Fréttablaðið - 19.08.2010, Side 48
19. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR18 ● fréttablaðið ● menningarnótt
● VINSÆLT HEIMBOÐ LISTAGYÐJUNNAR „Menningarnótt
vekur alltaf mikla tilhlökkun hjá okkur í fjölskyldunni og barnabörnin
yrðu móðguð til áramóta ef ég leyfði þeim ekki að vinna á þessum degi,“
segir hláturmild Elínbjört Jónsdóttir, einn eigenda Gallerís Foldar sem
hefur verið með vinsælustu viðkomustöðum menningarnæturgesta frá
upphafi.
„Hingað hafa mest
komið tíu þúsund manns
á einum degi og alltaf
verið mjög ánægjulegt
og gengið vel fyrir sig.
Sýningarrými okkar er
stórt, sem og portið fyrir
aftan, og nóg pláss fyrir
alla,“ segir Elínbjört og
tekur fram að heimsókn í
Gallerí Fold sé spennandi
á menningarnótt.
„Nú verða þrjár sýning-
ar í gangi; Hjalti Parelius Finnsson opnar sýningu sína Ísland í dag með
ádeiluverkum sem koma verulega á óvart, eldgosasýningin, sú heitasta í
bænum, verður áfram uppi og Bragi Guðlaugsson dúklagningameistari
og einn stærsti málverkasafnari landsins sýnir verk tengd sjónum úr safni
sínu, sem hann kallar Sjávarsýn,“ segir Elínborg og af nógu öðru er að
taka, bæði fyrir börn og fullorðna.
„Við verðum með ratleik fyrir fjölskylduna, píanóleik og nafnaleik á
listaverk Soffíu Sæmundsdóttur, ásamt listahappdrætti sem dregið verð-
ur út á hálftíma fresti allan daginn, en verðlaun eru afhent á staðnum;
forláta listaverk og listaverkabækur.“
Gallerí Fold er á Rauðarárstíg 14. Þar verður opið frá klukkan 13 til 22.
- þlg
Hvað ungur nemur, gamall
temur, kallast heillandi við-
burður á flotbryggjunni við
Ægisgarð á menningarnótt,
en þá kenna gamalreyndir sjó-
menn ungum Íslendingum að
dorga með heimatilbúnu færi.
„Ég sakna þess að sjá ekki fleiri
börn dorga við höfnina eins og
var hér áður fyrr og fékk þá hug-
mynd að sýna börnum nútímans að
þau þurfi ekki að eiga veiðistöng til
að fara niður á höfn og dorga eftir
fiski, heldur geti þau útbúið færi
sitt heima ef þau eiga spýtu, girni,
öngul og skrúfu til að halda uppi
sökku,“ segir Sædís Halldórsdótt-
ir gullsmiður sem rekur vinnustofu
og gallerí í gömlu verbúðunum við
Reykjavíkurhöfn, þar sem gamlir
sjómenn koma við daglega áður en
þeir halda á grásleppuveiðar.
„Meðal fastagesta á hafnarbakk-
anum eru Guðmundur trillukarl á
Bæjarfellinu og Hörður silunga-
bóndi á Þingvöllum, svo mér datt í
hug að fá svo gamalreynda sjómenn
til að sýna börnum hversu auðvelt og
gaman er að dorga við höfnina. Börn
eru svo mikið í sýndarveruleika í
dag, sem er synd þegar svo miklu
skemmtilegra er að koma hingað og
dorga,“ segir Sædís sem ólst upp í
Laugarnesi og eyddi bernskudögum
við dorg í Sundahöfn.
„Þá var dorg hluti af því að
skemmta sér sem krakki og eng-
inn sem hafði áhyggjur af manni.
Ég held að börn geri sér enda vel
grein fyrir hættunni við hafið,
en óttist fólk um börn sín er leik-
ur einn að fara með þeim niður á
höfn, enda ódýr og skemmtileg fjöl-
skylduskemmtun,“ segir Sædís.
Björgunarvesti verða tiltæk fyrir
dorg lærlinga sem skiptast á veiðar-
færum sem Garðar Berg Guðjóns-
son í Sjóhattinum hefur útbúið.
„Guðmundur og Hörður eru vanir
menn í bransanum og vildu glaðir
kenna börnum til verka, enda mikil
rómantík við hafið, og víst að öll
börn hafa gaman af bátum,“ segir
Sædís sem reiknar síður með að afli
dagsins endi sem kvöldmatur fjöl-
skyldunnar, þótt aldrei sé að vita.
„Í æsku skárum við aflann oft-
ast niður í beitu, en við höfnina má
veiða þorsk, ufsa, markíl og kola.
Sum tileinka sér eflaust að veiða og
sleppa, eða þá taka með sér fiskinn
heim og sjóða ofan í köttinn,“ segir
hún sæl í gömlu verbúðinni.
„Hér er hlýlegt og gaman að vera,
og mikil sál í húsunum. Hafið veitir
mér innblástur þótt ekki sé ég enn
farin að bjóða veiðarfæri og öngla
úr skíragulli.“
Dorgkennslan hefst klukkan 13
og stendur til 14. Börn yngri en 11
ára þurfa að vera í fylgd ábyrgðar-
manns. - þlg
Trillukarlar kenna að dorga
„Ingólfstorg er ekkert flennirými
sem er gott,“ segir Guðmundur
Kristinn Jónsson, betur þekkt-
ur sem Kiddi í Hjálmum. Hann
hefur verið að skipuleggja tón-
leika á Ingólfstorgi í samstarfi
við Bylgjuna og Hljóð X. „Á Ing-
ólfstorgi kemst bara ákveðinn
fjöldi að og ég held að á menn-
ingarnótt sé auðvelt að fylla það
svæði. Þá myndast góð stemn-
ing.“
Tónleikum Bylgjunnar og
Hljóð X er skipt upp í tvo hluta.
Fyrri hlutinn stendur yfir milli
þrjú og fimm en seinni hlutinn
byrjar átta og stendur til ellefu.
„Að deginum til verður Moses
Hightower, atriði úr Buddy Holly
og SJS big band. Um kvöldið
kemur Prófessorinn og Memfis-
mafían, KK, Hjaltalín, Manna-
korn og Ellen Kristjáns og Hjálm-
ar,“ upplýsir Kiddi sem segist
ekki hafa valið tónlistarmennina
vegna þess að þeir væru spilaðir
á Bylgjunni.
Ólafur Páll Gunnarsson tón-
listarstjóri Rásar tvö segir allar
hljómsveitir spilaðar á Rás tvö.
„Allar í heiminum. Nú höfum
við lagt mikinn metnað í að setja
saman skemmtilega og fjöl-
breytta dagskrá,“ segir Ólafur
Páll sem skipuleggur tónaflóð
Rásar 2 sem fer fram á Arnarhóli
frá klukkan hálf níu til ellefu.
„Við byrjum á Pollapönki sem
fólk á öllum aldri hefur gaman
að. Svo kemur vinsælasta hljóm-
sveit landsins, Dikta,“ segir Ól-
afur Páll og heldur áfram: „Þá
er Grafík sem ekki hefur verið
starfandi heldur spilað af og til
á undanförnum árum þegar eitt-
hvað mikið hefur staðið til. Næst
kemur herra Gunnar Þórðarson
sem hefur sett saman nýja, stóra
hljómsveit og ætlar að renna í
gegnum ferilinn.“ - mmf
Tónleikar útvarpsstöðva
Kiddi í Hjálmum segist ekki hafa valið
hljómsveitir á tónleika Bylgjunnar og
Hljóð X vegna þess að þær væru spilaðar
á Bylgjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Ólafur Páll Gunnarsson segir dagskrána
meðal annars fjölskylduvæna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● EYJAFJALLAJÖK-
ULL
Höfundar bókarinnar Eyja-
fjallajökull, Ari Trausti Guð-
mundsson jarðeðlisfræð-
ingur og Ragnar Th. Sig-
urðsson ljósmyndari, fjalla
um gosið og sýna myndir í
Cinema No2 að Geirsgötu
7b klukkan 14. Í kjölfarið
verður sýnd stutt, ljóðræn
mynd um gosið í Eyjafjalla-
jökli, The Eruption eftir
Valdimar Leifsson kvik-
myndagerðarmann.
Hörður silungabóndi og Guðmundur trillukarl kenna bræðrunum Ívari Nökkva
og Emil Sæ Birgissonum að dorga á litlu bryggjunni við smábátalægið neðan við
sægrænu verbúðirnar við Reykjavíkurhöfn, en þar geta áhugasamir krakkar lært að
dorga með heimatilbúnu færi á menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SMIÐJUSTÍG 6 - (Gamli Grand Rokk)
Kaylee Cole (USA)
Lára
Poof Art (USA)
Frítt inn
Efri hæðin opnar kl. 21:00
tónleikar byrja stundvíslega kl. 22:00
Múgsefjun
Nóra
Nista (Canada)
500 kr. inn
Efri hæðin opnar kl. 21:00
tónleikar byrja stundvíslega kl. 22:00
Ice on Fire 2
fram koma:
Endless Dark
Nevolution
Nögl
Bróðir Svartúlfs
Morning After Youth
Reason to Believe
Nista (Canada)
Efri hæðin opnar kl. 21:00 /
tónleikar byrja stundvíslega kl. 21:15
Dj Biggi Maus
spilar á neðri hæð frá miðnætti
Menningarnótt
Fríir tónleikar í porti
fram koma:
14:00 - Fox Train Safari
15:00 - Big band Svansins
16:00 - Moses Hightower
17:00 - á eftir að koma í ljós
18:00 - Pollapönk
19:00 - á eftir að koma í ljós
20:00 - Sing for me Sandra
Dj Benson is Fantastic
spilar á neðri hæð frá miðnætti
Midvikudagur
18.ágúst
Fimmtudagur
19.ágúst
Laugardagur
21.ágúst
Föstudagur
20.ágúst
1000 kr. inn
Opið alla daga frá kl: 15:00