Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2010, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 19.08.2010, Qupperneq 78
50 19. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 GOTT Á GRILLIÐ Frank Hvam verður meðal gesta Frímanns Gunnarssonar á sér- stöku uppistandskvöldi þann 29. september í stóra sal Háskólabíós. „Þetta verður brjáluð kvöldstund með Frímanni,“ segir Gunnar Hansson, skapari ólíkindatólsins. Meðal annarra sem koma fram má nefna Dagfinn Lyngbo frá Nor- egi og borgarstjórann Jón Gnarr en allir eiga þeir það sameiginlegt að koma fram í nýjum sjónvarps- þætti Frímanns sem frumsýnd- ur verður á Stöð 2 sunnudaginn 19. september. „Matt Berry, full- trúi Bretlands í þáttunum, langaði mikið til að koma en gat það ekki vegna anna.“ Gunnar segir uppsetninguna verða svipaða og hjá spjallþátta- stjórnendunum Jay Leno og David Letterman. Frímann fái til sín góða gesti í sófa sem verður á svið- inu, spjalli lítillega við þá um dag- inn og veginn og svo troði þeir upp með gamanmál. Hljómsveit, skipuð þeim Birgi Ísleifi Gunnarssyni úr Motion Boys og Gísla Galdri, verð- ur á sviðinu og tekur virkan þátt í sýningunni. Gunnar tekur fram að erlendu stjörnurnar muni flytja sitt grín á ensku. „Þótt flestir séu vel að sér í Norðurlandamálum þá byggist grín á svolítið hröðu máli og þá getur verið erfitt að fylgja brandaranum eftir.“ Sjálfur kynnt- ist Gunnar því vel þegar hann fór og sá uppistandssýningu Franks Hvam í Danmörku, hann gat fylgt bröndurunum eftir alveg þang- að til að aðalpunktinum kom, þá missti hann þráðinn á meðan allir í kringum hann sprungu úr hlátri. Gunnar segir það hafa verið algjört lykilatriði að fá Frank Hvam til að troða upp en Hvam er auðvitað önnur af aðalstjörn- um dönsku gamanþáttaraðarinn- ar Klovn sem sýnd hefur verið við miklar vinsældir hér á landi. „Hann er búinn að vera mjög upp- tekinn við tökur á myndinni um þá Klovn-félaga en þegar við sáum fram á að þessi dagur væri laus þá stukkum við til,“ segir Gunnar en bætir því við að hinir skemmti- kraftarnir séu engu síðri, þeir séu bara ekki jafn þekktir hér á landi. Að öllum líkindum mun Ari Eld- járn hita upp fyrir sýninguna og þá kemur til landsins Linda Mahala, þekkt í heimalandi sínu Noregi. „Það er alveg frábært að fá konu þótt Frímann sjálfur verði ekkert hrifinn af því,“ segir Gunnar. freyrgigja@frettabladid.is GUNNAR HANSSON: FRÍMANN Í SPOR JAY LENO OG LETTERMAN FRANK HVAM MEÐ UPPI- STAND Í HÁSKÓLABÍÓI „Ég vann í Þjóðleikhúsinu alla mína skólagöngu og leikmyndahönnun var í rauninni það sem ég ætlaði alltaf að gera. Svo tók myndlistin völdin og þetta fór á hilluna í nokkur ár,“ segir Pétur Gautur myndlistarmaður en hann sér um að hanna leikmyndina í Rocky Horror söngleikn- um sem frumsýndur verður á Akureyri þann 10. spetember, Pétur er nú betur þekktur fyrir myndlistina en leikmyndagerð en hann segist í rauninni hafa byrjað í leikhúsinu. „Ég ákvað að fara í leikmyndahönnun þegar ég var búin að læra myndlist í Danmörku og komst meira að segja inn í Konunglega leiklistarskólann þar,“ segir Pétur en hann fékk hjálp frá Þjóðleikhús- inu hér heima, þar sem hann var að vinna, við að komast inn í þennan fræga skóla. „Ég hef alltaf verið viðloðandi leikhús,“ segir Pétur Gautur en það eru orðin nokkur ár síðan hann fékkst við leikhús síðast og hann sér ekki eftir að hafa tekið þessa sýningu að sér. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni enda ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að blanda saman leikriti og rokktónleikum,“ segir Pétur Gautur en hann hefur fengið til liðs við sig ljósahönnuði sem aðstoða hann í að gera sýninguna sem flottasta. „Þetta verður rosa- sýning. Ég ætla ekki að gefa of mikið upp um hvernig leikmyndin muni líta út. Verkið Rocky Horror er svo frægt og allir með ákveðnar hug- myndir um hvernig allt á að líta út.“ segir Pétur en hann er fullviss um að enginn verði fyrir vonbrigðum með þessa uppfærslu á söngleikn- um fræga. -áp Hannar leikmyndina í Rocky Horror „Mér finnst þetta í raun ekki merkilegt mál, enda er fatnað- ur af svipuðu tagi út um allt í dag,“ segir fatahönnuðurinn Ásgrímur Már Friðriksson þegar hann er inntur eftir því hvort hann telji að söngkonan Beyoncé Knowles hafi hermt eftir hönnun hans fyrir nýja haustlínu tískumerkisins Der- eon, sem söngkonan á ásamt móður sinni. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu má finna leggings í nýrri haustlínu fatamerkis söngkonunnar en þeim svipar mjög til leggings- buxna sem söngkonan keypti í Top Shop síðasta haust. Þær buxur voru hannaðar af Ásgrími Má fyrir íslenska tískumerkið E-label, sem hefur verið fáanlegt í versl- un TopShop í London í tæpt ár. Heba Hallgrímsdóttir og Ásta Kristjánsdóttir, eigendur E- label, höfðu ekki tekið ákvörð- un um hvort þær myndu leita réttar síns þegar Fréttablaðið ræddi við þær fyrir helgi en Ásgrímur er fremur rólegur yfir þessu. „Það gæti vel verið að hún hafi sótt innblástur til okkar, en það eru gaddar út um allt í dag,“ bætir fatahönnuðurinn við, sem lætur málið aug- ljóslega ekki á sig fá. Ásgrímur Már vinnur þessa dagana að eigin fatalínu auk þess sem hann rekur verslunina Kiosk ásamt nokkrum öðrum ungum og efni- legum fatahönnuðum. Forvitnilegt verð- ur að sjá hvort aðrar stórstjörnur finni inn- blástur hjá Ásgrími Má í framtíðinni. Ekkert mál með Beyonce AFSLAPPAÐUR Ásgrímur Már Frið- riksson, fatahönnuður, telur ekki að Beyoncé Knowles hafi hermt eftir hönnun hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MYNDLISTARMAÐURINN Í LEIKHÚSIÐ Pétur Gautur myndlistarmaður er í rauninni lærður leikmyndahönn- uður og hannar leikmyndina í Rocky Horror. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL SÉRSTAKIR FÉLAGAR Frank Hvam kemur til Íslands í heimsókn til Frímanns Gunnarssonar og treður upp á sérstöku skemmti- kvöldi í Háskólabíói ásamt þekktum norrænum uppistöndurum. Enn sem komið er virðist vetrar- dagskrá RÚV ekki komin í fastar skorður. Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur ekki verið fyllt upp í það skarð sem Spaugstofan skildi eftir sig en Gunnar Björn Guðmundsson hafði engan tíma til að stýra laug- ardagsþætt- inum. Hins vegar geta aðdáendur Útsvars andað léttar því Sigmar Guð- mundsson og Þóra Arnórsdóttir snúa aftur á skjáinn í haust. Óttar Guðnason, kvikmyndatöku- maður, hefur undanfarnar vikur og mánuði verið við störf í New Orleans þar sem hann hefur verið að taka upp kvikmyndina Love, Wedding Mariage. Myndin skartar þeim Mandy Moore og Twilight- stjörnunni Kellan Lutz í aðalhlut- verkum. Nærvera Íslendingsins virðist þegar hafa haft áhrif því Lutz lýsti því yfir í viðtölum við netmiðla í gær að hann vildi endilega heim- sækja Ísland og einhverja aðra staði í fríinu sínu. Bretar eru fremur bjartsýnir á að 2010 verði gott ár í kvikmynda- húsum. Þar leika stórmyndir á borð við Harry Potter og Clash of the Titans stórt hlutverk en einnig Jackie Chan-myndin The Spy Next Door. Ekki er það þó hasarhetjan sem er talið verða helsta aðdrátt- araflið fyrir bresk ungmenni held- ur Magnús Scheving en þetta kemur fram á markaðs- vefnum utalkmark- eting.com. Meira að segja frystivörukeðj- an Iceland veðjar á Magnús og vini og auglýsir mynd- ina grimmt á sínum vörum. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1. Um 1.240 manns. 2. Slíta tengslin við breska konungsveldið. 3. Ekkert. LÁRÉTT 2. mest, 6. tveir eins, 8. hvers vegna, 9. taug, 11. kúgun, 12. ólögl. innflutningur, 14. endurtekning, 16. tveir eins, 17. frjó, 18. farfa, 20. rykk- orn, 21. útgáfunr. tónverks. LÓÐRÉTT 1. sæti, 3. eftir hádegi, 4. svelgja, 5. tæfa, 7. skipafélag, 10. gagn, 13. gifti, 15. nema, 16. nögl, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. best, 6. ee, 8. hví, 9. sin, 11. ok, 12. smygl, 14. stagl, 16. kk, 17. fræ, 18. lit, 20. ar, 21. ópus. LÓÐRÉTT: 1. sess, 3. eh, 4. svolgra, 5. tík, 7. eimskip, 10. nyt, 13. gaf, 15. læra, 16. kló, 19. tu. „Ég dýrka að grilla portobello sveppi, jafnvel bara hvaða svepp sem er, bræða í þá einhvers konar ost, smá vinaigrette- dressingu, ásamt litlum lauk- um grilluðum í álpappír með einhverju þrusu góðu brauði og kartöflusalati.“ Birkir Fjalar Viðarson, nemi og fyrrverandi söngvari I Adapt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.