaffi og
með því.
Reglubræður verða til staðar í
öllum salarkynnum og getur fólk
innt þá svara um það sem fyrir
augu ber. - sg
Þetta er ekki leynifélag
Frímúrarar opna híbýli sín fyrir almenningi milli klukkan 14 og 16 á laugardag.
Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir
sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti.
Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er
á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið.
Svo vill hún líka fara í þvottavél.
Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför
um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi.
Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is.
Á skítugum
skónum?