Fréttablaðið - 26.08.2010, Page 34
26. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Ýmissa grasa gætir í íslenskum ullarvör-
um og eru stórar og notalegar værðar-
voðir þar engin undantekning. Bæði njóta
gömlu góðu Álafossteppin stöðugra vin-
sælda og svo hafa þekktir hönnuðir hér-
lendis lagt fyrir sig hönnun á heimilistepp-
um og hafa þau selst afar vel. Þannig eru
teppi Lindu Bjargar Árnadóttur, sem hún
hannar undir eigin merki, Scintilla, upp-
seld en væntanleg í verslanir fyrir jól.
-jma
Íslenskar værðarvoðir
Marý vöruhönnuður hann-
aði svokallað Dyggðateppi
fyrir nokkrum árum en
hugmyndin er sótt til
íslenskra dyggðaklæða frá
18. öld. Teppið er vélprjón-
að úr íslenskri ull, fáanlegt í
þremur litum og fæst meðal
annars í Safnverslun Þjóð-
minjasafnsins, Birkiland.
com og í Sirku á Akureyri.
Linda Björg Árnadóttir fatahönnuður hannar
textílvörur fyrir heimilið undir eigin merki,
Scintilla, en nýlega var sagt frá því að hönnun
Lindu, rúmteppi, gardínur, rúmteppi og fleira,
yrði notuð á lúxushóteli í Dúbaí. Teppið er
úr þeirri línu og er væntanlegt í verslanirnar
Kraum, Aurum og Mýrina í Kringlunni.
Vefurinn litlubudirnar.is varð til fyrir
hálfu ári. Tilgangurinn með vefnum
er að selja vörur handverksmanna og
þeirra sem búa til lyf og náttúruvörur
úr íslensku hráefni en þýsk útgáfa af
vefnum er rétt handan við
hornið. Þetta teppi er
heklað úr tvöföldum
plötulopa af Ágústu
Þorvaldsdóttur og er
meðal þess sem hægt
að kaupa á
vefnum.
Vöruhönnuðurinn Hanna
Jónsdóttir lærði sitt fag við
The Design Academy Eind-
hoven í Hollandi. Hún er ættuð
úr Suðursveit og vinnur með
efnivið úr heimahögunum.
„Ég er að vinna að nýrri tegund
af nælum eða klemmum úr hrein-
dýrshornum og við sem ég kalla
My pressuse,“ útskýrir Hanna
Jónsdóttir vöruhönnuður en næl-
urnar sýnir hún á hönnunarýning-
unni Náttúran í hönnun í Ljósafoss-
virkjun, sem lýkur nú á laugardag-
inn. „Ég framleiði nælurnar sjálf
en þær eru handunnar. Ég reikna
svo með að þær komi á markaðinn
með haustinu.“
Hanna er uppalin í Suðursveit og
kom sér upp vinnustofu í gamalli
verbúð á Höfn í Hornafirði þegar
hún kom heim úr námi fyrir einu
og hálfu ári. Með haustinu ætlar
hún að flytja sig til Reykjavíkur en
hún sækir bæði innblástur og efni-
við í heimahagana.
„Mér hefur alltaf fundist hrein-
dýrshorn spennnadi. Horn er
sterkt og gott efni að vinna úr og
þekktur efniviður í handverki. Ég
vildi hins vegar gera það óþekkj-
anlegra og nota það sem hráefni
frekar en vinna sérstaklega með
það sem horn.“
Rekaviður hefur einnig verið
Hönnu hugleikinn en á ferð-
um sínum um fjöruna rekst
hún gjarnan á nýtilegt hráefni.
Eins hefur Hanna steypt skál-
ar í postulín út frá formum sem
fundust í fjörunni. „Hugmynd-
irnar vinda gjarnan upp á sig. Ég
gerði postulínsskálarnar úr flot-
hringjum sem ég sagaði niður og
bjó til skúlptúr úr þeim og leir,
tók svo mót af því. Þá er alveg
óþekkjanlegt hvaðan formið kom
í byrjun.“
Hillan Skálatindur og kollurinn
Koll af kolli eru afrakstur þátttöku
Hönnu í verkefni á vegum Eyjólfs
í Epal. Þar var unnið með íslenskt
hráefni, birki og lerki og frum-
gerðirnar smíðaðar á Austurlandi.
Hanna segir það mikilvægt að geta
framleitt vörur hér á landi.
„Það hentar ekki öllum að
senda teikningar til Kína og
fá síðan eitthvað til baka. Ég
vil vera með hendurnar í ferl-
inu. Geta farið á staðinn og
séð hvernig varan er fram-
leidd.“
Nánar má forvitnast um verk
Hönnu á heimasíðunni, www.
hannajonsdottir.com. - rat
Sækir efni í heimahagana
Hanna Jónsdóttir með afa sínum Ingimar Bjarnasyni á vinnustofunni á Höfn
MYND/RÓSLÍN ALMA VALDIMARSDÓTTIR
„Þéttsetrið er afdrep sem leikur við
nánd einstaklinga,“ segir Hanna um
bekk sem hún vann úr saltfiskgrindum.
My Pressuse er heiti á nælum eða klemmum úr hreindýrshorni sem væntanlegar eru
á markaðinn frá Hönnu í haust.
Von er á Kolli af kolli á markaðinn í
vetur en hann er úr íslensku birki.
Jógúrtís eða Frozen Yogurt, sem
kom fyrst fram á sjónarsviðið í
Bandaríkjunum árið 1965, hefur
verið að ryðja sér til rúms á ný þar
í landi síðustu ár og hefur fjöldi
jógúrtísbúða og -keðja skotið upp
kollinum. Nýr jógúrtís er nú fáan-
legur í Ísbúðinni Álfheimum 2-4.
„Ísinn er sérframleiddur af
Emmessís fyrir búðina. Hann er
seldur undir vörumerkinu FroYo
og fæst með fjölda bragðtegunda,“
segir Kristinn I. Sigurjónsson
eigandi Ísbúðarinnar í Álfheim-
um. Hann segir vaxandi áhuga
á hollustu og fersku mataræði
skýra vinsældir íssins vestanhafs
en þar er jógúrtísinn hugsaður
sem hollur og spennandi skyndi-
biti. „Jógúrtís er fitulítill auk
þess sem leitast er við að halda
notkun á hvítum sykri í lágmarki.
Þá er boðið upp á hollara með-
læti en með hefðbundnum ís eins
og ávexti, hnetur, og granola svo
dæmi séu nefnd. Ísinn okkar er
ýmist með 1 eða 3,5 prósent fitu-
innihaldi,“ segir Kristinn.
Björn Gunnarsson, vöruþró-
unarstjóri MS, segir kosti jóg-
úrtíss liggja í því að jógúrtin er
sýrð með mjólkursýrugerlum sem
hafa jákvæð áhrif á meltinga-
starfsemina. Hann segir ísinn
auk þess næringaríkan og inni-
halda prótein, kalk, B-vítamín og
steinefni í ríkum mæli. - ve
Jógúrtísinn sækir í sig veðrið
Jógúrtísinn er girnilegur á að líta.
Álafossteppin hafa alltaf notið mikilla
vinsælda. Ullarvinnslan í Mosfellsbæ
hefur starfar samfleytt frá árinu 1896
en Ístex tók við starfseminni árið 1991.
Teppin fást í ýmsum verslunum víða
um land en sölustaði má finna á heima-
síðu Ístex, istex.is.
www.nordicaspa - s ími 444 5090 - nordicaspa@nordicaspa. is
MARAÞON N O R D I C A S P A
fitness
Komdu og prófaðu!
Einföld spor –
allir geta verið með
Gestakennari:
Taina Grimstad frá Danmörku
ZUMBA-maraþonið hefst kl. 17.30
Frábær tilboð á árskortum og annarri þjónustu
Hlökkum til að sjá ykkur!
OPIÐ HÚS
Föstudaginn 27. ágúst kl. 17–20
OG