Fréttablaðið - 21.08.2010, Page 36
36 21. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
ræða. Litið sé á hraðahindranir við
vegamót sem gönguleið. Komi öku-
maður að slíkri hraðahindrun og
sé að beygja skuli hann stöðva bíl-
inn og hleypa gangandi vegfaranda
yfir hraðahindrunina, rétt eins og
um gangbraut væri að ræða.
„Við höfum rætt um að hafa
gangbrautir alls staðar þar sem
er bara ein akrein í hvora átt og
þrjátíu kílómetra hámarkshraði
og jafnvel þar sem er fimmtíu
kílómetra hraði. En það verður
að taka fram í þessu samhengi
að slysum á gangandi vegfarend-
um hefur fækkað á höfuðborgar-
svæðinu síðustu ár,“ segir Guð-
brandur. Almennt sé góð reynsla
af hraðahindrununum, til að draga
úr hraða. Þó séu þær auðvitað ekki
allar jafn góðar.
Spurður hvort ekki geti verið
að laga mætti merkingar göngu-
leiða og gangbrauta í borginni,
segir aðalvarðstjórinn að lögregl-
an óski alltaf eftir því að merking-
ar og leiðir séu eins skýrar og leið-
beinandi og hægt er.
Bílar alltaf í
forgangi
Ásbjörn Ólafs-
son hjá Samtök-
um um bíllausan
lífsstíl, segir að
„í raun virðist
okkur með nán-
ast allar tegund-
ir gönguleiða
að það sé verið
að tryggja leið
bílanna frekar
en gangandi vegfarenda.“ Göngu-
stígar séu til dæmis ekki lagðir af
sama metnaði og bílagötur.
Um kenningu borgarinnar um að
gangbrautir veiti „falskt öryggi“
segir Ásbjörn:
„Gangandi vegfarandi ætti að
geta reiknað með að farið sé eftir
umferðarlögum og á gangbraut er
hann í forgangi en ekki á hraða-
hindrun. Þetta er skrýtið orðalag
sem segir okkur að það eru í raun
bílarnir sem eru í forgangi,“ segir
hann.
Þó virðist sem svo að þessi hugs-
un sé eitthvað að breytast í rétta
átt með nýju fólki, segir Ásbjörn í
lokin. Honum lítist best á sameigin-
legt rými allrar umferðar, án bíla-
stæða og gangbrauta.
Breyta þarf menningunni
F u l lt r ú i nýs
fólks í umhverf-
is- og samgöngu-
ráði er Karl Sig-
urðsson úr Besta
flokki og honum
líst einnig vel
á hið sameigin-
lega rými. Sam-
kvæmt stefnu-
skrá Besta flokks
og Samfylkingar
á að bæta aðstöðu gangandi veg-
farenda í borginni.
Karl segir að sú stefna hafi
einhvern tíma verið sett að gera
Reykjavík að bílaborg. Ekki sé
alltaf tekið fyllilegt tillit til gang-
andi vegfarenda.
„Og þess vegna erum við öll
að kaupa okkur bíla og enginn
þorir að labba. En um þetta falska
öryggi hef ég reyndar heyrt að of
mikið af merkingum og boðum og
bönnum verði til þess að fólk stóli
á að aðrir fylgi merkingunum. Mér
finnst áhugaverðar hugmyndir um
að götur og gatnamót verði minna
merktar og fólk þurfi bara að bera
virðingu fyrir annarri tegund af
umferð en þeirra eigin.“
Þetta kristallist í sam- eða deili-
rýminu (sem Ásbjörn vísaði til hér
fyrir framan) þar sem fólk þurfi
að virða aðra í umferðinni. Gang-
andi vegfarendur og hjólandi og
bílstjórar þurfa að vera vakandi
fyrir öðrum. Þetta ætti að virka til
dæmis í minni götum, þar sem er
þrjátíu kílómetra hámarkshraði.
„Þetta snýst um menningu og
að fólk geri sér grein fyrir að það
er til önnur umferð en bílar og að
þeir séu ekki alltaf rétthæstir í
umferðinni,“ segir Karl.
Hann segir það kunna að vera að
gamlar og góðar gangbrautir gætu
einnig komið að notum í samrým-
inu, þó með þeim fyrirvara að það
gangi í raun gegn grunnhugmynd-
inni. Sé gangbraut á einum stað
gætu bílstjórar talið sig hafa frítt
spil alls staðar annars staðar.
Borgarfulltrúinn tekur undir
að hraðahindranir virðist ekki
virka sem skyldi en telur til
dæmis blikkljós, sem minna fólk
á hversu hratt það keyrir, hafa
gefið góða raun. Gangbraut-
ir virki aftur best þar sem lítil
umferð er.
„Þetta þarf að gerast í smá-
skrefum en við þurfum að breyta
menningunni okkar.“ segir Karl.
Hellulögð upphækkuð hraðahindrun, með köflóttu
mynstri í jöðrum.
Hellulögð upphækkuð hraðahindrun með gang-
brautarskilti og köflóttu mynstri í jöðrum.
Hellulögð upphækkuð rauðlituð hraðahindrun
með gangbrautarskilti og þríhyrningsmynstri í jöðr-
um. Rauði liturinn afmarkar 30 km. hámarkshraða.
Hellulögð upphækkuð rauðlituð hraðahindrun.
Þríhyrningsmynstur í jöðrum.
Hellulögð lítillega upphækkuð rönd þar sem
gangstétt endar öðrum megin Suðurgötunnar.
Rendur tvískipta þessari gönguleið, innan í mun
víðfeðmari „hraðahindrun“ við Hallgrímskirkju.
Viðmiðunarpláss fyrir gönguleið, ómerkt annars.
Gönguleið yfir umferðargötu, tvískipt, ómerkt og
löng. Umferð úr tveimur áttum.
Gönguleið yfir stærri götu, tvískipt og án hnapps. Gangbrautarljós með hnappi.Gönguleið yfir stærri götu, tvískipt og með hnappi.
FRAMHALD AF SÍÐU 40
■ FRUMSKÓGUR GÖNGULEIÐA
FJÓRAR GÖTUR, FJÓRAR GANGBRAUTIR Þessi mynd er tekin í Noregi, í Frogner-hverfinu í Ósló. Þar má sjá norsku leiðina yfir götu.
Gangandi vegfarendur eru í forgangi á hverju horni. Á þriggja vikna rölti um borgina tók blaðamaður ekki eftir því að nokkur
bílstjóri vanvirti þennan rétt. Fátítt var líka að sjá gangandi vegfarendur fara yfir götur á öðrum stöðum. MYND/GUGGA
Hellulögð upphækkuð hraðahindrun, án merkinga
í jöðrum.
Í umferðarlögum frá 1987 eru nokkur ákvæði sem fjalla um skyldur ökumanna gagnvart gangandi vegfarendum á
gangbrautum og eru sérstaklega hugsuð til að vernda gangandi vegfarendur fyrir ökutækjum. Gangbraut er skil-
greind sem „sérstaklega merktur hluti vegar, sem ætlaður er gangandi vegfarendum til að komast yfir akbraut“. Þar
er ekki fjallað um hraðahindranir.
Engar hraðahindranir í umferðarlögum
KARL SIGURÐSSON
ÁSBJÖRN
ÓLAFSSON ➜ Gangandi vegfarandi skal nota gangbraut, göng
eða brú fyrir gangandi vegfarendur, ef fyrir hendi
er. Að öðrum kosti skal hann leitast við að fara yfir
akbrautina sem næst vegamótum.
➜ Þegar ökumaður ætlar að beygja á vegamótum,
ber honum að veita forgang þeirri umferð, sem
á móti kemur, svo og gangandi vegfarendum og
hjólreiðamönnum. Ökumaður má ekki valda þeim
hættu eða óþægindum.
➜ Ökumaður skal sýna gangandi vegfaranda sérstaka
tillitssemi og víkja fyrir honum. Hann má ekki
valda honum hættu eða óþægindum. Gangandi
vegfarandi má eigi hindra för ökutækis að óþörfu.
➜ Gangandi vegfarandi, sem ætlar yfir götu, skal
gæta sérstaklega að ökutækjum, sem nálgast.
Hann skal fara yfir götuna án óþarfrar tafar.
➜ Ökumaður, sem mætir eða ekur fram hjá gang-
andi vegfaranda, skal gefa honum tíma til að víkja
til hliðar og veita honum nægilegt rými á veginum.
➜ Ökumaður, sem ætlar að aka yfir gangstétt eða
gangstíg eða að aka út á akbraut frá lóð eða svæði
við veginn, skal bíða meðan gangandi vegfarandi
fer fram hjá.
➜ Þegar farið er yfir götu skal nota gangbraut, ef
hún er nálæg. Einnig göng og brýr fyrir gangandi
vegfarendur. Að öðrum kosti skal ganga þvert yfir
akbraut og að jafnaði sem næst vegamótum.
➜ Eigi má aka fram úr ökutæki rétt áður en komið er
að gangbraut eða á henni. Ef umferð við gang-
braut er stjórnað af lögreglu eða með umferðar-
ljósum, má þó aka fram úr ökutæki, ef það hindrar
ekki útsýni yfir gangbrautina. Ekki má stoppa eða
leggja bíl á gangbraut eða í fimm metra fjarlægð
áður en að henni er komið.
➜ Skylda hvílir á ökumanni að aka nógu hægt miðað
við aðstæður áður en komið er að gangbraut.
➜ Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja
fyrir gangandi vegfarendum.