Fréttablaðið - 19.08.2010, Síða 62
34 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Á mánudaginn, 23. ágúst, eru liðin hundrað ár frá útkomu fyrstu
íslensku hljómplötunnar með íslensku sönglagi, en það var Dalvísur
með Pétri A. Jónssyni. Af því tilefni verður efnt til hátíðardagskrár í
Norræna húsinu á afmælisdaginn. Hún hefst með skiptimarkaði plötu-
safnara í anddyri hússins
klukkan 13.15 og stendur
fram á kvöld. Á meðal þess
sem boðið verður upp á yfir
daginn eru tónlistaratriði
með Ragga Bjarna, Garð-
ari Thor Cortes og Grad-
ualekór Langholtskirkju
og erindi flutt af Ólafi Þór
Þorsteinssyni (fyrsta plat-
an og 78 snúninga útgáfan),
Jónatani Garðarssyni (45
snúninga plötur og rokkárin
1950-60) og Gunnari Svav-
arssyni (33 snúninga plötur
og SG). Um kvöldið koma
meðlimir úr Þey svo saman
í fyrsta skipti í langan tíma
og halda tónleika. Aðgangur
er ókeypis og öllum opinn.
Sama dag verður opnuð sýn-
ing um sögu íslensku plötunnar í anddyri Norræna hússins og verður
hún opin til 27. ágúst.
Dagskráin í Norræna húsinu er í nafni Hljómplötuklúbbsins Íslensk
tónlist og er í raun lofsvert einkaframtak nokkurra ástríðufullra plötu-
áhugamanna. Hundrað ára afmæli er stórviðburður og það vekur
furðu að hvorki Félag íslenskra hljómplötuframleiðenda né Ríkisút-
varpið virðist ætla að sinna þessum tímamótum. Þegar Danir fögnuðu
sama áfanga var gefin út vegleg bók og diskur með merkum hljóðrit-
unum fylgdi með. Svo metnaðarfull útgáfa er kannski ekki raunhæf á
okkar litla markaði á krepputímum, en ef við leiðum hugann að öllum
þeim gleðistundum sem íslenskar hljómplötur hafa gefið okkur, þá
á platan sannarlega skilið að við hyllum hana á þessum tímamótum.
Vonandi verður dagskráin í Norræna húsinu til þess að vekja menn og
hvetja þá til dáða.
Íslenskar plötur í 100 ár!
DALVÍSUR Dalvísur með Pétri A. Jónssyni er
fyrsta íslenska hljómplatan.
> Plata vikunnar
Nóra - Er einhver að hlusta?
★★★
Metnaðarfullar lagasmíðar og útsetn-
ingar setja svip á þetta fína byrjenda-
verk. -TJ
> Í SPILARANUM
Orri Harðar - Albúm
Ask the Slave - The Order of Things
Swords of Chaos - The End Is As Near As Your Teeth
Sheryl Crow - 100 Miles From Memphis
ASK THE SLAVEORRI HARÐAR
Styrktartónleikar verða haldn-
ir á skemmtistaðnum Sódómu á
fimmtudaginn kemur. Allur ágóði
tónleikanna rennur til Fjölskyldu-
hjálpar Íslands. Á tónleikunum
koma fram sveitirnar Skálm-
öld, Vicky, Dark Harvest, Mögl
og Gone Postal. Einnig verður
frumsýnd ný hönnunarlína Thors
Hammer en það eru meðal annars
armbönd, belti og ullarpeysur svo
fátt eitt sé nefnt. DJ. Daði mun svo
þeyta skífum eftir tónleikana.
Allir sem koma að tónleikunum
gefa vinnu sína til styrktar málefn-
inu en miðinn kostar 1.500 krónur
og húsið verður opnað stundvís-
lega klukkan 20.
Rokkað gegn fátækt
DARK HARVEST Er ein af þeim hljómsveitum sem ætla að spila á tónleikunum til
styrktar Fjölskylduhjálp Íslands
Ný plata, Teenage dream,
er væntanleg innan skamms
frá Katy Perry, en söngkon-
an sló eftirminnilega í gegn
með laginu I kissed a girl
árið 2008 og hefur síðan þá
sent frá sér hvern smellinn
á fætur öðrum.
Katy Perry er dóttir tveggja
predikara og hlustaði einungis á
gospeltónlist á uppvaxtarárum
sínum. Hún söng í kirkjukór sem
barn og var fyrsta plata hennar
gospel plata sem kom út árið 2001.
Sú plata fékk dræmar móttökur
en Perry lét ekki deigan síga og
hélt áfram að semja og taka upp
eigin tónlist. Hún gaf út netsmell-
inn Ur so gay í nóvember 2007 og
náði lagið nokkrum vinsældum
vestanhafs þrátt fyrir að mörgum
þætti lagatextinn heldur niðrandi í
garð samkynhneigðra. Þrátt fyrir
velgengni Ur so gay náði Perry þó
ekki alþjóðlegum vinsældum fyrr
en ári síðar með smellinum I kiss-
ed a girl.
Fyrsta plata söngkonunnar, One
of the boys, kom út árið 2008 og
lenti í 33. sæti yfir vinsælustu
plötur heims það ár. Næsta smá-
skífa plötunnar, Hot‘n cold, náði
einnig töluverðum vinsældum og
sat lengi ofarlega á vinsældalist-
um víða um heim. Þrátt fyrir vin-
sældirnar er móðir Perry ekki sér-
lega hrifin af tónlist dóttur sinnar
og hefur látið þau orð falla að sér
þyki tónlistin „skammarleg og
smekklaus“.
Fyrsta plata Perry var sögð
vera nokkuð rokkuð en sú næsta,
Teenage dream, ku vera mun létt-
ari og poppaðri en sú fyrri. Platan
kemur út þann 24. ágúst næstkom-
andi og hefur titillag plötunnar
þegar náð nokkrum vinsældum
og bíða aðdáendur söngkonunn-
ar spenntir eftir að heyra plötuna
alla. - sm
Poppuð plata frá Perry
VINSÆL SÖNGKONA Ný plata söngkonunnar Katy Perry, Teenage dream, kemur út
í næstu viku. Síðasta plata Perry náði miklum vinsældum og var á meðal fimmtíu
vinsælustu platna árið 2008. NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Cher hefur tilkynnt
að hún sé nú með nýja plötu á
byrjunarstigi. Hún vinnur með
lagahöfundin-
um Diane Warr-
en sem samdi
einnig eitt af
lögunum, You
Haven´t Seen
The Last Of
Me, í kvik-
myndinni Burl-
esque sem
væntanleg er í vetur.
„Þetta verður í raun ekki líkt
og lagið mitt Believe. Þetta verð-
ur meira – ég veit ekki hvað ég á
að segja. Ég á erfitt með að titla
það eitthvað. En þetta verður
meira alvöru hljóðfæri, eins og
gítar og fleira. Ég var að fá sum
lögin og er að læra þau þannig að
í raun er ég á byrjunarstiginu þar
sem þú fetar þig áfram,“ segir
söngkonan.
Cher gefur
út nýja plötu
SÖNGKONAN CHER
Önnur breiðskífa rokkhljóm-
sveitarinnar Ask the Slave
kemur í verslanir á morgun.
Platan nefnist The Order of
Things og einkennist af ring-
ulreið sem endar með einræðu
Ólafs Darra Ólafssonar, leikara.
Ask the Slave er hugarfóst-
ur tónlistarmannsins Ragn-
ars Ólafssonar. Ragnar ólst
upp í Svíþjóð, þar sem hann
var virkur á tónlistarsenunni
í Gautaborg og spilaði meðal
annars með tónlistarmönn-
um á borð við Jens Lekman og
Olof Dreijer, úr hljómsveitinni
The Knife. Ragnar hefur verið
búsettur á Íslandi undanfarin
ár og komið fram með hljóm-
sveitum á borð við Árstíðir og
Momentum.
Hljómsveitin hefur komið
fram með fjölda íslenskra og
erlendra hljómsveita undan-
farin ár og einnig tryllt tón-
leikagesti á þungarokkshá-
tíðinni Eistnaflugi í gegnum
árin. Ask the Slave hefur áður
gefið út Ep-plötuna Point to
be Made, árið 2005, og breið-
skífuna Kiss Your Chora, árið
2007. Nýja platan er gefin út
af Molestine Records og er
lagið Smell Yourself þegar
komið í spilun á útvarpsstöð-
inni X-inu.
Ask the Slave með nýja plötu
ASK THE SLAVE Hljómsveitin
gefur út aðra breiðskífu sína á
morgun.
söfnunarsíminn er 904 1500
Hjálpum Pakistan
Gunnar Tómasson
sérfræðingur í lyfl ækningum
og gigtsjúkdómum
opnar hinn 1. september n.k. stofu í
Læknasetrinu, Þönglabakka 6, 109 Reykjavík.
Tímapantanir í síma 535 7700.